Forstjóri Festi fær um fimmtánföld mánaðarlaun greidd út við starfslok

Kostn­aður Festi vegna starfs­loka for­stjór­ans Eggerts Þórs Krist­ó­fers­sonar verður um 76 millj­ónir króna, sam­kvæmt því sem fram kemur í skýrslu stjórnar sem fylgdi árs­hluta­upp­gjöri félags­ins í gær.

Eggert Þór Kristófersson hættir sem forstjóri Festi hf. um helgina.
Eggert Þór Krist­ó­fers­son hættir sem for­stjóri Festi hf. um helg­ina. Mynd: Festi

Kostn­aður Festi hf. vegna starfs­loka­samn­ings við Eggert Þór Krist­ó­fers­son for­stjóra félags­ins nemur um 76 millj­ónum króna og verður hann allur bók­fræður á þriðja árs­fjórð­ungi. Þetta kemur fram í skýrslu nýskip­aðrar stjórnar í árs­hluta­upp­gjöri félags­ins, sem birt var síð­degis í gær.

Starfs­loka­samn­ingur við Eggert Þór var und­ir­rit­aður 2. júní og tekur upp­sögn hans gildi 31. júlí. Miðað við þann 76 millj­óna kostnað sem stjórn Festi áætlar mun Eggert Þór við starfs­lokin fá greiðslu sem nemur um fimmtán mán­að­ar­launum hans. Þá er miðað við með­al­mán­að­ar­laun for­stjór­ans eins og þau voru í fyrra, en þá voru þau um 4,9 millj­ónir króna.

Í skýrslu stjórnar í árs­hluta­reikn­ingnum segir um upp­sögn for­stjór­ans að stjórn­inni hafi þótt kom­inn tími á að skipta um for­stjóra þar sem félagið, sem á meðal ann­ars N1, Krónuna og Elko, stæði á ákveðnum kross­götum.

[adspot]

Sú skýr­ing er, eins og frægt hefur orðið, önnur en sú sem hlut­höfum félags­ins og öðrum þáttak­endum á mark­aði var boðið upp á til­kynn­ing barst frá Festi um starfs­lok Eggerts Þórs í byrjun júní. Þá yfir­lýs­ingu mátti skilja sem svo að frum­kvæðið að starfs­lok­unum hefði komið frá for­stjór­anum sjálfum. Olli það úlfúð innan hlut­hafa­hóps­ins og leiddi til þess að farið var fram á nýtt stjórn­ar­kjör í Festi, sem fram fór 14. júlí.

Þar tóku þrír nýir stjórn­ar­menn sæti, þau Magnús Júl­í­us­son, Sig­ur­lína Ingv­ars­dóttir og Hjör­leifur Páls­son, en af fyrrum stjórn­ar­mönnum héldu ein­ungis stjórn­ar­for­mað­ur­inn Guðjón Reyn­is­son og Margrét Guð­munds­dóttir sætum sínum í stjórn félags­ins.

Er Eggert Þór hættir störfum núna í lok mán­aðar tekur Magnús Kr. Ingason fjár­mála­stjóri félags­ins tíma­bundið við starfi for­stjóra Festi.

Rekstur Festi með ágætum

Festi hagn­að­ist um rúm­lega 1,3 millj­arða króna á öðrum árs­fjórð­ungi, eða frá lokum mars og fram í lok júní. Í til­kynn­ingu frá félag­inu um afkom­una var haft eftir Eggerti Þór að rekst­ur­inn hefði gengið vel og verið umfram áætl­anir stjórn­enda félags­ins.

„N1 eykur veltu sína og afkomu veru­lega á milli ára með fjölgun erlendra ferða­manna og auknum umsvifum hjá stórum við­skipta­vinum félags­ins. Rekstur ELKO og Krón­unnar var einnig góður á öðrum árs­fjórð­ungi. Hækkun á elds­neyti og mat­vöru eykur fjár­bind­ingu í birgðum veru­lega miðað við sama fjórð­ung í fyrra, sem er afleið­ing stríðs­rekst­urs í Úkraínu og alþjóð­legrar verð­bólgu,“ var haft eftir Eggerti Þór í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár