Partílok, seðlabankastjóri, verbúðin Ísland, þöggun valdakarla og ríkir kjánar í hanaslag

Árið 2022 bauð upp á allskyns álita­mál sem ollu deilum í sam­fé­lag­inu. Á þeim flestum var tekið í leið­ara­skrifum í Kjarn­anum á árinu sem er nú að líða. Hér eru mest lesnu leið­arar árs­ins.

5. Partíið er búið (birtist 2. júlí)

„Það er ekk­ert sem ýtir fastar við stærsta kjós­enda­hópnum, milli­stétt­inni, en það þegar hún finnur að lífs­kjör hennar eru mark­visst að skerð­ast. Sú staða er komin upp.

Þegar við bæt­ist allt hitt: fúskið í kringum banka­sölu, enda­laus póli­tísk hrossa­kaup, oftekin laun þjóð­kjör­inna full­trúa og launa­hækk­anir þeirra langt umfram það sem tíðkast í sam­fé­lag­inu, mála­miðl­anir um lægstu sam­nefn­ara í lyk­il­málum, algjört aðgerð­ar­leysi við að breyta gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi og fjár­mála­geira og þá sýni­legu stað­reynd að sitj­andi rík­is­stjórn­ar­flokkar eru varla sam­mála um neitt nema að hanga á völdum, þá er ekki furða að stjórn­ar­flokk­arnir séu að mæl­ast í vand­ræðum.“ Leiðari eftir Þórð Snæ Júl­í­us­son.

Lestu leiðar­ann í heild hér.

4. Hver á að hætta að eyða peningum? (birtist 27. ágúst)

„Við skulum bara tala af alvöru við hvort annað, ekki út frá talna­leik­fimi, gas­lýs­ingu eða lög­málum fólks sem deilir ekki kjörum með þorra fólks í land­inu. Á Íslandi, sem er mold­ríkt land, er að teikn­ast upp ískyggi­leg mynd. Stór hluti fólks er þegar kom­inn í vand­ræði og nær ekki endum saman. Enn stærri hluti fólks finnur til­finn­an­lega fyrir þeim gríð­ar­legu hækk­unum sem dag­legt líf kostar í þess­ari, að hluta til heima­til­búnu, dýr­tíð. Þeir verst settu eiga ekki fyrir mat.“ Leiðari eftir Þórð Snæ Júl­í­us­son.

Lestu leiðar­ann í heild sinni hér.

3. Verbúðin Ísland (birtist 12. janúar)

„Jón Hjalta­lín, per­sóna Gísla Arnar Garð­ars­sonar í Ver­búð­inni, er ekki byggð á ein­hverjum einum stjórn­mála­manni. Hann er allir stjórn­mála­menn­irnir sem hafa klifað á því að fiski­miðin séu sam­eign þjóð­ar­innar í aðdrag­anda kosn­inga en síðan lagst kylli­flatir fyrir frek­ustu mönnum íslenskrar sam­tíma­sögu að þeim loknum.

Þegar hann og Harpa, per­sóna Nínu Daggar Fil­ipp­us­dóttur, renna saman í eitt ofan á skrif­borð­inu í fisk­vinnsl­unni þá er sá sam­runi tákn­rænn fyrir helstu mein­semd íslensks sam­fé­lags: sam­runa sam­eig­in­legra hags­muna útgerðar og stjórn­mála til að verja pen­inga og völd.“ Leiðari eftir Þórð Snæ Júl­í­us­son.

Lestu leiðar­ann í heild hér.

2. Valdakarlarnir sem náðu ekki að þagga niður í konu (birtist 8. janúar)

„Þá reynir á fólk – og okkur hin – að standa í lapp­irn­ar. Að láta ekki með­virkni eða hræðslu við afleið­ingar stöðva sig í að ganga í mál­in. Í þessu til­viki sem hér um ræðir skorti þetta frum­kvæði hjá stjórnum fyr­ir­tækj­anna Festi, Íseyjar útflutn­ings og Ver­itas því ekk­ert bólaði á neinum við­brögðum fyrr en málið komst í hámæli í fjöl­miðl­um.“ Leiðari eftir Báru Huld Beck.

Lestu leiðar­ann í heild hér.

1. Tveir ríkir kjánar í hanaslag (birtist 29. janúar)

„Það er orðið sam­fé­lags­lega áríð­andi að Róbert Wessman og Björgólfur Thor komi sér saman um leið til að gera upp deilur sínar án aðkoma ann­arra, og fjarri almanna­rým­inu. Þeir gætu kannski látið skipað gerð­ar­dóm sem getur skorið úr um hvor geti pissað lengra. Eða leigt Coloseum í Róm og barist líkt og skylm­inga­þrælar.

Aðferðin sem er valin skiptir ekki máli, heldur ein­ungis það að okkur hinum verði haldið utan við þetta. Og að þeir hætti um leið að valda skemmdum á sam­fé­lag­inu sem bjó þá til með þessum firrta hanaslag.“ Leiðari eftir Þórð Snæ Júl­í­us­son.

Lestu leiðar­ann í heild hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár