Sameinað sveitarfélag yrði „sterkari rödd frá sunnanverðum Vestfjörðum“

Óform­legar við­ræður um sam­ein­ingu Tálkna­fjarð­ar­hrepps og Vest­ur­byggðar eru hafnar. Sam­göngu­bætur eru eitt helsta bar­áttu­mál beggja sveit­ar­fé­laga í dag „og stærra sveit­ar­fé­lag og sterkara,“ segir Þórdís Sif Sig­urð­ar­dóttir, bæj­ar­stjóri í Vest­ur­byggð.

Sveitar- og bæjarfulltrúar og sveitar- og bæjarstjórar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps fóru í vettvangsferð ásamt fulltrúum KPMG í haust.
Sveitar- og bæj­ar­full­trúar og sveitar- og bæj­ar­stjórar Vest­ur­byggðar og Tálkna­fjarð­ar­hrepps fóru í vett­vangs­ferð ásamt full­trúum KPMG í haust. Mynd: Aðsend

„Það þarf að passa sig á því að horfa hlut­laust á verk­efnið, draga fram stað­reyndir en ekki til­finn­ingar þeirra sem vinna að verk­efn­inu. Við erum líka að tala um að sam­eina sveit­ar­fé­lögin en ekki sam­eina annað sveit­ar­fé­lagið hinu, sem er mjög mik­il­vægt í umræð­unni.“

Þetta segir Þórdís Sif Sig­urð­ar­dóttir, bæj­ar­stjóri Vest­ur­byggðar, um þau tíð­indi að óform­legar við­ræður um sam­ein­ingu sé hafnar milli sveit­ar­fé­lags­ins og nágranna­byggð­ar­innar Tálkna­fjarð­ar­hrepps.

[adspot]

„Aukinn íbúa­fjöldi er ákveðið tæki­færi, en stærra sveit­ar­fé­lag er sterkara, það yrði sterk­ari rödd frá sunn­an­verðum Vest­fjörðum,“ svarar hún spurð um kosti sam­ein­ingar. „Það ætti að nást breið­ari þjón­usta við íbúa og sterk­ari inn­viðir. Sam­göngu­úr­bætur milli byggða­kjarn­anna mun skipta sköpun fyrir íbúa svæð­is­ins. Enn fremur yrði lögð meiri áhersla á íbúa­lýð­ræði í sveit­ar­fé­lög­unum en hefur verið hingað til, með stofnun heima­stjórna að fyr­ir­mynd Múla­þings.“

Árið 1994 var kosið um sam­ein­ingu allra sveit­ar­fé­laga á sunn­an­verðum Vest­fjörðum, þ.e.a.s. Bíldu­dals­hrepps, Tálkna­fjarð­ar­hrepps, Pat­reks­hrepps og Rauða­sands­hrepps. Í atkvæða­greiðslu felldu Tálkn­firð­ingar til­lög­una og úr varð að sam­eina öll sveit­ar­fé­lögin sem tóku þátt í atkvæða­greiðsl­unni að und­an­skildum Tálkna­fjarð­ar­hreppi, í nýtt sveit­ar­fé­lag, Vest­ur­byggð.

Nokkrar þreif­ingar hafa verið um margra ára skeið um frek­ari sam­ein­ingar á Vest­fjörðum, en á árinu 2021 fóru að skýr­ast ein­hverjar leiðir og m.a. var farið í könnun á hag­kvæmni sam­ein­ingar Tálkna­fjarðar og Vest­ur­byggðar.

Í lok síð­asta árs sendi Tálkna­fjarð­ar­hreppur beiðni um óform­legar við­ræður um sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga til allra sveit­ar­fé­lag­anna á Vest­fjörðum, að und­an­skildum Ísa­fjarð­arbæ. Gerist þetta eftir að Tálkna­fjarð­ar­hreppur hafn­aði óform­legum sam­ein­inga­við­ræðum við Vest­ur­byggð ein­göngu þar sem vilji var til að kanna hug fleiri sveit­ar­fé­laga til sam­ein­ingar, útskýrir Þórdís.

„Vest­ur­byggð svar­aði beiðni þeirra á þá leið að sveit­ar­fé­lagið væri til­búið til að ræða sam­ein­ing­ar­vilja Vest­ur­byggðar og Tálkna­fjarð­ar­hrepps, hefði Tálkna­fjarð­ar­hreppur áhuga á að taka upp óform­legar við­ræður aðeins við Vest­ur­byggð,“ segir hún. Tálkna­fjarð­ar­hreppur ákvað svo í upp­hafi árs að vísa til­lögu um sam­ein­inga­við­ræður sveit­ar­fé­lag­anna tveggja til ákvörð­unar nýrrar sveit­ar­stjórnar eftir kosn­ingar. Ný sveit­ar­stjórn Tálkna­fjarð­ar­hrepps sam­þykkti svo sam­hljóða að taka upp óform­legar við­ræður við bæj­ar­stjórn Vest­ur­byggðar um sam­ein­ingu sveit­ar­fé­lag­anna tveggja. Óform­legar við­ræður um sam­ein­ingar hófust því í haust.

Mikið samstarf nú þegar

„Mjög mikið og gott sam­starf hefur verið und­an­farin á á milli Vest­ur­byggðar og Tálkna­fjarð­ar­hrepps, sam­starf um starfs­fólk, þjón­ustu og nefndir er þegar til staðar,“ segir Þórdís.

[adspot]

Í fyrra var gerð könnun á hag­kvæmni sam­ein­ingar sveit­ar­fé­lag­anna, ann­ars vegar á vegum Tálkna­fjarð­ar­hrepps og hins vegar Vest­ur­byggðar, en í því ferli voru m.a. haldnir íbúa­fundir. „Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar er að helstu bar­áttu­málin eru bættar sam­göngur og þar helst jarð­göng milli byggða­kjarna, undir Mikladal sem er á milli Pat­reks­fjarðar og Tálkna­fjarðar og undir Hálfdán sem er milli Tálkna­fjarðar og Bíldu­dals,“ segir Þórdís. „Með bættum sam­göngum verður til sterkara sveit­ar­fé­lag og auð­veld­ara að ferð­ast innan sama atvinnu­sókn­ar­svæðis.“

Íbúar hafa lokaorðið

Þórdís segir að enn sem komið er hafi hugur íbúa aðeins verið kann­aður óform­lega á íbúa­fund­unum í fyrra. En verði ákveðið að fara í form­legar sam­ein­inga­við­ræður verður kosið um sam­ein­ingu sveit­ar­fé­lag­anna.

„Sveit­ar­stjórnir beggja sveit­ar­fé­lag­anna þurfa að taka ákvörðun um það ef að óform­legar sam­ein­ing­ar­við­ræður verði að form­legum við­ræðum,“ segir hún. Það gæti t.d. gerst í fram­haldi af til­lögu verk­efna­stjórnar um slíkt. „Verði við­ræð­urnar form­legar mun það alltaf enda með að íbúar kjósi um sam­ein­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár