Bjarni segist ekki vilja spá hvort hallinn verði 200 milljarðar

Bjarni Bene­dikts­son segir frum­varp um tíma­bundnar greiðslur launa fólks í sótt­kví verða stórt skref. Trygg­inga­gjaldið verði einnig skoðað og svig­rúm fjár­mála­fyr­ir­tækja vegna greiðslu hús­næð­is­lána.

Bjarni segist ekki vilja spá hvort hallinn verði 200 milljarðar
Bjarni Bene­dikts­son Fjármála- og efna­hags­ráð­herra vill ekki spá fyrir um hver fjár­laga­hall­inn verður. Mynd: Pressphotos

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að halli rík­is­sjóðs muni fara vel yfir 100 millj­arða króna í ár, jafn­vel 200 millj­arða, þó hann vilji ekki spá fyrir um það. Þetta kom fram í máli hans í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag.

Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, spurði Bjarna hvað stjórn­völd hyggð­ust gera til að verja fólk í þeirri efna­hags­legu dýfu sem framundan er vegna áhrifa COVID-19 veirunnar. Bjarni svar­aði því að frum­varp þess efnis að ríkið greiði laun fólks í sótt­kví sé til umræðu í dag og að í því verði mik­ill stuðn­ingur fólg­inn.

„Við vitum af vand­anum, við höfum haf­ist handa og við ætlum að huga að öllum þessum þáttum sem hér eru dregnir fram,“ sagði Bjarni. Hann sagði að í fyrsta lagi yrði hugað að atvinnu­ör­ygg­inu og því að fjár­mála­mark­að­ur­inn veiti svig­rúm fólks þegar kemur að hlutum eins og greiðslu hús­næð­is­lána. Þá verði einnig litið til náms­lána. „Við erum ekki að gera ráð fyrir því að hér verði sam­bæri­legt verð­bólgu­skot og menn þekkja frá fyrri tímum, en það eru svo miklir óvissu­tímar að það er ekki got um það að spá,“ sagði hann.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, spurði Bjarna einnig hvort vænta mætti þess að trygg­inga­gjald yrði fellt niður út árið og hvort fyr­ir­tæki mættu vænta beins efna­hags­legs stuðn­ings við að halda fólki í vinnu út sum­arið. Loks spurði hann hvaða áform væru uppi um stuðn­ing við ein­yrkja sem eru í vinnu hjá sjálfum sér.

Bjarni sagði rétt að rík­is­stjórnir nágranna­landa hafi gripið til aðgerða og það hafi að ein­hverju leyti verið gert á Íslandi einnig. Hann sagði að ekki hefði verið tekin ákvörðun um að fella trygg­inga­gjaldið niður, en gjaldið sé til skoð­unar. Nú þegar hafi verið frestað inn­heimtu þess. Hins vegar megi sú leið sín lít­ils við hlið­ina á annarri leið, sem er sú að ríkið taki fólk á sína launa­skrá sam­kvæmt frum­varp­inu sem rætt verður í dag, en það muni bæði styðja við fyri­tæki, launa­fólk og ein­yrkja.

Sig­mundur Davíð spurði þá í fram­hald­inu hvað rík­is­stjórnin hyggð­ist gera til að styðja við heil­brigð­is­kerfið og hverju stæði til að loka. Líklegt sé að smit hafi borist í marga skóla og margir for­eldrar þurfi að vera heima með börn sín. „Við erum að skima meira en margar aðrar þjóðir eru að gera til að hafa réttar upp­lýs­ingar um hversu útbreitt smitið hefur orðið,“ sagði Bjarni. Hann bætti því við að fram­halds- og háskólar væru þegar í fjar­kennslu og í fram­hald­inu mundi ráð­ast hvað yrði gert varð­andi fyrri skóla­stigin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár