Sjö orð sem skilgreindu árið 2022

Á rit­stjórn Kjarnans voru nú í lok árs­ins tekin saman sjö orð, sem hvert um sig skil­greindu árið 2022 með sínum hætti.

Á rit­stjórn Kjarnans voru nú í lok árs­ins tekin saman sjö orð, sem hvert um sig skil­greindu árið 2022 með sínum hætti. Listinn er að sjálf­sögðu ekki tæm­andi.

fagfjárfestir

Ríkið hélt áfram að selja hlut sinn í Íslands­banka undir lok síð­asta vetrar sem kunn­ugt er og hefur sú sala ekki verið án eft­ir­mála. Til stendur að leggja niður Banka­sýslu rík­is­ins, búið er að liggja yfir ítar­legri skýrslu rík­is­end­ur­skoð­anda um málið og fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans athugar enn ákveðna þætti í ferl­inu.

Orðið fag­fjár­festir er eitt þeirra sem varð nokkuð fyr­ir­ferð­ar­mikið í umræðu um söl­una. Nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar var að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og Banka­sýslan hefðu ekki upp­lýst nægi­lega vel hvað fólst í settum skil­yrðum um „hæfa fjár­festa“ við söl­una í Íslands­banka. Upp­lýs­ingar um hvort fjár­festar væru hæfir byggðu í ein­hverjum til­fellum á upp­lýs­ingum frá þeim sjálf­um, en eng­inn mið­lægur gagna­grunnur er til um slíka fjár­festa á Íslandi. Mat sölu­ráð­gjafa á hæfi fjár­festa sætir eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

kynþáttamörkun

Orðið kyn­þátta­mörkun er íslensk þýð­ing á enska hug­tak­inu racial profil­ing, sem kom inn í umræð­una hér á landi í vor í kjöl­far þess að sami ung­lings­pilt­ur­inn þurfti í tvígang að sæta afskiptum lög­reglu, einu sinni í stræt­is­vagni og svo aftur þar sem hann sat í bak­arí með móður sinni.

[adspot]

Með hug­tak­inu er átt við það þegar kyn­þáttur og/eða húð­litur er not­aður til þess að skil­greina ein­stak­linga eða hópa fólks og mis­munun gagn­vart þeim rétt­lætt á þeim for­send­um.

„Slík flokkun fólks bygg­ist oft á ómeð­vit­aðri hlut­drægni. Í lög­gæslu birt­ist þetta með þeim hætti að ein­stak­lingur eða hópur fólks er grun­aður um sak­næmt athæfi vegna kyn­þáttar og/eða húð­litar frekar en sönn­un­ar­gagna. Ýmsar þýð­ingar hafa komið fram á racial profil­ing, t.d. kyn­þátta­miðuð lög­gæsla, kyn­þátta­miðuð grein­ing, kyn­þátta­blóri og sjálf­sagt fleiri. Við teljum ekk­ert þess­ara orða heppi­legt en mik­il­vægt að hafa gott íslenskt orð um þetta hug­tak,“ skrif­uðu þau Claudia Ashanie Wilson, Eiríkur Rögn­valds­son, Eliza Reid, Eyrún Ólöf Sig­urð­ar­dóttir, Gísli Pálsson og Sema Erla Serdaroglu í aðsendri grein sem birt­ist á vef Kjarnans í maí.

stýrivaxtahækkun

Ekki er hægt að horfa fram hjá orð­inu stýri­vaxta­hækkun þegar litið er yfir árið 2022. Síðasta vaxta­hækkun bank­ans, þann 23. nóv­em­ber, setti meg­in­vexti bank­ans upp í 6 pró­sent, og vaxta­hækk­anir bank­ans eru nú orðnar tíu í röð.

Aðgengi lands­manna að pen­ingum til láns er allt annað en það var í upp­hafi árs, þegar stýri­vextir Seðla­bank­ans voru ein­ungis 2 pró­sentu­stig.

innrás

Á alþjóða­svið­inu hefur fátt farið hærra en inn­rás Rússa í Úkraínu. Millj­ónir hafa þurft að leggja á flótta, heilu borg­unum hefur verið rústað, en Úkra­ínu­menn, með stuðn­ingi ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, berj­ast enn fyrir landi sínu.

spretthópur

Á vett­vangi íslenskra stjórn­mála eru oftar en ekki margir starfs­hópar að störfum, að mestu skip­aðir af ráð­herrum, full­trúum fram­kvæmda­valds­ins, til þess að skoða hin eða þessi mál ofan í kjöl­inn og leggja fram til­lögur að úrbótum eða stefnum á ein­hverjum sviðum.

Nýtt orð bætt­ist í orða­forð­ann á þessu ári, nefni­lega sprett­hópur, en það er starfs­hópur sem á að vinna til­tekin mál sem þykja einkar áríð­andi hraðar en venjan er með starfs­hópa, sem venju­lega fá nokkuð rúman tíma til að vinna.

Fyrsti sprett­hóp­ur­inn tókst á við alvar­lega stöðu í mat­væla­fram­leiðslu á Íslandi og þótti standa undir nafni með kvikum aðgerðum. Síðan þá hafa fleiri sprett­hópar verið stofn­aðir, til dæmis einn sprett­hópur sér­fræð­ingur um hvort nýtt hverfi í Skerja­firði ógni flug­vell­inum í Vatns­mýr­inni og sprett­hópur á vegum borg­ar­innar um hávaða frá skemmt­ana­lífi í mið­bænum. Lítið hefur þó heyrst frá þeim sprett­hópum, og óljóst hvort þeir muni standa undir nafni.

saurloft

Ástand skóla- og leik­skóla­hús­næðis í Reykja­vík­ur­borg, og raunar öðrum sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins einnig, hefur verið nokkuð í deigl­unni á árinu. Í ein­hverjum til­fellum virð­ist við­haldi hafa verið veru­lega ábóta­vant og for­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins skömmu fyrir jól, þar sem orðið saur­loft kom fyrir í fyr­ir­sögn, krist­allar ef til vill vand­ann.

Þar var sagt frá því að aðal­or­sök slæmra loft­gæða á leik­skól­anum Granda­borg í Vest­ur­bænum, sem í dag starfar á þremur mis­mun­andi stöðum í borg­inni, væri skrið­kjall­ari undir skóla­bygg­ing­unni og hönnun á loft­ræsti­kerfi þess.

[adspot]

„Enn­fremur kom í ljós að skólprör hafði farið í sundur vegna þess að húsið hefur sigið á liðnum árum. Þar af leið­andi hafði skólp seytlað ofan í jarð­veg í kjall­ar­anum. Loft­ræsti­kerfið blæs svo lofti úr kjall­ar­anum, upp í hús­næði leik­skól­ans,“ sagði í minn­is­blaði sem tekið var saman af skóla- og frí­stunda­sviði borg­ar­innar.

vindorkuver

Á árinu voru sett fram áform um fjölda­mörg vind­orku­ver á Íslandi og eru sveit­ar­fé­lög vítt og breitt um landið að skoða slík mál. Hvað fram­tíðin ber í skauti sér í þessum efnum er nokkuð óljóst, en ljóst er að umræðan um beislun vind­orkunnar á Íslandi er komin til að vera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár