Hott hott á kústskafti

Getur það talist íþrótt að hlaupa um með hálft kúst­skaft með heima­gerðan hross­haus á end­anum á milli fót­anna? Já segja finnskar danskar norskar og sænskar stúlkur. Alda­gam­all leikur með reið­prik nýtur vax­andi vin­sælda í þessum löndum.

Margir þekkja sög­una um heim­il­is­að­stæð­urnar hjá henni Grýlu gömlu sem sóp­aði gólfin milli þess sem hún flengdi syn­ina. Þótt í sög­unni sé ekki sagt nánar frá ræst­inga­græj­unum hjá Grýlu má lík­lega full­yrða að hún hafi not­ast við hrís­vönd festan á heima­gert kúst­skaft. Margar sögur eru til af nornum sem, löngu fyrir tíma flug­véla, geyst­ust um him­in­hvolfið á kúst­skafti, í mis­jöfnum erinda­gjörðum. Þekktust norna, sem not­ast hafa við þennan ferða­máta er kannski hin rúss­nesk slav­neska Baba Jaga en af henni eru til ótal „til­gátu­myndir“ þar sem hún ferð­ast um heim­inn.

Þegar skrif­ari þessa pistils var að alast upp, uppúr miðri síð­ustu öld var ein af hetjum hvíta tjalds­ins, og síðar sjón­varps­ins, Roy Rogers (iðu­lega borið fram Roji Roggers) sem kom ríð­andi á hest­inum Trigger og bjarg­aði málum þar sem þörf var á. Hann brast svo gjarnan í söng, við tak­mark­aðar vin­sældir sumra áhorf­enda sem frekar vildu hasar en söng og gít­ar­gutl.

Kústskaftið kom í stað Trigger

Þótt marga íslenska stráka hafi dreymt um að líkj­ast Roy Rogers, að frá­töldum söngnum, var það hæg­ara sagt en gert. Hestar voru ekki í hvers manns eigu og alvöru kúrekar með barða­stóra hatta fyr­ir­fund­ust ekki á Íslandi.

[adspot]Til að geta hermt eftir hetj­unni Roy varð því að grípa til ann­arra ráða. Kúst­sköft var auð­velt að útvega og af því að strákar lærðu ekki sauma­skap á þessum tíma varð að semja við mæður og kannski systur um gerð hauss til að setja á kúst­skaftið. Nauð­syn­legt var talið að á hausnum væri beisl­is­taumur, þá gæti knap­inn haldið í taum­inn með annarri hendi en um skaftið með hinni. Æskilegt væri svo að hafa kúreka­hatt á höfð­inu. Svo var bara að hlaupa af stað með skaftið milli fót­anna. Þetta var það næsta sem hægt var að kom­ast í því að líkja eftir Roy og Trigger. Söngnum yfir­leitt sleppt. Ein­fald­ari, tveggja manna útgáfa án kúst­skafts­ins með hausnum, var dálít­ill snær­is­spotti, bund­inn saman til að mynda lykkju. Lykkj­unni var svo brugðið yfir höfuð og í hand­ar­krika „hests­ins“ og knap­inn hélt í taum­inn. Svo var hlaupið, ekki þótti verra ef „hest­ur­inn“ gat hneggjað og frísað.

Flestir uxu uppúr þess­ari teg­und hesta­mennsku og vin­sældir Roy Rogers dvín­uðu. Kúst­skafts­hest­arnir, eða reið­prikin, máttu dúsa í geymslum og end­uðu gjarna á haug­unum. Dagar þessa leikjar voru að mestu taldir, hér á landi.

Hobbyhorse Revolution

Eft­ir­hermu­leik­ur­inn með kúst­skaftið var þekktur víðar en hér á landi. Og þótt hann hafi að lang­mestu leyti horfið úr íslensku leikjaflór­unni er ekki alls staðar sömu sögu að segja. Í Finn­landi naut hann á árum áður mik­illa vin­sælda og árið 2002 öðl­að­ist hann fyrir alvöru nýtt líf. Það ár stofn­aði áhuga­fólk um reið­prikið Suomi Kepp­ehevos­harrasta­jat ry, finnsku reið­prika­sam­tökin.

Í Finn­landi voru það ekki strákar með Roy Rogers drauma sem ánetj­uð­ust reið­prik­inu heldur stúlkur á aldr­inum 10 – 18 ára. Þótt ýmsum þætti þessi leikur með reið­prikin bæði gam­al­dags og hall­æris­legur breytti það engu. Árið 2017 gerði finnski leik­stjór­inn Selma Vilhunen heim­ilda­mynd um þrjár stúlkur sem léku sér með reið­prik. Þær höfðu mætt ýmsum erf­ið­leikum í líf­inu en fengu útrás í „hesta­mennsk­unni“.Myndin heitir Hobby­horse Revolution, hún vakti mikla athygli í Finn­landi og einnig í nágranna­lönd­unum.

Mikill og vaxandi áhugi

Í Finn­landi eru nú starf­andi mörg félög reið­prika­á­huga­fólks og sömu­leiðis í Svíþjóð, Danmörku og Noregi en í öllum lönd­unum er áhug­inn, sem fer vax­andi eins og í Finn­landi, nær ein­göngu bund­inn við stúlkur. Starf­semi reið­prika­fé­lag­anna hefur ekki farið fram hjá hesta­manna­fé­lögum í lönd­unum fjórum og Samtök danskra hesta­manna hafa til að mynda sent aðild­ar­fé­lög­unum leið­bein­ingar og ráð­legg­ingar varð­andi „Kæp­hester­idn­ing“ eins og það heitir uppá dönsku.

Íþrótt eða leikur

Reið­prika­iðk­endur hafa iðu­lega mætt for­dómum. Fengið að heyra að þetta áhuga­mál geti ekki talist íþrótt heldur leikur fyrir börn og ung­linga. Reið­prika­fólk gefur lítið fyrir slíkt tal, segir reið­prikið sam­eina leik og lík­ams­rækt, slíkt sé öllum hollt.

Árlega eru haldin fjöl­mörg mót þar sem reið­prika­fólk frá lönd­unum fjórum leiðir saman „hesta“ sína. Einnig lands­hluta­mót fyrir utan inn­an­fé­lags­mót Þar er keppt í ýmsum greinum sem sumar líkj­ast þeim sem tíðkast í hefð­bund­inni hesta­mennsku. Dómarar eru iðu­lega fyrr­ver­andi knapar eða fólk sem vant er að dæma á hesta­manna­mótum.

Hönnun og aukahlutir

Margir reið­prika­eig­endur leggja mikið upp úr útliti hauss­ins, sem alltaf skal þó líkj­ast hests­haus, burt­séð frá stærð­inni. Á allra síð­ustu árum hafa sprottið upp fjöl­margar versl­anir sem selja alls kyns hluti sem tengj­ast reið­prika­mennsk­unni, fyrir utan reið­prikin sjálf, efni til hausa­gerðar, beisli o.s.frv. Fyrir reið­prika­eig­endur sem hyggj­ast taka þátt í keppnum skiptir máli að „fák­ur­inn“ sé sem létt­astur og af praktískum ástæðum, til dæmis þegar stokkið er yfir hindrun skal skaftið ekki vera lengra en 40 – 45 senti­metrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hestar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár