Íslenska ríkið greiðir Erlu Bolladóttur 32 milljóna miskabætur

Ríkið greiðir Erlu Bolla­dóttur 32 millj­óna króna miska­bætur vegna 232 daga gæslu­varð­halds sem hún þurfti að sæta árið 1976. Erla er einnig beðin sér­stak­lega afsök­unar á þeirri með­ferð sem hún mátti þola, í yfir­lýs­ingu frá for­sæt­is­ráð­herra.

Sam­komu­lag hefur náðst milli íslenska rík­is­ins og Erlu Bolla­dóttur vegna gæslu­varð­halds sem Erla sætti fyrir meinta aðild að hvarfi Geir­finns Ein­ars­sonar. Erla var sýknuð af þeim ákærum í Hæsta­rétti 1980 en hún mátti sæta frels­is­svipt­ingu í tæpa 8 mán­uði vegna máls­ins.

Samkvæmt sam­komu­lag­inu, sem sagt er frá í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag, greiðir íslenska ríkið Erlu Bolla­dóttur miska­bætur fyrir gæslu­varð­haldið á sama grund­velli og sak­born­ingum í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu, sem síðar voru sýkn­aðir, voru dæmdar í Lands­rétti.

„Nemur fjár­hæð miska­bót­anna um 32 millj­ónum króna en fjár­hæðin tekur mið af þeim bótum sem Lands­réttur ákvarð­aði fyrir gæslu­varð­hald í fyrr­nefndum dómum. Alls sat Erla í gæslu­varð­haldi í 232 daga í tengslum við meinta aðild sína að hvarfi Geir­finns,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Dómur vegna rangra sakargifta stendur óhaggaður

Á vef Stjórn­ar­ráðs­ins segir að sam­komu­lagið við Erlu Bolla­dóttur taki ein­göngu til gæslu­varð­halds vegna rann­sóknar á hvarfi Geir­finns Ein­ars­sonar. Dómur vegna rangra sak­ar­gifta stendur hins vegar óhagg­aður, sem er í takti við nið­ur­stöðu End­ur­upp­töku­dóms frá 14. sept­em­ber sl.

[adspot]

Hluti sam­komu­lags­ins er yfir­lýs­ing Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Þar er Erla Bolla­dóttir beðin sér­stak­lega afsök­unar á þeirri með­ferð sem hún mátti þola og afleið­ingum hennar en hún var á tíma gæslu­varð­halds­ins ung kona með korna­barn. Hér að neðan má lesa yfir­lýs­ingu for­sæt­is­ráð­herra.

Yfirlýsing forsætisráðherra:

Hvörf þeirra Guð­mundar Ein­ars­sonar og Geir­finns Ein­ars­sonar hafa varpað skugga á íslenskt þjóð­líf um ára­tuga skeið og sett mark sitt á ævi fjöl­margra ein­stak­linga. Óvissu­á­standi sem sneri að sak­born­ingum í þessum málum var að mestu eytt með sýknu­dómi Hæsta­réttar yfir þeim sem taldir voru bera ábyrgð á manns­hvör­f­unum, dómum Lands­réttar um sann­gjarnar bætur þeim til handa svo og lögum nr. 128/2019, sem tryggðu bætur til aðstand­enda hinna sýkn­uðu sem voru látnir. Þá hafa þeir sem sýkn­aðir voru og aðstand­endur verið beðnir afsök­unar á því hvernig staðið var að þeirra málum og að þeir hafi verið rang­lega sak­felldir og sætt langri fang­els­is­vist.

En mál þetta lýtur að fleiri sak­born­ingum í mál­unum, sem sættu rann­sókn og gæslu­varð­haldi, sem á sér vart hlið­stæðu í íslenskri rétt­ar­sögu. Erla Bolla­dóttir, ung kona með korna­barn, sætti þannig gæslu­varð­haldi vegna meintrar hlut­deildar í hvarfi Geir­finns Ein­ars­sonar frá byrjun maí­mán­aðar 1976 og fram að jólum sama ár. Aðstæður sem gæslu­föngum voru búnar á þeim tíma voru sér­lega erf­iðar, eins og dómar hafa stað­fest. Erla var sýknuð af ákæru fyrir aðild að hvarfi Geir­finns Ein­ars­sonar með dómi Hæsta­réttar 1980 og féll því ekki undir sýknu­dóm Hæsta­réttar á árinu 2018, og því ekki undir þær ráð­staf­anir sem ríkið ákvað að grípa til í kjöl­far hans. Er staða Erlu því sér­stök meðal sak­born­ing­anna í mál­inu. Lengd frels­is­svipt­ingar hennar meðan á rann­sókn Geir­finns­máls­ins stóð og aðstæður sem henni og barni hennar voru búnar á þeim tíma eru for­dæma­lausar. Í því skyni að leiða til lykta þessi mál, að því er fyrrum sak­born­inga varðar, þykir eðli­legt og sann­gjarnt að biðja Erlu sér­stak­lega afsök­unar á þeirri með­ferð sem hún mátti þola og afleið­ingum hennar. Þá þykir og sann­gjarnt, þó svo að langt sé um liðið, að Erla fái sam­hliða greiddar bætur vegna frels­is­svipt­ingar sinnar í gæslu­varð­haldi til sam­ræmis við bætur sem Lands­réttur ákvarð­aði sak­born­ingum sem sýkn­aðir voru af sökum varð­andi manns­hvörfin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

geirfinnsmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár