Góð orð eru eitt – en aðgerðirnar telja

Formaður KÍ gerir upp árið sem nú er að líða en hann segir að allur árangur sem næst í skóla­kerf­inu byggi á frammi­stöðu kenn­ar­ans í stof­unni með nem­endum sínum. Starfs­kjörin verði að vera í sam­ræmi við þá ábyrgð sem honum er falin.

Árið 2022 hófst á rök­réttu fram­haldi þess árs sem kvaddi að því leyti að fyrstu vikur og mán­uðir árs­ins urðu einir þeir stærstu í COVID-fár­inu öllu sem stýrt hefur flestu í okkar veru­leika síð­ustu ár. Það var nokkuð umdeilt hjá rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur að taka þá ákvörðun að halda skólum að fullu opnum og í raun þar með hleypa veirunni á fulla ferð með það að leið­ar­ljósi að ná því hjarð­ó­næmi sem horft var til að tæk­ist. Enn á ný mætti íslenska skóla­kerfið þeirri áskorun þó þar hafi farið lík­lega sú stærsta í öllum far­aldr­inum. Enda ansi stór hópur nem­enda, kenn­ara og ann­ars starfs­fólks skól­anna sem veikt­ist af veirunni á þessu tíma­bili með öllu því raski sem að sjálf­sögðu fylgdi. Áfram var þó aldan stigin í ólgu­sjónum með því æðru­leysi og hug­rekki sem ein­kenndi störf íslenskra kenn­ara í gegnum far­ald­ur­inn. Ég veit að heims­byggðin tók eftir því fram­taki og í raun þeirri dirfsku sem fylgdi því að leiða skóla­starf í heims­far­aldri. Það er alger­lega á hreinu að það gerði eng­inn betur á heims­vísu en íslenskir kenn­arar og vert að hrósa þeim enn á ný fyrir það!

Það verður auð­vitað ekki litið fram­hjá því að svo langt tíma­bil, eða um þrjú skólaár hefði að ein­hverju leyti hafði áhrif á nám, annað væri ein­fald­lega óhugs­andi. Hætta á þekk­ing­argapi er mikil í slíkum aðstæðum þar sem enda­laust er verið að færa til í áætl­unum og stökkva til þegar breyt­ingar verða í umhverf­inu og laga kennslu­að­ferðir og námsum­hverfi eftir síbreyti­legum þörfum. Nemendur og kenn­arar voru sumir oft og lengi frá vegna veirunnar og það gefur auga leið að slíkt ástand hefur áhrif. Mik­il­vægt er að koma til móts við þá stað­reynd innan skóla­kerf­is­ins á þann hátt að nem­endur fái það nám sem þeim ber og vinni gapið upp.

Áhrif innrásar Rússa á skólasamfélagið

Þegar veiru­hramm­ur­inn sleppti af okkur tak­inu breytt­ist heims­mynd okkar af völdum inn­rásar Rússa í Úkraínu. Skyndi­lega var skollið á alls­herj­ar­stríð milli tveggja þjóða í Evrópu miðri. Það var svo sann­ar­lega von mín að slík átök væru að baki og að mann­kynið hefði í raun lært af þeim hremm­ingum og við­bjóði sem stríð hafa fært en því miður er svo ekki. Grimmd inn­rás­ar­hers Pútíns jafn­ast á við þau grimmd­ar­verk sem við höfum hryllt okkur við þegar við heyrum frá­sagnir af þeim, lesum um þær eða sjáum myndefni, heim­ildir eða leiknar myndir sem birta dauða, pynd­ingar og áföll af ólíku tagi. Ekki bara þeirra sem klæð­ast her­manna­bún­ingum með byssu á öxl, heldur enn fremur á meðal almennra borg­ara sem verða fyrir illsku inn­rás­ar­hers­ins.

[adspot]

Í starfi mínu fæ ég að kynn­ast verkum úkra­ínskra kenn­ara og þeim við­brögðum sem nágrannar lands­ins hafa gripið til svo að hægt sé að koma til móts við börn í þeim hörm­ungum. Bæði þau sem mæta í skól­ana sína í Úkraínu, sem sumir eru illa farnir eftir árásir, vit­andi það að með engum fyr­ir­vara verði þau mögu­lega að flýja í kjall­ara skóla­húss­ins eða í nágrenni þess ef að rúss­neski björn­inn ákveður að velja skól­ann þeirra sem skot­mark. Svo líka þau sem hafa flúið landið sitt með mæðrum sínum, eða jafn­vel ein, til að halda lífi. Við Íslend­ingar höfum fengið það hlut­verk að taka á móti mörgum þess­ara barna og það er ein­fald­lega skylda okkar sem þjóð sem þekkir sem betur fer lítið af þeim hörm­ungum sem stríð valda, að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma til móts við þessi börn. Það eru svo sann­ar­lega nágrannar Úkraínu að gera þar sem tug­þús­undir barna hafa leitað í skjól sem þau vona að verði tíma­bundið á meðan ofrík­is­draumar vald­hafa í Moskvu ráða þar ríkjum. Kennarar í nágranna­ríkjum hika enda ekki við að benda okkur sem vestar búum á það að rúss­neski björn­inn sé ekk­ert að gera óvart, hann leiti í úrelta stjórn­ar­hætti herra­rík­is­ins sem landið áður var og horfi til fleiri voða­verka hjá öðrum löndum ef ekki verði hann stopp­aður af. Vonandi sér fyrir enda hörm­ung­anna á nýju ári!

Sveitarstjórnarkosningar og áhrif þeirra á yngstu skólastigin

Árið 2022 inni­hélt sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar en á þeim vett­vangi eru teknar ákvarð­anir sem varða tvö yngstu skóla­stigin, leik- og grunn­skóla­stigið. Mála­flokk­ur­inn er risa­vax­inn hluti útgjalda sveit­ar­fé­lag­anna og segja má að umræðan um hug­mynda­fræði og útfærslupæl­ingar varð­andi skóla­starf hafi verið nokkur, þó ég per­sónu­lega hefði viljað sjá umræð­una fara lengra og dýpra. Hún var ein­fald­lega svo­lítið fra­sa­kennd og í raun hver að apa upp eftir öðrum. Áheit um að efla ákveðna þætti án útskýr­inga á því hvernig árangrinum yrði náð, fyr­ir­sagnaum­ræða um leik­skóla frá tólf mán­aða aldri fyrir öll börn, aukna sér­fræði­þjón­ustu við skóla­stigin og oft klifað á að efla metn­að­ar­fullt skóla­starf.

Kosn­ing­arnar gengu yfir og haustið kom ... en með svip­uðum verkum og við höfum áður séð. Auðvitað breyt­ist lítið á þremur mán­uðum. Vænt­ingar voru að ekki yrði bara farið í að segja hlut­ina heldur horf frek­ari til lang­tíma­lausna. Það er auð­vitað hið besta mál og auð­vitað það sem þarf en þá hefði að mínu mati einmitt verið gott að fá þá umræðu líka fyrir kosn­ingar. Skoða til dæmis það hvort að við sem sam­fé­lag erum í alvöru á því að börnum sé fyrir bestu að vera átta klukku­stundir utan heim­ilis alla virka daga frá tólf mán­aða aldri. Eða er það til þess fallið að skila börnum sem bestum lífs­gæðum? Skoða, hvað grunn­skól­ana varðar, hvort brýn­asta verk­efnið sé ekki það að börn og kenn­arar upp­lifi skól­ana sína sem örugga vinnu­staði þar sem þeim eru fengnar þær bjargir sem óskað er eftir frekar en að upp sé slegið fyr­ir­sögnum sem ætlað er að rífa niður það starf sem skilar börn­unum okkar út í lífið.

Þessi börn koma svo upp í fram­halds­skóla sem hefur á síð­ustu árum gjör­breyst. Þar má horfa til tveggja stórra þátta; ann­ars vegar er það nú þannig að nær 100 pró­sent nem­enda mæta haustið eftir tíunda bekk inn í fram­halds­skól­ana. Langstærsti hlut­inn er til­bú­inn að mæta þeim kröfum sem til þeirra eru þar gerðar. Þó er það svo að margir þeirra sem fengu öfl­uga aðstoð við námið sitt í grunn­skól­anum verða af því á næsta skóla­stigi, þar sem því miður hefur ekki tek­ist að yfir­færa stuðn­ing­inn upp á næsta skóla­stig. Auðvitað þarf að taka umræðu um sam­ræm­ingu skóla­stig­anna en það þýðir ekki að við eigum að loka aug­unum fyrir því að kveðja nem­endur að vori úr grunn­skóla sem við vitum að munu ekki ráða við fram­halds­skóla­nám á þeim nótum sem nú er unnið og löngu tíma­bært að styrkja stoð­kerfin þar!

Hin breytan er svo stytt­ing fram­halds­skól­ans, sem lagt var upp með fyrir nokkrum árum, að færa við­miðið úr fjórum árum í þrjú (þó að vissu­lega það hafi verið hægt áður og enn sé ekk­ert mál að vera fjögur ár að klára) og keyra námið hraðar áfram. Hug­myndin var að nem­endur yrðu þá fyrr komnir í frekara nám eða út á vinnu­mark­að­inn en hvar stöndum við í dag? Var þessi breyt­ing til góðs? Er ekki kom­inn tími til að skoða það hvort námið er eins upp­byggj­andi og það var og hvort líðan nem­enda sé betri, eða jafn­vel verri? Til­finn­ingin er að þriggja ára námið hafi kallað á meira námsá­lag á kostnað félags­legra þátta (þó auð­vitað COVID hafi líka haft þar áhrif). Það er að sjálf­sögðu mik­il­vægur hluti, hinn félags­legi þroski, sem síð­tán­ingar fá aðstoð við í fram­halds­skól­anum sínum, hvort sem er sem virkir leið­togar eða þátt­tak­endur í félags­starfi. Námið skiptir máli, en það gera líka leikklúb­b­arnir, kór­a­starfið, félags­legu klúb­b­arnir og skemmt­an­irnar sem tengj­ast fram­halds­skól­anum. Þar er líka á ferð menntun! Við skulum vera óhrædd við að rýna þessa aðgerð til gagns.

Á haust­dögum hófst víð­tækt sam­ráð leitt af mennta- og barna­mála­ráð­herra, Ásmundi Einari Daðasyni, þar sem ætl­unin er búa til heild­stæða skóla­þjón­ustu sem leiða á mál­efni nem­enda frá inn­komu í leik­skóla til útskriftar í fram­halds­skóla. Verk­efnið er sann­ar­lega stórt og á sama tíma göf­ugt og löngu tíma­bært að taka það sam­tal á dýpt­ina hvernig við sem sam­fé­lag getum styrkt námsum­hverfi barna og tryggt þeim þá far­sæld sem fylgir gæða­menntun. Verk­efnið og vinnan heldur áfram á næsta ári og hug­ur­inn til góðra verka er mik­ill. Hann er alltaf mik­il­vægur en orðum þurfa svo að fylgja aðgerðir – það eru þær sem telja!

Kjör, kaup og kröfur til kennara

Árslok hafa svo ein­kennst af kjara­samn­inga­gerð með öllu því sem henni fylgir. Árið hefur verið erfitt fyrir hag­sæld sam­fé­lags­ins okkar, verð­bólga á ferð og vaxta­stig stöðugt hækkað. Heimilin hafa fundið fyrir því og það hittir að venju fyrir efna­minnsta fólkið okkar og enn á ný sér ungt fólk greiðslu­byrði vegna sjálf­sagðra hluta eins og hús­næð­is­kaupa fjúka upp. Einhvern veg­inn er okkur ekki að takast að höndla þá ótemju sem lítið hag­kerfi eins og okkar er og þær hag­sveiflur sem fylgja því. Kjara­samn­ingar verða þá oft til þess að draga úr kaup­mátt­ar­hruni, redda því sem reddað verður, frekar en að fara á undan og leiða hið efna­hags­lega verk­efni. Þeir samn­ingar sem und­ir­rit­aðir voru eru einmitt slíkir samn­ingar og virð­ast koma að miklu leyti til móts við kaup­mátt­ar­brun­ann á árinu og því sem virð­ist framundan. Um er að ræða samn­inga á hinum almenna mark­aði og nú er sá opin­beri framundan. Þar verður ekki horft til slíkra kjara enda nú kom­inn tími á að efndur verði sá samn­ingur sem und­ir­rit­aður var árið 2016, samn­ingur sem þýddi jöfnun líf­eyr­is­rétt­inda milli mark­aða, og dró úr ákveðnum rétt­indum opin­berra starfs­manna þá þegar, en stað­festi að launa­kjör yrðu jöfnuð. Nú sex árum seinna hefur sam­komu­lagið ekki enn verið efnt og við það verður ekki unað lengur. Það er auð­vitað þannig að opin­berir starfs­menn þekkja ábyrgð sína á efna­hags­legri fram­vindu sam­fé­lags­ins en það mis­rétti sem ríkt hefur í launa­setn­ingu er ein­fald­lega óþol­andi og verður ekki unað við lengur.

Það er nefni­lega ekki nóg að hampa sem dæmi kenn­urum sem halda uppi besta skóla­starfi í sögu­legum heims­far­aldri, nú eða gera kröfur um gæða­starf með börnum þar sem þau finna far­sæld í námi sínu og þrosk­ist á fjöl­breyttan hátt. Allur árangur sem við náum í skóla­kerf­inu byggir á frammi­stöðu kenn­ar­ans í stof­unni með nem­endum sínum. Starfs­um­hverfið bygg­ist á virð­ingu fyrir verk­efn­inu og starfs­kjörin verða að vera í sam­ræmi við þá ábyrgð sem honum er falin.

Á næsta ári er komið að því að við sem sam­fé­lag stígum það skref að lyfta skóla­starfi á þann stall sem því ber og tryggja kenn­urum það sem þarf til að árangur þess verði enn betri en nú. Stór þáttur í því er að staðið verði við lof­orðið frá 2016 um jöfnun launa milli mark­aða – þar er að finna allan þann metnað sem þarf til að byggja verk­efnið á.

Megi árið 2023 verða okkur öllum gjöf­ult – takk fyrir árið 2022!

Höfundur er for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár