Grímulaust tákn kórónaveirufaraldursins

And­lits­gríman hefur á stuttum tíma orðið ein eft­ir­sóttasta sölu­vara heims, bit­bein ríkja og tekju­lind fyrir glæpa­gengi. Nú kepp­ast tísku­húsin við að koma með sínar eigin útgáfur af henni og margir Íslend­ingar bera hana á götum úti.

Grímulaust tákn kórónaveirufaraldursins
Með grímur Lítil stúlka í Taipei, höf­uð­borg Taívans, ýtir afa sínum í rólu. Þar, eins og víða ann­ars staðar, er íbúum skylt að ganga með grímu utandyra. Mynd: AFP

Hún er orðin tákn kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins. Áður sást hún aðal­lega á and­litum tann­lækna, skurð­stofu­starfs­fólks og íbúa meng­aðra borga. Hún prýddi líka ásjónur ein­staka ferða­manna frá Asíu, sem fengu Vest­ur­landa­búa til að brosa í kamp­inn yfir sýkla­hræðslu „þess­ara útlend­inga“.

Nú er hún orðin ein eft­ir­sóttasta sölu­vara heims, verk­smiðjur hafa ekki undan að fram­leiða hana, sum ríki heims hamstra þær og þau sem eiga nóg nota þær sem gjald­miðil til að styrkja stöðu sína á alþjóða­vett­vangi. Hún er ný tekju­lind fyrir glæpa­gengi, tísku­húsin kepp­ast við að koma með sínar eigin útgáfur af henni og margir Íslend­ingar sjást nú bera hana á götum úti. 

Þetta er and­lits­gríman. 

Skyndi­lega var ekki þver­fótað á sam­fé­lags­miðlum fyrir aug­lýs­ingum frá grímu­versl­unum og mynd­böndum af fólki sem bjó til grímur úr öllu mögu­legu, eins og til dæmis karl­mannsnær­buxum og aflóga stutt­erma­bolum.

Í umfjöllun breska blaðs­ins The Guardian er umfjöllun um mis­munadi gerðir and­lits­gríma. Til dæmis er algengt að heil­brigð­is­starfs­fólk beri grímur merktar 3M. Það eru svo­kall­aðar N95 grímur, en agnir sem eru stærri en 0,3 míkrón í þver­mál, kom­ast ekki í gegnum þær. Reyndar er kór­óna­veiran smærri en það, en þræðir í efni grímunnar grípa hana. Aðrar grímur sem Guardian fjallar um eru grímur sem halda frá 99.97% allra agna sem kall­ast GVS Elipse P100. Heima­gerðar grímur úr herranær­buxum eru ekki svona þéttar, en gera þó tals­vert gagn og vernda aðra fyrir hnerrum og hóstum.

Gríðarleg eftirspurn og útflutningsbann

Efnið sem skiptir  sköpum til að smáar agnir ber­ist ekki í gegnum grímur er plast­efni sem á ensku er kallað meltblown. Það er meðal ann­ars notað í fatnað, einnota bleyjur, loft­kæl­ing­ar­tæki og vatns­síur og meira en helm­ingur fram­leiðslu heims­ins á efn­inu fer fram í Kína. Yfir­leitt fer um 2-3% af því efni sem fram­leitt er í and­lits­grímur, en núna er hlut­fallið 95%. Að öllu jöfnu er eft­ir­spurn eftir þessu plast­efni nokkuð stöðug og þær verk­smiðjur sem fram­leiða efnið voru því ekki  í stakk búnar til að auka við fram­leiðslu­get­una þegar eft­ir­spurnin eftir því jókst. 

Á franska þing­inuÞing­menn­irnir Ludovic Pajot og Sebastien Chenu við þing­störf. í dag. Þeir bera and­lits­grimu, eins og aðrir kollegar þeirra.

Í byrjun febr­úar bönn­uðu kín­versk stjórn­völd útflutn­ing á efn­inu og fyr­i­s­kip­uðu að það ætti ein­göngu að nota til að fram­leiða grímur til inn­an­lands­nota. Á sama tíma var fram­leið­endum and­lits­gríma í land­inu bannað að selja fram­leiðslu sína öðrum en kín­versku rík­is­stjórn­inni. Slakað var á þessu banni um miðjan mars og bæði grímur, annar hlífð­ar­bún­aður og meltblown-efnið er nú leyft til útflutn­ings. Til dæmis hefur Icelandair flogið í þrí­gang til Kína und­an­farið  til að sækja þangað hlífð­ar­búnað, lækn­inga- og hjúkr­un­ar­vörur.

Sakaðir um að senda Pakistönum nærbuxnagrímur

Kínversk stjórn­völd hafa sent hlífð­ar­búnað víða um heim, meðal ann­ars til Pakistan en stjórn­völd þar sögðu grím­urnar hafa verið úr nær­buxum og lá við milli­ríkja­deilu af þessum sökum. Reyndar hefur Kín­verjum verið legið á hálsi fyrir að nýta sér grímur í póli­tískum til­gangi.

En þeir eru ekki eina þjóðin sem hefur legið undir slíku ámæli. Í stríð­inu um grím­urnar hefur spenna á milli ríkja og brestir í Evr­ópu­sam­band­inu opin­ber­ast.

Í umfjöllun The Guardian segir að þegar meira en 10.000 COVID-19 til­vik höfðu greinst á Ítalíu í lok febr­úar og yfir­völd þar leit­uðu allra leiða til að fá meira af hlífð­ar­bún­aði hafi Frakkar og Þjóð­verjar sett lög þar sem grímur voru skil­greindar sem hern­að­ar­lega mik­il­vægur bún­aður og þeim þannig heim­ilt að leggja hald á grímur sem flytja átti í gegnum löndin á leið til Ítalíu.

Þá gáfu stjórn­völd í Kína  Ítölum 200.000 grímur og skömmu síðar afnámu Frakkar og Þjóð­verjar þessi lög. Síðan þá hafa Ítalir keypt meira en 20 millj­ónir gríma frá Kína, en Kín­verjum hefur tek­ist að aug­lýsa þessi við­skipti eins og góð­gerða­gjörn­ing af sinni hálfu, segir í grein Guardian. Nýleg skoð­ana­könnun sýndi að meiri­hluti Ítala telur Kína vera sína bestu vina­þjóð, en Þjóð­verjar eru efstir á lista yfir óvina­þjóðir. 

Grímustríð og sjóræningjastarfsemi

Dæmin eru fleiri. Í byrjun mán­að­ar­ins sögð­ust sænsk stjórn­völd íhuga að kæra Frakka til fram­kvæmda­ráðs Evr­ópsam­bands­ins fyrir að stöðva grímu­send­ingu sem var á leið frá Kína til Sví­þjóðar. Um svipað leyti sök­uðu þýsk stjórn­völd Banda­ríkin um nútíma sjón­ræn­ingja­starf­semi þegar and­lits­grímur, sem pant­aðar höfðu verið frá Banda­ríkj­unum fyrir lög­regl­una í Berlín voru gerðar upp­tækar á leið­inni og sendar aftur til Banda­ríkj­anna. Það var gert þegar Donald Trump Banda­ríkja­for­seti end­ur­vakti ára­tugagamla lög­gjöf frá tímum Kóreu­stríðs­ins sem heim­ilar stjórn­völdum  að banna útflutn­ing á sjúkra­gögnum og skylda fyr­ir­tæki til að fram­leiða slík gögn ein­göngu fyrir hið opin­bera.

„Smygl­hringir, sem smygla stolnum grímum hafa verið upp­rættir í nokkrum löndum“

Þessi skyndi­lega þörf fyrir and­lits­grímur hefur líka orðið glæpa­mönnum að féþúfu. Um miðjan mán­uð­inn greindi alþjóða­lög­reglan, Interpol, frá því að kom­ist hefði upp um glæpa­hring sem hefði villt á sér heim­ildir og tekið á sig gervi grímu­sala og þannig reynt að svíkja fé út úr þýskum stjórn­völdum. Smygl­hringir, sem smygla stolnum grímum hafa verið upp­rættir í nokkrum löndum og víða um heim hafa lélegar eft­ir­lík­ingar af lækna­grímum verið gerðar upp­tækar. 

Grímur til söluÝmsar gerðir og stærðir í búð­ar­glugga í borg­inni Arl­ington í Virg­in­íu­ríki í Banda­ríkj­unum.

Sums staðar lögbundið að bera grímu

Reyndar hefur farið tvennum sögum af gagn­semi gríma. Alþjóða­heil­brigð­is­mál­stofn­unin, WHO, full­yrti snemma í far­aldr­inum að heil­brigt fólk hefði engin not fyrir grímu.  Í apríl breytti WHO svo um kúrs og ráð­lagði grímunotkun til varnar því að smit­ast af kór­óna­veirunni og fjöl­mörg ríki fylgdu í kjöl­farið. 

GrímaVefsíðan Mask Club er ein fjöl­margra net­versl­ana með and­lits­grímur sem hafa sprottið að und­an­förnu. Þessi er prýdd myndum af Kær­leiks­björn­unum.

Sum lönd hvetja þegna sína til að bera þær, ann­ars staðar kveða lög á um að fólki beri að nota grímur utan heim­ilis.  Sú er meðal ann­ars raunin í Þýska­landi þar sem í gær tóku gildi lög sem skylda fólk til að bera grímu á almanna­færi, að öðrum kosti verði það sektað um háar fjár­hæðir og Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, gaf í dag út þau til­mæli til Skota að bera grímur þegar þeir færu út í búð. Þá er ekki heim­ilt að fara grímu­laus út úr húsi í Tékk­landi. 

Leik­konan Gwyneth Paltrow grímu­klædd: 

Ofur­fyr­ir­sætan Bella Hadid með grímu:

Á vef­síðu banda­ríska Vogue er grein um 75 flottar grímur, rétt eins og um hvern annan auka­hlut á borð við skó eða töskur sé að ræða og öll helstu tísku­hús heims á borð við Prada, Gucci og Balenciaga voru ekki lengi að taka við sér og fram­leiða nú grímur, sem sjá má á Instagram-reikn­ingum margra stór­stjarna. Það sem áður þótti stór­skrýtið, er nú orðið full­komn­lega eðli­legt.

Eða svona allt að því.

Er gríman komin til að vera? Fáir kippa sér nú upp við að sjá mann­eskju með grímu, en hvort hún verður hluti af dag­legum klæðn­aði okkar eða minn­ing um „for­dæma­lausa tíma“ verður tím­inn lík­lega að leiða í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...
Læknirinn Guðmundur Karl um Covid-faraldurinn: ,,Blekkingarleikurinn er ekki búinn”
Innlent

Lækn­ir­inn Guð­mundur Karl um Covid-far­ald­ur­inn: ,,Blekk­ing­ar­leik­ur­inn er ekki búinn”

Guð­mundur Karl Snæ­björns­son, sér­fræð­ingur í hem­il­is­lækn­ingum segir hættu­legt að afsala ákvarð­ana­töku í lýð­heilsu til mið­stýrðra afla úti í heimi. Guð­mundur Karl, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar segir að við verðum að gera upp Covid-far­ald­ur­inn heild­stætt til þess að ákveðnir hlutir end­ur­taki sig ekki: „Covid er ekki búið að því marki að blekk­ing­ar­leik­ur­inn er ekki búinn. Við getum...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár