Kolbrún íhugar að kæra ráðningu ellefta karlsins í stöðu útvarpsstjóra

Kolbrún Hall­dórs­dóttir seg­ist hafa til skoð­unar að hvort hún fari með ráðn­ingu Stefáns Eiríks­sonar sem útvarps­stjóra fyrir kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála. Stjórn RÚV neitar að veita Kristínu Þor­steins­dóttur rök­stuðn­ing fyrir ráðn­ing­unni.

Kolbrún íhugar að kæra ráðningu ellefta karlsins í stöðu útvarpsstjóra
Rök­styðja ekki ráðn­ingu Stjórn RÚV hefur hafnað beiðni Krist­ínar Þor­steins­dóttur um rök­stuðn­ing fyrir því af hverju Stefán Eiríks­son var ráð­inn útvarps­stjóri. Kolbrún Hall­dórs­dóttir er með til skoð­unar að fara með ráðn­ing­una fyrir kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála.

Kolbrún Hall­dórs­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra og umsækj­andi um stöðu útvarps­stjóra, seg­ist hafa til skoð­unar að fara með ráðn­ingu útvarps­stjóra fyrir kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála. Hún hefur enn ekki fengið svar við ósk sinni um rök­stuðn­ing fyrir ráðn­ingu Stefáns Eiríks­sonar sem útvarps­stjóra, fram­yfir hana. Formaður stjórnar Rík­is­út­varps­ins segir að sér hafi ekki borist erindi Kol­brúnar.

Stjórn Rík­is­út­varps­ins hefur synjað beiðni Krist­ínar Þor­steins­dóttur um rök­stuðn­ing fyrir vali stjórnar á nýjum útvarps­stjóra. Stundin greindi frá því fyrir helgi að Kristín, sem er fyrr­ver­andi rit­stjóri Frétta­blaðs­ins og einn umsækj­enda um stöðu útvarps­stjóra, hefði farið fram á slíkan rök­stuðn­ing. Í sam­tölum blaða­manns Stund­ar­innar við stjórn­ar­menn í stjórn Rík­is­út­varps­ins við vinnslu fyrri fréttar, þar á meðal við stjórn­ar­for­mann­inn Kára Jónasson, kom ekki annað fram en stjórnin myndi veita rök­stuðn­ing fyrir vali sínu til þeirra umsækj­enda sem þess æsktu. Sú afstaða hefur því tekið breyt­ingum.

Morg­un­blaðið greinir frá því í morgun að Kristínu hafi verið synjað um rök­stuðn­ing fyrir því hvers vegna stjórn Rík­is­út­varps­ins ákvað að ráða Stefán Eiríks­son borg­ar­rit­ara í stöðu útvarps­stjóra og ástæðum þess að hann var tekin fram yfir aðra umsækj­endur.

Margrét Magn­ús­dóttir, starf­andi útvarps­stjóri, mun hafa sent Kristínu svar þessa efnis fyrir hönd stjórnar síð­ast­lið­inn föstu­dag. Kristín hafði óskað eftir því hvað það var sem olli því að hún komst ekki lengra í umsókn­ar­ferl­inu en raun bar vitni, hvað það var sem að Stefán hafði fram yfir hana þegar kom að hæfn­is­kröfum fyrir starfið og auk þess óskaði hún eftir öllum öðrum gögnum er vörð­uðu ráðn­ing­una. Kristínu var neitað á grund­velli þess að Rík­is­út­varp­inu bæri ekki skylda til að veit umrædd gögn, sökum þess að það sé opin­bert hluta­fé­lag og því gilda upp­lýs­inga­lög ekki um það eins og rík­is­stofn­anir.

Stjórn RÚV ekki borist erindi Kolbrúnar

Kolbrún Hall­dórs­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra úr flokki Vinstri grænna, sótti einnig um stöðu útvarps­stjóra og var að lokum kosið milli hennar og Stefáns. Munu atkvæði hafa fallið þannig að hvort þeirra fékk fjögur atkvæði stjórn­ar­manna en Stefán hafði betur með atkvæði Kára Jón­as­sonar, for­manns stjórnar, en hans atkvæði gilti tvö­falt.

Kolbrún óskaði einnig eftir rök­stuðn­ingi fyrir ráðn­ingu Stefáns umfram hana. Kolbrún segir í sam­tali við Stundina að hún hafi enn ekki fengið neitt svar. Hún hafi sent erindi þessa efnis beint á Capacent, enda hefðu öll sam­skipti varð­andi ráðn­ing­ar­ferlið farið þar í gegn. Það erindi sendi Kolbrún 3. febr­úar og fékk hún svar sam­dæg­urs þess efnis að erindi hennar yrði komið áfram til stjórnar Rík­is­út­varps­ins sem myndi svara henni. Kolbrún seg­ist jafn­framt ekki hafa skýr­ingu á því hvers vegna hún hafi ekki fengið svar en Kristín hafi fengið það þegar í síð­ustu viku.

„Hún á bara að senda þetta beint til okkar“

Kári Jónasson, for­maður stjórnar Rík­is­út­varps­ins, segir að hann hafi ekki fengið neitt erindi frá Kolbrúnu. „Ég hef ekki séð það frá henni. Ég var bara að lesa þetta í Mogganum í morgun, ég bara bíð. Hún á bara að senda þetta beint til okkar.“

Í ljósi þess að Kristínu hefði þegar verið neitað um rök­stuðn­ing var Kári spurður hvort annað gæti gilt um aðra umsækj­endur. „Ég verð að sjá beiðn­ina frá Kolbrúnu, ég veit ekk­ert hvernig hún er. Ég svara ekki út í loftið, ég vil bara sjá þetta áður en ég tjái mig.

Ósamræmi í orðum og gjörðum

Í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar sem kom út föstu­dag­inn 7. febr­úar var haft eftir Kára að það yrði ekki fyrr en í þess­ari viku sem hægt yrði að taka saman allar upp­lýs­ingar um ráðn­ing­ar­ferlið. „Við ætlum að byrja á að taka það allt saman fyrir okkur og sjá svo til hvað við gerum,“ sagði Kári.

Ekki var annað að skilja á honum en að þeir umsækj­endur sem þess ósk­uðu myndu fá rök­stuðn­ing varð­andi ráðn­ing­una. Hið sama var upp á ten­ingnum þegar aðrir stjórn­ar­menn voru inntir eftir hinu sama. Það er því athygl­is­vert að Kristín Þor­steins­dóttir fékk afsvar um rök­stuðn­ing þegar þann dag, föstu­dag­inn 7. febr­úar.

Þar sem Rík­is­út­varpið er opin­ber hluta­fé­lag, sam­kvæmt laga­heim­ild frá árinu 2006, gilda stjórn­sýslu­lög og upp­lýs­inga­lög ekki um félagið. Það þýðir að ekki eru eins strangar kröfur um ráðn­ing­ar­ferlið. Hins vegar geta umsækj­endur kært ráðn­ingu til Kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála, enda nær vald­svið hennar og jafn­rétt­islag­anna einnig yfir opin­ber hluta­fé­lög og einka­fyr­ir­tæki.

Skoðar að kæra ráðninguna

Gagnrýnt var, þegar ljóst var að Stefán hefði orðið fyrir val­inu, að enn væri karl­maður ráð­inn í stöðu útvarps­stjóra en í tæp­lega 90 ára sögu Rík­is­út­varps­ins hefur kona aldrei gegnt stöðu útvarps­stjóra en Stefán verður ell­efti karl­inn til að setj­ast í þann stól.

Standi stjórn Rík­is­út­varps­ins á þeirri ákvörðun sinni að neita að veita rök­stuðn­ing fyrir vali sínu á útvarps­stjóra gæti það orðið kven­kyns umsækj­endum örð­ugt að kæra ráðn­ing­una til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála, hefðu þær hug á því. Samkvæmt jafn­rétt­islög­unum getur hins vegar kæru­nefndin kraf­ist gagna „sem nefndin telur að geti haft áhrif á úrlausn máls“. Rík­is­út­varpið gæti þannig þurft að sýna fram á að aðrar ástæður en kyn hafi ráðið því að Stefán var ráð­inn, en ekki hæfni.

Kolbrún segir, aðspurð um hvort hún sjái fyrir sér að kæra ráðn­ing­una, að hún vilji ekki svara því á þessu stigi máls­ins. „Ég er auð­vitað með það til skoð­unar. Það er eðli­legt að ég skoði það, sér­stak­lega í ljósi þess sem kæru­nefndin gerði í máli Ólínu Þor­varð­ar­dóttur.“

Ólína fékk nýverið 20 millj­ónir króna í bætur vegna þess að gengið var fram­hjá henni við val þjóð­garðsvarðar á Þing­völlum, að mati Kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála. Ráðn­ingin heyrði hins vegar undir stjórn­sýslu­lög, upp­lýs­inga­lög og lög um rétt­indi starfs­manna rík­is­ins, ólíkt Rík­is­út­varp­inu sem varð und­an­þegið þeim lögum við svo­kall­aða ohf-væð­ingu 2006.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár