Róbert Spanó: Réttarkerfi Íslands notið góðs af Mannréttindadómstólnum

Róbert Spanó hefur fyrstur Íslend­inga og jafn­framt fyrstur Norð­ur­landa­búa verið kos­inn for­seti Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Á meðal mála dóm­stóls­ins tengdum Íslandi má nefna tján­ing­ar­frelsi, skatta­mál, saka­mál og Lands­rétt­ar­málið.

Róbert Spanó: Réttarkerfi Íslands notið góðs af Mannréttindadómstólnum
Heiður Róbert segir mik­il­vægt fyrir okkar litlu þjóð að Íslend­ingar velj­ist til leið­toga­starfa á alþjóð­legum vett­vangi. Mynd: STEPHANIE KLEIN

Róbert Spanó fædd­ist í Reykja­vík árið 1972. Móðir hans er Reyk­vík­ingur en faðir hans er frá Napolí. „Við fluttum árið 1979 til Quebec-fylkis í Kanada þar sem ég lærði frönsku sem hefur gagn­ast mér afar vel hér úti í Strass­borg þar sem vinnu­tungu­málin eru enska og franska.

Um sjö árum síðar fluttum við til Ítalíu um rúm­lega árs skeið og svo aftur til Íslands.

Ég stund­aði nám við Hlíða­skóla og fór svo í Versl­un­ar­skóla Íslands þar sem ég útskrif­að­ist með stúd­ents­próf árið 1992. Þaðan lá leiðin í laga­deild Háskóla Íslands þar sem ég lauk emb­ætt­is­prófi árið 1997. Loks inn­rit­að­ist ég í Oxford-háskóla á Englandi árið 1999 og lauk þar meistara­gráðu árið 2000.“

Róbert segir að í fjöl­skyldu sinni hafi lengi verið sagt að hann hafi talað um að verða lög­fræð­ingur frá því hann var krakki. „Ég held það sé rétt. Ég man alla­vega ekki eftir því að hafa hugsað um að verða eitt­hvað annað sem er eilítið öðru­vísi en fyrir marga sem leggja lög­fræði fyrir sig. Ég var alltaf mjög heill­aður af lög­fræði­bíó­myndum og þess háttar. Það var þó ekki fyrr en löngu síðar, eftir að ég hóf störf sem dóm­ara­full­trúi við Hér­aðs­dóm Reykja­ness, stuttu eftir að ég útskrif­að­ist úr laga­deild, sem dóm­störfin urðu heill­andi.“

Hóf ferilinn hjá skattrannsóknarstjóra

Fyrsta starf Róberts eftir útskrift frá laga­deild HÍ árið 1997 var sem lög­fræð­ingur hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins. „Ég starf­aði þar aðeins um nokk­urra mán­aða skeið en hef alltaf sagt að það hafi verið afar góður tími sem gaf mér góða inn­sýn inn í íslenskt skatt­kerfi. Í sept­em­ber 1997 hóf ég störf sem dóm­ara­full­trúi við Hér­aðs­dóm Reykja­ness þar sem ég starf­aði í tæpt eitt ár en var svo ráð­inn til starfa hjá emb­ætti umboðs­manns Alþingis í ágúst 1998.

Eftir nám mitt í Oxford réð Tryggvi Gunn­ar­son, þá hæsta­rétt­ar­lög­maður, mig til starfa sem aðstoð­ar­mann umboðs­manns Alþingis en því starfi gegndi ég til árs­ins 2004 þegar ég var ráð­inn dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands en ég hafði verið lektor í hluta­starfi þar frá árinu 2002. Árið 2007 varð ég síðan pró­fessor við laga­deild HÍ og for­seti deild­ar­innar á árunum 2010–2013. Eftir fall íslensku bank­anna á árinu 2008 var Tryggvi skip­aður í rann­sókn­ar­nefnd­ina um banka­hrunið. Alþingi setti mig þá í að leysa hann af sem umboðs­mann Alþingis en því starfi gegndi ég frá jan­úar 2009 fram á mitt ár 2010 og svo aftur á árinu 2013.

„Það var gríð­ar­lega erfitt starf en virki­lega gef­andi“

Einn eft­ir­minni­leg­asti en jafn­framt krefj­andi tím­inn við störf á Íslandi var for­mennska mín í svo­kall­aðri vist­heim­ila­nefnd á árunum 2007 til 2012 en sú nefnd rann­sak­aði meðal ann­ars Breiða­vík­ur­heim­ilið og önnur vist­heim­ili þar sem börn dvöldu á árum áður. Það var gríð­ar­lega erfitt starf en virki­lega gef­andi. Sama er að segja um for­mennsku mína í rann­sókn­ar­nefnd kirkju­þings á árinu 2011.“

Elja íslensku þjóðarinnar 

Róbert var í júní árið 2013 kjör­inn dóm­ari við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu og hóf form­lega störf 1. nóv­em­ber. Kjör­tíma­bilið er níu ár og hann lýkur því störfum 31. októ­ber 2022. Í maí 2017 var hann svo kjör­inn for­seti deildar innan dóm­stóls­ins, vara­for­seti í maí 2019 og svo for­seti dóm­stóls­ins núna í apríl en hann tekur form­lega við því starfi 18. maí.

„Þótt for­seta­kjörið sé auð­vitað ákveð­inn per­sónu­legur heiður fyrir mig finnst mér skipta meira máli hve mik­il­vægt það er fyrir okkar litlu þjóð að Íslend­ingar velj­ist til leið­toga­starfa á alþjóð­legum vett­vangi. Ég er fyrsti Íslend­ing­ur­inn og raunar fyrsti Norð­ur­landa­bú­inn til að gegna emb­ætti for­seta dóm­stóls­ins frá því að hann var stofn­aður í núver­andi mynd. Þetta sýnir að við Íslend­ingar erum til alls megn­ugir, hvort sem það er á sviði íþrótta eða í því að láta gott af okkur leiða hvar sem er í ver­öld­inni. Sá elja og sá kraftur sem býr í okkar litlu þjóð er með ólík­indum eins og síð­ustu vikur hafa sýnt þar sem íslenska heil­brigð­is­kerfið og þrí­eykið okkar, Víðir Reyn­is­son, Þórólfur Guðnason og Alma Möller, hafa sýnt að þau eru afburða­fólk og með þekk­ingu á heims­mæli­kvarða. Ég hef þurft að fylgj­ast með fram­vindu mála úr fjar­lægð hér frá Strass­borg und­an­farnar vikur en fram­ganga þeirra og raunar allrar íslensku þjóð­ar­innar á þessum erf­iðu tímum hefur fyllt mig miklu stolti.“

Dóm­stóll­inn Róbert situr þing­hald í yfir­deild Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins.

„Þetta sýnir að við Íslendingar erum til alls megnugir“

Erfiðir tímar fram undan

Fram undan er afar erfitt tíma­bil fyrir mann­rétt­inda­vernd í Evrópu sem mun hafa mikil áhrif á störf Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. „Í fyrsta lagi er alls óvíst hvernig far­sóttin mun hafa áhrif á líf okkar til fram­búðar en eitt er víst að hún mun hafa mikil og langvar­andi áhrif. Þar eru mann­rétt­indi borg­ar­anna ekki und­an­skilin. Á því er hætta á slíkum tímum að þeir sem fara með opin­bert vald gangi of langt, einkum þegar lýð­ræð­is­legar und­ir­stöður í sam­fé­lag­inu eru ekki sterkar fyrir. Hlutverk sjálf­stæðra dóm­stóla, sem grunn­stofn­ana rétt­ar­rík­is­ins, verður enn mik­il­væg­ara og þar mun Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu þurfa að sinna sínu hlut­verki af kost­gæfni við að tryggja að fylgt sé meg­in­reglum þeim sem fram koma í Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Í annan stað hefur þróun mann­rétt­inda í Evrópu und­an­farin ár verið með þeim hætti, einkum í þeim löndum þar sem lýð­ræð­is­leg grunn­gildi og kröfur rétt­ar­rík­is­ins hafa látið undan, að áhrif hefur á störf inn­lendra dóm­stóla, á sjálf­stæði þeirra og störf Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. Það er einmitt við slíkar aðstæður sem sjálf­stæðir dóm­arar þurfa að standa í lapp­irnar og halda sínu striki við að dæma í sam­ræmi við lögin eins og þau eru og þá einkum að tryggja mann­rétt­indi þau sem er að finna í stjórn­ar­skrám við­kom­andi ríkja og í Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.“

Mikið um ferðalög

Mann­rétt­inda­sátt­mál­inn er alþjóð­leg grund­vall­ar­skrá mann­rétt­inda í 47 aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­ráðs­ins, þar á meðal Íslandi. Lögsaga dóm­stóls­ins tekur því sam­tals til um 820 millj­óna manna. Verkefni dóm­stóls­ins eru því ærin.

„Sjálf­stæðir dóm­arar þurfa að standa í lapp­irnar og halda sínu striki“

„Sem stendur eru um 60.000 mál fyr­ir­liggj­andi og mörg hver afar erfið og þýð­ing­ar­mikil. Forseti dóm­stóls­ins fer með yfir­stjórn dóm­stóls­ins í heild sinni en þar starfa tæp­lega 700 manns. Segja má að helm­ingur tíma for­seta fari í beina stjórnun og að sinna því að vera málsvari dóm­stóls­ins út á við gagn­vart Evr­ópu­ráð­inu og aðild­ar­ríkj­unum. Mikið er því um ferða­lög og fundi, enda for­set­inn nokk­urs konar sendi­herra dóm­stóls­ins út á við. Hinn helm­ing­ur­inn fer í bein dóms­störf en for­seti MDE situr ávallt í dóms­for­sæti yfir­deildar sautján dóm­ara, sem dæmir í allra stærstu mál­unum, nema að um sé að ræða mál frá hans heima­ríki eða ef hann hefur vikið sæti. Þá heldur for­set­inn áfram að dæma í málum sjö manna deildar dóm­stóls­ins sem koma frá heima­landi. Ég mun því halda áfram að dæma í íslenskum málum.“

Íslenska ríkið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu

Saga Íslands innan Evr­ópu­ráðs­ins og sem aðila að Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu er orðin um 70 ára gömul.

„Rétt­ar­kerfi okkar hefur notið afskap­lega góðs af þátt­töku Íslands í þessu sam­starfi og ljóst að MSE hefur haft mikla þýð­ingu fyrir þróun íslensks réttar. Gerðar hafa verið grund­vall­ar­kerf­is­breyt­ingar á Íslandi vegna þró­unar í dóma­fram­kvæmd á vett­vangi Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu auk þess sem mann­rétt­inda­kafla stjórn­ar­skrár­innar var breytt á árinu 1995 bein­línis til þess að tryggja sam­ræmi þar á milli.

Þegar sjálf­stætt og full­valda ríki ákveður að taka þátt í alþjóð­legu sam­starfi eins og því sem fer fram í Evr­ópu­ráð­inu hefur ríkið tekið þá afstöðu að það sé, þegar á heild­ina er litið og til lengri tíma, til heilla fyrir það að vera þar þátt­tak­andi. Með slíku sam­starfi fylgja þó bæði rétt­indi og skyldur. Með því að Ísland, eins og önnur ríki Evr­ópu­ráðs­ins, hefur ákveðið að und­ir­gang­ast lög­sögu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu að þjóða­rétti hefur Ísland skuld­bundið sig til að fram­fylgja þeim dómum sem þar ganga. Dómar sem kunna að fela í sér áfelli fyrir aðild­ar­ríki eru því eðli­legur hluti af því kerfi sem aðild­ar­ríkin hafa ákveðið að fylgja. Það hafa því komið upp mál endrum og eins þar sem reynir á skuld­bind­ingar Íslands sam­kvæmt sátt­mál­anum. Á síð­ast­liðnum árum hefur dóm­stóll­inn til að mynda fjallað tölu­vert um mál þar sem reynir á tján­ing­ar­frelsi, skatta­mál og nú er tölu­verður fjöldi mála til með­ferðar sem varða saka­mál sem höfðuð voru í fram­haldi af banka­hrun­inu. Eins og allir þekkja hafa síðan mál er varða skipun dóm­ara við Lands­rétt verið til með­ferðar úti í Strass­borg.“

Dómstóla að veita aðhald 

Þegar Róbert er spurður út í Lands­rétt­ar­málið segir hann að það sé ekki rétt af sinni hálfu að tjá sig sér­stak­lega um ein­stök mál. „Ég tek aðeins fram að dóm­arar verða að þola gagn­rýni á sín störf; það er hluti af starf­inu. Þeir mega ekki taka slíka gagn­rýni per­sónu­lega eða of nærri sér. Maður verður því að hafa bein í nef­inu í svona starfi, ann­ars er bara best að fara að gera eitt­hvað annað. Þeir sem hins vegar gagn­rýna dóm­stóla, eins og Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu, inn­lenda dóm­stóla eða ein­staka dóma, verða að leit­ast við að gera það með mál­efna­legum rökum og velja orð sín af kost­gæfni.

„Það er hlut­verk dóm­stóla að taka afstöðu til þess hvort störf stjórn­mála­manna séu í sam­ræmi við Mann­rétt­inda­sátt­mál­ann“

Það á sér­stak­lega við um ráða­menn og þá sem fara með opin­ber völd. Kjósi menn að láta gott af sér leiða á sviði stjórn­mál­anna verða þeir jafn­framt að horfa til þess að í lýð­ræðis- og rétt­ar­ríki gilda ákveðnar reglur um slík störf sem þeim ber að fara eftir. Það er hlut­verk dóm­stóla að taka afstöðu til þess hvort störf stjórn­mála­manna séu á hverjum tíma í sam­ræmi við Mann­rétt­inda­sátt­mál­ann, stjórn­ar­skrá og almenn lög. Það er bein­línis það kerfi sem er und­ir­staða rétt­ar­rík­is­ins.“

Ísland alltaf í forgangi

Róbert segir að hvað sem líði ein­stökum málum sem komið hafa frá Íslandi til Strass­borgar á und­an­förnum árum sé það skoðun sín að þekk­ing íslenskra lög­fræð­inga, lög­manna og dóm­ara á Mann­rétt­inda­sátt­mál­anum og dóma­fram­kvæmd Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sé mikil og hafi raunar verið til fyr­ir­myndar á síð­ustu árum.

„Ég ber mikið traust til íslenska dóms­kerf­is­ins en þar er mikið um afskap­lega fært fólk á öllum þremur dóm­stig­unum sem reynir að gera sitt besta. Ég hef miklar vænt­ingar til þess að með tíð og tíma muni hin nýja dóm­stóla­skipan á milli Lands­réttar og Hæsta­réttar auka enn á fyr­ir­sjá­an­leika og sam­kvæmni í dóma­fram­kvæmd. Íslenska lög­manna­stéttin hefur einnig að geyma mikið af afar hæfi­leik­a­ríku fólki. Það sé ég þegar íslensk mál koma á mitt borð úti í Strass­borg. Ég hef á und­an­förnum árum leit­ast við að eiga gott sam­starf við dóm­ara og lög­menn á Íslandi og því reglu­lega komið heim til fyr­ir­lestr­ar­halds. Það verður lík­lega erfitt fyrir mig á næst­unni þegar ég tek við for­seta­starf­inu en Ísland verður alltaf í for­gangi hjá mér ef óskað er eftir nær­veru minni.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár