Ég hef löngun til að faðma mun fleira fólk en ég gerði mér grein fyrir. Sjálfsmynd mín er í uppnámi. Kannski faðma ég of mikið? Hjálp!
Ég vil biðja fólkið sem ég umgengst, persónulega og faglega, innilegrar afsökunar á þeim óþægindum sem ég hlýt að hafa valdið þeim með óumdeildri og sjúklegri áráttu minni fyrir því að snerta eigið andlit, sem ég var ekki meðvituð um fyrr en nú. Ég áttaði mig ekki á því hversu djúpstæð hún var og tel næsta víst að ég hafi varið öllum fundum síðustu ára með fingurna á kafi í nefinu á mér, augum, eyrum, að kroppa í ímyndaðar vörtur á hökunni eða klóra í hársvörðinn eða annað ógirnilegt athæfi. Ég biðst forláts. Ég mun leita mér aðstoðar vegna þessarar furðulegu röskunar um leið og heilbrigðiskerfið vill sjá mig.
Ótrúlegt en satt þá voru áratugirnir sem ég varði í að hafa áhyggjur af öllum …
Athugasemdir