„Stuðningsúrræðin gera ráð fyrir að þolandinn sé kvenkyns”

Karl­maður sem var beittur ofbeldi af hendi kær­ustu sinnar upp­lifði að stuðn­ings­úr­ræði fyrir þolendur ofbeldis í nánum sam­böndum væru hönnuð fyrir kven­kyns þolendur. Taldi hann kerfið gera ráð fyrir að ger­andi væri karl­kyns. Sér­fræð­ingar sem leitað var til töldu að karl­mennsku­hug­myndir stæðu oft í vegi fyrir því að karl­kyns þolendur ofbeldis leit­uðu sér aðstoðar og karlar van­treysti frekar kerf­inu.

„Stuðningsúrræðin gera ráð fyrir að þolandinn sé kvenkyns”

Karlkyns þol­andi lýsir reynslu sinni af ofbeldi í nánu sam­bandi, upp­lifun af stuðn­ings­úr­ræðum fyrir þolendur ofbeldis og aðferðum ger­and­ans til að koma sök á hann. 

Maðurinn kemur ekki fram undir nafni af ótta við að ofbeldið taki sig upp á ný, en hér er talað um hann sem Gunnlaug. Nafni kon­unnar hefur sömu­leiðis verið breytt, en hann rifjar upp kynni þeirra Maríu: „Við sem sagt kynnt­umst á net­inu, urðum náin mjög fljótt og ég var fluttur inn til hennar sirka þremur eða fjórum mán­uðum eftir að við kynnt­umst. Ég náði sterkum tengslum við son hennar og tók strax mikla ábyrgð á honum sem mér fannst dásam­legt.“ 

Stjórnun og hótanir

Gunn­laugur fór fljótt að upp­lifa stjórnun og hót­anir af hálfu hennar: „Ofbeldið hófst fljót­lega eftir að ég var fluttur inn. Fyrst sem pirr­ingur upp úr þurru en síðan varð þetta alvar­legra. Núna veit ég að þetta var dæmi­gert …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár