Kristín ekki hæf til að verða ríkislögreglustjóri

Kristín Jóhann­es­dóttir, sem sótt hefur um stöðu rík­is­lög­reglu­stjóra, hlaut árið 2013 þriggja mán­aða fang­els­is­dóm í skatta­hluta Baugs­máls­ins. Í lög­reglu­lögum segir að rík­is­lög­reglu­stjóri megi ekki hafa hlotið fang­els­is­dóm

Kristín ekki hæf til að verða ríkislögreglustjóri
Upp­fyllir ekki skil­yrði Fang­els­is­dómur Krist­ínar í skatta­hluta Baugs­máls­ins gerir að verkum að hún upp­fyllir ekki skil­yrði til að verða skipuð rík­is­lög­reglu­stjóri.

Kristín Jóhann­es­dóttir, einn umsækj­enda um stöðu rík­is­lög­reglu­stjóra, upp­fyllir ekki hæf­is­skil­yrði lög­reglu­laga til að hljóta skipun í emb­ættið, sökum þess að hún hlaut  þriggja mán­aða fang­els­is­dóm árið 2013. Í lög­reglu­lögum er til­tekið að sá sem skip­aður er rík­is­lög­reglu­stjóri megi ekki hafa hlotið fang­els­is­dóm.

Kristín er hvað þekkt­ust fyrir að hafa á sínum tíma verið í lyk­il­hut­verki í við­skipta­veldi Baugs­fjöl­skyld­unnar og var fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Gaums, auk þess að hafa setið í stjórn Baugs.

Kristín var, ásamt Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, bróður sínum, og Tryggva Jónssyni, sak­felld í skatta­hluta Baugs­máls­ins svo­kall­aða í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur árið 2012. Í dómnum var ákvörðun refs­ingar frestað, vegna mik­ils dráttar á með­ferð máls­ins. Dómnum var áfrýjað til Hæsta­réttar sem kvað upp dóm ári síðar, 7. febr­úar 2013.

Í Hæsta­rétti var Kristín sak­felld fyrir tvö brot í starf­semi Gaums. Hún hefði skilað röngum skatt­fram­tölum fyrir félagið, ann­ars vegar þar sem vantaldar voru skatt­skyldar tekjur þess og hins vegar þar sem oftaldar voru til gjalda nið­ur­færslur til­tek­innar hluta­bréfa­eignar félags­ins og tap þess oftalið. Í dómi Hæsta­réttar var Kristín dæmd til þriggja mán­aða fang­els­is­refs­ingar, sem falla skyldi niður að tveimur árum liðnum héldi hún almennt skil­orð. 

Samkvæmt 28. grein lög­reglu­laga skulu þeir sem skip­aðir eru rík­is­lög­reglu­stjórar „hafa hvorki hlotið fang­els­is­dóm fyrir refsi­verðan verknað sem fram­inn var eftir að þeir urðu fullra 18 ára né sýnt af sér hátt­semi sem getur rýrt það traust sem lög­reglu­stjórar verða almennt að njóta.“

Lög­fræð­ingar sem Stundin hefur rætt við og leitað álits hjá eru sam­mála þeirri túlkun að með því að Kristín var dæmd árið 2013 upp­fylli hún ekki hæf­is­skil­yrði til að verða skipuð rík­is­lög­reglu­stjóri.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár