Jarðgöng undir Fjarðarheiði með lengstu veggöngum í heimi

Fjarð­ar­heið­ar­göng yrðu ekki aðeins lengstu veggöng á Íslandi heldur með þeim lengstu í heimi. Kostn­að­ur­inn yrði á bil­inu 44-47 millj­arðar króna en með fram­kvæmd­inni yrði hæsta fjall­vegi milli þétt­býl­is­staða á land­inu útrýmt.

Tölvugerð mynd af gangamunna Seyðisfjarðarmegin.
Tölvu­gerð mynd af ganga­munna Seyð­is­fjarð­ar­megin. Mynd: Vegagerðin

„Hár­nála­beygjur“ og bratti. Snjó­þyngsli sem loka veg­inum oft og ítrekað – jafn­vel dögum saman. Hún er fögur akleiðin um Fjarð­ar­heiði en getur verið hættu­leg enda um að ræða hæsta fjall­veg á land­inu sem tengir saman byggð­ar­lög. Í ára­tugi hefur staðið til að grafa göng en það er ekki fyrr en nú að loks hyllir undir að þau verði að veru­leika.

Umhverf­is­mats­skýrsla áform­aðra Fjarð­ar­heið­ar­ganga Vega­gerð­ar­innar hefur verið lögð fram til kynn­ingar. Öllum er frjálst að skila inn umsögnum, eigi síðar en 5. júlí.

[adspot]

Til stendur að gera 13,3 kíló­metra löng jarð­göng, þau lengstu á land­inu og með þeim lengstu í heimi – hvorki meira né minna. Til við­bótar verða leiðir að göng­unum beggja vegna lag­færðar eða færðar til. Heild­ar­fram­kvæmdin myndi sam­kvæmt mati Vega­gerð­ar­innar kosta á bil­inu 44-47 millj­arða króna á verð­lagi des­em­ber 2021.

Göngin eiga að verða áfangi í teng­ingu allt frá Norð­firði til Seyð­is­fjarðar og þar með hluti af Hring­vegi um Aust­firði. Því í fram­hald­inu stendur til að gera göng frá Seyð­is­firði suður til Mjóa­fjarðar og svo önnur þaðan og til Norð­fjarðar. Fjarð­ar­heið­ar­göng eru því aðeins þau fyrstu í jarð­ganga­þrennu sem áformuð er á þessum slóðum.

Vegurinn um Fjarð­ar­heiði er í 620 metra hæð og er þar með hæsti fjall­vegur til þétt­býl­is­staðar á land­inu þar sem aðeins er ein veg­teng­ing. Við slíkar aðstæður þarf ekki mik­inn vind­hraða yfir vetr­ar­tím­ann til þess að aðstæður verði erf­iðar fyrir sam­göngur. Slíkt ástand getur verið við­var­andi dögum saman og hamlað för um heið­ina. Á tíma­bil­inu 2015-2020 var veg­ur­inn lok­aður frá 29-56 daga ár hvert.

Vegurinn tengir hinn til­tölu­lega unga kaup­stað Egils­staði við einn þann elsta, hinn sér­stæða Seyð­is­fjörð, þar sem húsin lúra á tak­mörk­uðu lág­lend­inu undir snar­bröttum fjöllum. Fjöllum sem við vitum að geta byrst sig ræki­lega við ákveðnar aðstæður með til­heyr­andi aur- eða snjó­skriðum.

Vegna snjó­þyngsla og veð­ur­að­stæðna full­nægir veg­ur­inn um Fjarð­ar­heiði alls ekki kröfum nútím­ans. Brattar brekkur beggja vegna heið­ar­innar eru oft veru­legur far­ar­tálmi fyrir flutn­inga­bíla og fólks­bíla íbúa og ferða­manna á svæð­inu, til að mynda þeirra sem koma með far­þega­ferj­unni Norrænu. Fjarð­ar­heiði er oft mesta eða jafn­vel eina hindr­unin sem þeir mæta í allri ferð sinni til Íslands, segir Vega­gerðin í umhverf­is­mats­skýrslu sinni.

Í brekk­unum beggja vegna Fjarð­ar­heiðar eru margar krappar beygjur og þar af fjórar svo­nefndar „hár­nála­beygjur“ að vest­an­verðu og að aust­an­verðu. Lang­halli er merktur 10 pró­sent á skiltum, bæði í efstu brekkunni Hér­aðs­megin og í Efri- og Neðri- Staf Seyð­is­fjarð­ar­megin.

En það er fleira sem Vega­gerðin vill ná fram með fram­kvæmd­inni en að forða fólki frá því að þurfa að aka yfir heið­ina. Hún vill einnig end­ur­skoða að leiðin að henni liggi að hluta í gegnum miðbæ Egils­staða sem veldur end­ur­teknum umferð­artöfum og hættu.

Þrír val­kostir eru til skoð­unar Hér­aðs­megin gang­anna. Tveir gera ráð fyrir að Hring­veg­ur­inn verði færður út fyrir þétt­býlið á Egils­stöðum og er annar þeirra, svo­nefnd Suð­ur­leið, aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar. Með þeirri leið yrði Hring­veg­ur­inn færður suður fyrir Egils­staði með nýjum vega­mótum frá Skrið­dals- og Breið­dals­vegi. Samtals þarf 6,9 kíló­metra langa vega­gerð á Héraði og nýja 110 metra brú á Eyvind­ará.

Seyð­is­fjarð­ar­megin yrði ganga­munni við Gufufoss í um 130 metra hæð og þaðan eru tveir val­kostir í stöð­unni: Lag­fær­ing núver­andi veg­línu eða ný.

Þrátt fyrir að núver­andi vegur yrði lag­færður telur Vega­gerðin það ekki ákjós­an­legan val­kost með til­liti til umferð­ar­ör­yggis. Nýja veg­línan, sem er aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar, yrði norðar en núver­andi vegur. Gamli veg­ur­inn myndi áfram þjóna svæð­inu í dalnum og yrði því ekki aflagður.

Almennt er það mat stofn­un­ar­innar að lít­ill munur sé á milli þess­ara tveggja kosta hvað varðar áhrif á sam­fé­lag og umhverfi. Helsti mun­ur­inn felist í land­notkun þar sem færa þyrfti golf­völl Golf­klúbbs Seyð­is­fjarðar yrði nýr vegur ofan á.

Jarð­göngin undir heið­ina yrðu tví­breið og hámarks­hrað­inn í þeim 70 km/klst. Miðað er við að þau yrðu unnin frá báðum endum, 4-5 metrar boraðir og sprengdir í einu, efn­inu ekið út og bergið síðan styrkt eftir þörfum áður en næsta lota er tekin.

Reiknað er með að það líði rúm­lega ár frá upp­hafi fram­kvæmda þar til göngin ná saman. Þá tekur við vinna við loka­styrk­ingar bergs­ins, upp­setn­ingu frá­rennsl­is­kerfis, lýs­ingar og loft­ræst­ingar sem og upp­bygg­ing vegar með mal­biks­slit­lagi.

Reiknað er með að við gerð Fjarð­ar­heið­ar­ganga verði unnið með tveimur gengjum og að meðal starfs­manna­fjöldi yfir árið verði um 75 manns.

Áætlaður fram­kvæmda­tími er 7 ár.

Allir val­kostir Hér­aðs­megin koma til með að fara um svæði á C-hluta nátt­úru­minja­skrár og svæði sem var sett á nátt­úru­vernd­ar­á­ætlun 2009–2013, mis­mikið þó. Seyð­is­fjarð­ar­megin eru engin frið­lýst svæði.

Innan áhrifa­svæða val­kosta beggja vegna við göngin má hins vegar finna birki­skóg en sér­stæðir eða vist­fræði­lega mik­il­vægir birki­skógar og leifar þeirra njóta sér­stakrar verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum. Forðast skal að raska þeim nema brýna nauð­syn beri til. Val­kostir við Egils­staði fara einnig um vot­lendi sem nýtur sömu verndar.

Á stefnuskránni frá árinu 1987

Í vel á fjórða ára­tug hafa stjórn­völd haft það á stefnu­skrá sinni að bæta sam­göngur til og frá Seyð­is­firði með jarð­göngum. Í skýrslu sem kom út á vegum sam­göngu­ráðu­neyt­is­ins árið 1987 kom fram að göng um Fjarð­ar­heiði og Odds­skarð ættu að vera ofar­lega á for­gangs­list­anum. En leiðin undir heið­ina til Egils­staða hefur þó ekki alltaf verið efst á blaði.

Á árunum 1988-1993 vann nefnd sem skipuð var af sam­göngu­ráð­herra að mati á jarð­ganga­kostum á Aust­ur­landi. Í skýrslu hennar voru lögð fram og bornar saman þrjár mis­mun­andi leiðir, svo­nefnd sam­göngu­mynstur.

Mynstur A var eins og þáver­andi vega­kerfi nema að því leyti að vegir um Fjarð­ar­heiði og Odds­skarð færu í jarð­göng. Í mynstri B var lögð áhersla á sjáv­ar­síð­una og því göng úr Seyð­is­firði í Mjóa­fjörð, önnur þaðan í Norð­fjörð og þau þriðju síðan undir Odds­skarð til Eski­fjarðar. Mynstur C tengdi síðan saman Seyð­is­fjörð og Nes­kaup­stað með tvennum göngum til Mjóa­fjarðar og síðan reiknað með teng­ingu þaðan til Héraðs með göngum undir Mjóa­fjarð­ar­heiði. Nefndin lagði til að mynstur C yrði valið.

Vega­gerðin segir að síðan þá hafi kröfur til jarð­ganga tekið breyt­ingum. Til að mynda sé nú talið eðli­legt að göng liggi lægra í land­inu. Á síð­ari árum hafa full­trúar Seyð­is­fjarðar og álykt­anir Sambands sveit­ar­fé­laga á Aust­ur­landi einnig lagt mesta áherslu á göng undir Fjarð­ar­heiði.

Í kringum 2005 var ákveðið að hefja rann­sóknir á aðstæðum til ganga­gerðar milli Eski­fjarðar og Norð­fjarðar og nokkrum árum síðar var ákveðið að ráð­ast í fram­kvæmdir. Norð­fjarð­ar­göng voru loks opnuð fyrir umferð árið 2017. Þar með var það sam­göngu­mynstur á Aust­ur­landi sem nefnd­ar­innar frá 1993 aðhyllt­ist, ekki lengur talið raun­hæft.

Árið 2011 vann verk­fræði­stofan EFLA skýrslu þar sem fram kom að með teng­ingu byggð­ar­lag­anna við Hérað með göngum undir Fjarð­ar­heiði feng­ist mun betri hring­teng­ing milli þeirra allra en ein­göngu með teng­ingu undir Mjóa­fjarð­ar­heiði því með henni einni saman hefði Seyð­is­fjörður orðið enda­stöð.

Fimm árum síðar skip­aði sam­göngu­ráð­herra verk­efn­is­hóp um und­ir­bún­ing að ákvarð­ana­töku um Seyð­is­fjarð­ar­göng. Meðal verk­efna hóps­ins var að vega og meta mögu­legar sam­göngu­bætur fyrir Seyð­is­fjörð með hlið­sjón af ávinn­ingi sam­fé­lags­ins og atvinnu­lífs á svæð­inu. Skýrslan kom út 2019 og í henni var lögð til svokölluð hring­teng­ing sem fæli í sér þrenn göng: Fjarð­ar­heið­ar­göng, Mjóa­fjarð­ar­göng og Seyð­is­fjarð­ar­göng. Að mati hóps­ins myndi slík teng­ing ná miklum sam­fé­lags­legum ávinn­ingi fyrir Seyð­is­fjörð og Aust­ur­land í heild. Ávinn­ing­ur­inn fælist helst í bættum sam­göngum og sveigj­an­leika sem væri lík­legt til að styðja við búsetu á svæð­inu, atvinnu­veg og aðgang að þjón­ustu.

Og fleiri göng

Í sam­göngu­á­ætlun 2020-2034 kemur fram að gert sé ráð fyrir að í fram­haldi af Fjarð­ar­heið­ar­göngum verði ráð­ist í gerð ganga milli Seyð­is­fjarðar og Mjóa­fjarðar (Seyð­is­fjarð­ar­göng) og Mjóa­fjarðar og Fann­ar­dals í Norð­firði (Mjóa­fjarð­ar­göng).

Seyð­is­fjarð­ar­göng yrðu um 5,4 kíló­metrar að lengd og myndu liggja í grennd við Gufufoss á Seyð­is­firði til Mjóa­fjarðar, við bæinn Fjörð.

Mjóa­fjarð­ar­göng yrðu um 6,9 kíló­metra löng og eru fyr­ir­huguð frá Fann­ar­dal í Norð­firði með munna í sunn­an­verðum Mjó­a­firði, á móts við bæinn Fjörð. Lengd milli Mjóa­fjarð­ar­ganga og Seyð­is­fjarð­ar­ganga yrði um 800 metrar.

Þótt Fjarð­ar­heið­ar­göng yrðu meðal lengstu veg­ganga í heimi yrðu þau ekki lengstu göng á Íslandi. Á heiðum Aust­ur­lands er að finna göng sem eru mun lengri, göng sem flytja vatn úr Jöklu úr Hálslóni að stöðv­ar­húsi Kára­hnjúka­virkj­unar. Þau eru tæp­lega 40 kíló­metrar að lengd.

Til­gang­ur­inn með Fjarð­ar­heið­ar­göngum er að sögn Vega­gerð­ar­innar að bæta sam­göngur á Aust­ur­landi og hafa þar með jákvæð áhrif á sam­fé­lagið. „Með jarð­göngum undir Fjarð­ar­heiði verða sam­göngur áreið­an­legri og örugg­ari.“ Að loknum fram­kvæmdum verður mögu­legt að halda veg­inum á milli Héraðs og Seyð­is­fjarðar opnum allan árs­ins hring. „Fram­kvæmdin mun styrkja byggð og atvinnu­líf á Seyð­is­firði og Aust­ur­landi öllu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár