Stafræn innbrot, lukkuriddarar, valdamenn sem féllu, göng og ónýt blokk í Þorlákshöfn

Mest lesnu inn­lendu frétta­skýr­ingar árs­ins 2022 áttu fátt annað sam­eig­in­legt en mik­inn lestur. Þær fjöll­uðu um deilur, skipu­lags­mál, galla, kyn­ferð­is­brot og menn sem vilja reisa vind­myllur.

5. Fóru inn í tölvupósta Sólveigar Önnu og Viðars

Þá starf­andi for­maður Eflingar hafði aðgang að tölvu­póst­hólfum fyr­ir­renn­ara síns, Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Eflingar, Viðars Þor­steins­sonar, frá því í jan­úar á þessu ári og fram í apríl. Aðgang­ur­inn var virkur eftir að Sólveig Anna var end­ur­kjörin sem for­maður Eflingar og eftir að hún tók aftur við því emb­ætti. Í álits­gerð lög­manns, sem Kjarninn greindi frá í októ­ber, sagði að athæfið sé brot á per­sónu­vernd­ar­lögum og Sólveig Anna til­kynnti málið í kjöl­farið til Per­sónu­verndar.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild hér.

4. Jarðgöng undir Fjarðarheiði með lengstu veggöngum í heimi

Fjarð­ar­heið­ar­göng, sem eiga að vera 13,3 kíló­metrar að lengd, yrðu ekki aðeins lengstu veggöng á Íslandi heldur með þeim lengstu í heimi. Kostn­að­ur­inn yrði á bil­inu 44-47 millj­arðar króna en með fram­kvæmd­inni yrði hæsta fjall­vegi milli þétt­býl­is­staða á land­inu útrýmt.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild hér.

3. „Lukkuriddararnir“ í bakgarðinum

Þrír fyrr­ver­andi þing­menn, fjögur erlend stór­fyr­ir­tæki, félag í eigu svo­kall­aðs hrun­verja og fólk úr sveitum Vest­ur­lands koma við sögu í frá­sögn Sunnu Óskar Loga­dóttur af fundi seinni hluta sept­em­ber­mán­aðar þar sem vind­orku­fyr­ir­tæki kynntu áform sín.

[adspot]„Við viljum þetta ekki,“ sagði fund­ar­gestur. Allir þurfa „að taka á sig“ að fá vind­myllur nálægt sér, sagði Vil­hjálmur Egilsson, for­maður græn­bók­ar­nefnd­ar­innar, sem er kom­inn í verk­efni fyrir orku­fyr­ir­tækin.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild hér.

2. Valdamenn í viðskiptalífinu falla hver af öðrum vegna ásakana um kynferðisbrot

Í byrjun árs birt­ist ítar­leg frétta­skýr­ing um mál sem Kjarinn hafði rann­sakað í rúma tvo mán­uði, eða frá því að ung kona, Vítalía Laz­areva, birti frá­sögn á sam­fé­lags­miðl­inum Instagram. Frá­sögnin var af kyn­ferð­is­of­beldi sem hún sagði sig hafa orðið fyrir af hendi þriggja manna.

Menn­irnir eru Ari Edwald, þá for­stjóri Ísey Skyr, Hregg­viður Jónsson, þá stjórn­ar­for­maður og aðal­eig­andi Veritas, og Þórður Már Jóhann­es­son, þá stjórn­ar­for­maður Festi, um kyn­ferð­is­of­beldi. Daginn sem frétta­skýr­ingin birt­ist höfðu allir þrír stigið til hliðar úr ábyrgð­ar­stöðum.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild hér.

1 Blokkin í Þorlákshöfn

Í mars voru úbúar og hús­fé­lag í fjöl­býl­is­húsi í Þor­láks­höfn að und­ir­búa mál­sókn vegna margs konar galla og skemmda í íbúðum og sam­eign. Íbúi í hús­inu sagði við Kjarnann að húsið væri þekkt sem „ónýtu blokk­ina í Þor­láks­höfn“ og skamm­að­ist sín fyrir að búa þar. Eigandi Pró hús ehf., sem stóð að bygg­ingu blokk­ar­innar rúmum tveimur árum fyrr, sagði málið hafa reynst erfitt. Hann sak­aði bygg­ing­ar­full­trúa í Ölfusi um vald­níðslu og ein­elti en lof­aði lag­fær­ingum með vor­inu.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár