Síminn vill greiða hluthöfum 31,5 milljarða vegna sölunnar á Mílu – og svo sennilega meira

Franska fyr­ir­tækið Ardian er búið að gera upp við Símann vegna kaupanna á Mílu. Síminn ætlar að leggja til­lögu um að greiða hlut­höfum 31,5 millj­arða króna af sölu­and­virð­inu fyrir hlut­hafa­fund í lok októ­ber.

Orri Hauksson, forstjóri Símans.
Orri Hauksson, for­stjóri Símans. Mynd: Nasdaq Iceland

Hlut­hafar Símans munu taka afstöðu til þess undir lok októ­ber­mán­aðar hvort lækka skuli hlutafé félags­ins um 31,5 millj­arða króna og greiða þá upp­hæð út til hlut­hafa, í kjöl­far þess að fyr­ir­tækið fékk greiðslu frá franska fyr­ir­tæk­inu Ardian fyrir Mílu.

Þetta kemur fram í kaup­hall­ar­til­kynn­ingu frá Símanum í dag, en þar segir að Síminn hafi fengið greitt að fullu fyrir Mílu. Ardian greiddi ann­ars vegar 32,7 millj­arða króna í reiðufé og svo 17,5 millj­arða króna í formi fram­selj­an­legs skulda­bréfs til þriggja ára.

[adspot]

Stefnt er að því að halda hlut­hafa­fund þar sem afstaða verður tekin til þess­arar 31,5 millj­arða greiðslu til hlut­hafa þann 26. októ­ber.

Einnig segir Síminn frá því að til skoð­unar sé að selja skulda­bréfið eða eftir atvikum greiða and­virði þess út til hlut­hafa, en að gera megi ráð fyrir að til­laga þess efnis verði tekin fyrir á öðrum hlut­hafa­fundi.

Ætlaður sölu­hagn­aður Símans af við­skipt­unum með Mílu er nú sagður 37,8 millj­arðar króna að teknu til­liti til alls kostn­aðar vegna við­skipt­anna og upp­færðrar áætl­unar um veltu­fjár­muni og skuldir Mílu.

Stoðir og lífeyrissjóðir stærstu hluthafar

Fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir var stærsti ein­staki hlut­hafi Símans í lok ágúst, með 15,92 pró­senta hlut. Félagið má því vænta þess að fá rúma 5 millj­arða greidda út ef hlut­hafar Símans sam­þykkja að lækka hlutafé félags­ins með þeim hætti sem lagt er til.

Nær allir aðrir stærstu hlut­hafar Símans eru líf­eyr­is­sjóðir, en Líf­eyr­is­sjóður Verzlunarmanna fer með 11,89 pró­senta hlut, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins með 10,91 pró­sent og Gildi Líf­eyr­is­sjóður á 7,78 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár