Aftakaveður með tjóni víða um land

Bílar fjúka, bátar sökkva og þök flettast af. Maður slas­að­ist þegar þak­plata fauk á hann í Hval­firði. Rafmagn hefur farið af á suð­ur­landi og vest­ur­landi og vegir eru víða lok­aðir.

Aftakaveður með tjóni víða um land
Illviðri Fáir voru á ferli í höf­uð­borg­inni í morgun. Mynd: Davíð Þór

Aftaka­veður hefur gengið yfir landið í nótt og í morgun og tjón er víða orðið veru­legt. Á Kjal­ar­nesi fauk hluti þaks af fjöl­býl­is­húsi á haf út í morgun, maður slas­að­ist þegar hann varð fyrir fjúk­andi þak­plötu í Hval­firði, bátur sökk í höfn­inni í Vest­manna­eyjum, bílar hafa fokið á Suð­ur­nesjum og rúður brotnað og raf­magn hefur farið af víða á Suð­ur­landi og Vest­ur­landi. Vegir eru lok­aðir víða um land og voru þannig til að mynda allar leiðir til og frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu lok­aðar þar til að Reykja­nes­braut var opnuð á ell­efta tím­anum.

Aðgerð­ar­stjórnir almanna­varna voru virkj­aðar víða um land í nótt og í morgun, á Selfossi, á höf­uð­org­ar­svæð­inu og á Sauð­ár­króki. Fjölda­hjálp­ar­stöð var opnuð á Vík í Mýrdal þegar í gær­kvöldi. Hundruð björg­un­ar­sveit­ar­fólks hefur sinnt verk­efnum í nótt og í morgun.

Veðrið skall fyrst á á suð­ur­landi í gær­kvöldi og færð­ist til vest­urs og síðan til norð­urs. Illviðri er nú skollið á á Norð­ur­landi vestra en enn sem komið er er veður skap­legt á Norð­ur­landi eystra, þó farið sé að bæta í vind. Hvasst er á Vest­fjörðum og hefur óvissu­stigi vegna snjó­flóða­hættu verið lýst yfir á norð­an­verðum fjörð­unum en enn er þó ekki talin vera hætta í byggð.

Foktjón hefur orðið víða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en fáir eru á ferli og hafa því ekki orðið slys á fólki svo vitað sé. Allir skólar og leik­skólar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru lok­aðir og hið sama má segja um fjölda vinnu­staða. Fólk var ein­dregið hvatt til að halda sig heima og hefur þeim til­mælum verið hlýtt. Afleitt veður er enn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þó það sé nokkuð mis­jafnt sé eftir borg­ar­hverfum. App­el­sínugul við­vörun er í gildi þar, sem og alls staðar ann­ars staðar á land­inu en rauðar við­var­anir voru í gildi á Suð­ur­landi og við Faxaflóa til hádegis.  

Ljós­mynd­ari Stund­ar­innar, Davíð Þór Guð­laugs­son, var á ferð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í morgun og náði þá þessum myndum sem sýna veð­ur­ham­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár