Flestir treysta Kristrúnu

Spurt var: Hvaða for­manni íslenskra stjórn­mála­flokka treystir þú best? Flestir svör­uðu: Kristrúnu Frosta­dóttur, for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar. Katrín Jak­obs­dóttir er í öðru sæti.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Baldur Kristjánsson

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er sá stjórn­mála­leið­togi sem lands­menn treysta best sam­kvæmt nýrri könnun Prósents. Nið­ur­stöð­urnar eru birtar í Frétta­blað­inu í dag. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, er sá leið­togi sem næst­flestir treysta og á hæla hennar kemur Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

[adspot]

Katrín Jak­obs­dóttir hefur líkt og rifjað er upp í Frétta­blað­inu lengi verið sá stjórn­mála­leið­togi sem lands­menn treysta best. Nú bregður svo við að Kristrún nýtur trausts 25,4 pró­senta þeirra sem tóku afstöðu í könn­un­inni en Katrín 17,5 pró­senta. 15,4 pró­sent segj­ast treysta Bjarna Bene­dikts­syni best allra for­manna flokk­anna. 11,3 pró­sent treysta Sigurði Inga Jóhanns­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, mest og 9,7 pró­sent treysta Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, for­manni Við­reisnar, best.

Í Frétta­blað­inu er rifjað upp að í októ­ber í fyrra, rétt fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar, hafi 57,6 pró­sent lands­manna viljað Katrínu Jak­obs­dóttur sem for­sæt­is­ráð­herra sam­kvæmt könnun Maskínu. Enginn annar leið­togi náði 10 pró­sentum í þeirri könnun.

Stuðningur út fyrir raðir Samfylkingarfólks

Fyrir utan yfir­gnæf­andi stuðn­ing innan Sam­fylk­ing­ar­innar nýtur Kristrún sam­kvæmt könnun Prósents nú umtals­verðs stuðn­ings kjós­enda ann­arra flokka. 53 pró­sent kjós­enda Sós­í­alista­flokks­ins treysta henni best, svo dæmi sé tekið og 23 pró­sent þeirra sem kjósa Viðreisn.

Katrín er sá for­maður sem nýtur mests stuðn­ings innan eigin flokks sam­kvæmt könn­un­inni en 90 pró­sent kjós­enda VG treysta henni best. Katrín nýtur einnig stuðn­ings 15 pró­senta sjálf­stæð­is­manna, 14 pró­senta sós­í­alista og 13 pró­senta fram­sókn­ar­manna.

72 pró­sent sjálf­stæð­is­manna treysta Bjarna best. Samkvæmt Frétta­blað­inu hefur nær engan stuðn­ing út fyrir sinn flokk­inn, nema 7 pró­sent hjá kjós­endum Mið­flokks­ins.

Katrín er sá for­maður sem nýtur mests traust hjá ungu fólki en Kristrún hefur mestan stuðn­ing hjá kjós­endum 55 ára og eldri.

Könnun Prósents var gerð 14. til 17. nóv­em­ber. Úrtakið var 2.600 og svar­hlut­fallið 51,3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár