Afgreiðslur allra geðlyfja nema róandi og kvíðastillandi lyfja aukist á tíu árum

Afgreiðslur á örvandi lyfjum hafa rúm­lega tvö­fald­ast síð­ast­liðin tíu ár og afgreiðsla þung­lynd­is­lyfja hefur auk­ist um 40 pró­sent. Aðeins afgreiðslum á róandi og kvíða­still­andi lyfjum hefur fækkað ef mið er tekið af öllum geð­lyfjum.

117,5 af hverjum 1.000 íbúum voru afgreidd þunglyndislyf árið 2012 en í fyrra fengu 162,5 af hverjum 1.000 íbúum þunglyndislyf. Fjölgunin nemur tæpum 40 prósentum.
117,5 af hverjum 1.000 íbúum voru afgreidd þung­lynd­is­lyf árið 2012 en í fyrra fengu 162,5 af hverjum 1.000 íbúum þung­lynd­is­lyf. Fjölg­unin nemur tæpum 40 pró­sentum. Mynd: Pexels

Notkun slævandi lyfja og svefn­lyfja, melatóníns, þung­lynd­is­lyfja og örvandi lyfja hefur auk­ist hér á landi síð­ustu tíu ár, á meðan dregið hefur úr notkun róandi og kvíða­still­andi lyfja, ef mið er tekið af afgreiðslu lyfja. Þetta er meðal þess sem fram kemur í fyr­ir­spurn Evu Sjafnar Helga­dóttur, vara­þing­manns Pírata, til heil­brigð­is­ráð­herra um notkun geð­lyfja.

Í svar­inu eru gefnar upp tölur um fjölda not­enda á hverja 1.000 íbúa. Þannig voru 117,5 af hverjum 1.000 íbúum afgreidd þung­lynd­is­lyf árið 2012 en árið 2021 fengu 162,5 af hverjum 1.000 íbúum þung­lynd­is­lyf. Fjölg­unin nemur því 38,3 pró­sentum.

Konur fá þung­lynd­is­lyf afgreidd í rík­ara mæli og fjölg­aði afgreiðslum úr 150 á hverja 1.000 íbúa í 213,3 frá 2012 og nemur fjölg­unin 42,2 pró­sentum. Fjölg­unin hjá körlum er 33,9 pró­sent, úr 85,2 afgreiðslum á hverja 1.000 íbúa árið 2012 í 114,1 afgreiðslur á hverja 1.000 íbúa í fyrra.

Afgreiðslu örvandi lyfja fjölgað mest hjá 40-66 ára

Fjölgun afgreiðslna örvandi lyfja, svo sem ADHD-lyfja, fór á sama tíma úr 19,1 skammti á hverja 1.000 íbúa í 50,4 skammta. Afgreiðslum fjölg­aði í öllum ald­urs­hópum, þó minnst hjá yngsta ald­ur­hópnum, 0-17 ára, en mest hjá næstelsta ald­urs­hópnum, 40-66 ára. Árið 2021 fengu 78,7 af hverjum 1.000 börnum á aldr­inum 0–17 ára afgreidd örvandi lyf, sam­an­borið við 35,9 af hverjum 1.000 börnum árið 2012.

Afgreiðslum örvandi lyfja fjölg­aði enn frekar í ald­urs­hóp­unum þar fyrir ofan. Árið 2021 fengu 65,6 af hverjum 1.000 íbúum á aldr­inum 18-39 ára afgreidd örvandi lyf, rúm­lega þrefalt fleiri en árið 2012 þegar 21,3 af hverjum 1.000 íbúum á sama aldri fengu afgreidd örvandi lyf. Fjölg­unin er enn meiri, hlut­falls­lega, í ald­urs­hópnum 40-66 ára. Árið 2012 fengu 9,5 af hverjum 1.000 íbúum afgreidd örvandi lyf en í fyrra var fjöld­inn kom­inn upp í 34,3 af hverjum 1.000 íbúum.

Ekki haldið utan um samfellda notkun einstaklinga á geðlyfjum

Eva Sjöfn spurði einnig hversu lengi við­kom­andi ein­stak­lingar hafa notað til­tekin geð­lyf að með­al­tali. Í svari heil­brigð­is­ráð­herra kemur fram að ekki er haldið sér­stak­lega utan um þess konar upp­lýs­ingar í lyfja­gagna­grunni hjá Embætti land­læknis, heldur er farin sú leið að reikna með­al­fjölda skil­greindra dag­skammta á hvern not­anda á ári fyrir til­tek­inn lyfja­flokk.

Skil­greindur dag­skammtur lyfs, DDD (e. Defined Daily Dose), er ætl­aður með­al­tals dag­legur við­halds­skammtur við helstu ábend­ingu hjá full­orðnum. Þannig má ætla að 1 skil­greindur dag­skammtur lyfs sam­svari einum degi í notkun af til­teknu lyfi.

Árið 2012 var með­al­fjöldi dag­skammta á hvern not­anda af róandi og kvíða­still­andi lyfjum 114,1 en árið 2021 var með­al­fjöldi dag­skammta á hvern not­anda 99,8. Í öllum öðrum flokkum hefur afgreiðslum fjölgað milli ára.

Árið 2012 var með­al­fjöldi dag­skammta á hvern not­anda af slævandi lyfjum og svefn­lyfjum 231,9 en árið 2021 var með­al­fjöldi dag­skammta 255,3. Fjölgun á ávís­unum á melatónín fór úr 158,6 dag­skömmtum á hvern not­anda árið 2012 í 269,7. Í svari ráð­herra er vakin athygli á því að melatónín er frá­brugðið öðrum svefn­lyfjum að því leyti að það er ekki ávana­bind­andi.

Með­al­fjöldi dag­skammta þung­lynd­is­lyfja fjölg­aði úr 327 árið 2012 í 365,6 árið 2021, eða um 11,8 pró­sent. Með­al­fjölda dag­skammta örvandi lyfja fjölg­aði á sama tíma um 3,6 pró­sent, úr 364,7 skömmtum í 378.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár