Harmleikurinn í Field‘s

Hátt á annað þús­und manns hafa leitað sér­fræði­að­stoðar í kjöl­far voða­verk­anna í vöru­hús­inu Field´s í Kaup­manna­höfn 3. júlí. Margir spyrja sig hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir að sá grun­aði gripi til örþrifa­ráða sem kost­uðu þrjú manns­líf.

Fjölmennt var á minningarathöfn um fórnarlömb skotárásarinnar í síðustu viku.
Fjöl­mennt var á minn­ing­ar­at­höfn um fórn­ar­lömb skotárás­ar­innar í síð­ustu viku. Mynd: EPA

Sunnu­dag­ur­inn 3. júlí 2022 líður Dönum lík­lega seint úr minni. Ekkert benti til að þessi sól­ar­dagur þar sem Danir á öllum aldri nutu veð­ur­blíð­unnar yrði öðru­vísi en margir aðrir góð­viðr­is­dagar. Eins og ævin­lega um helgar voru mörg þús­und manns í vöru­hús­inu Field´s á Amager í Kaup­manna­höfn.

Field´s er eitt stærsta vöru­hús á Norð­ur­löndum, þar eru um það bil 140 versl­anir, 22 veit­inga- og kaffi­staðir, ball­ett­skóli, nudd­stofur, jóga­skóli, snyrti­stofur, apó­tek og fleira mætti telja. Field´s var opnað árið 2004 og fyr­ir­fram spáðu margir vöru­hús­inu ekki bjartri fram­tíð, ef svo mætti segja. Svart­sýn­is­spár rætt­ust ekki, og strax fyrstu vik­una komu um það bil 250 þús­und manns í Field´s.

[adspot]

Á þeim 18 árum sem liðin eru frá opnun Field´s hefur ýmis­legt breyst, versl­anir hafa komið og farið. Í ágúst 2015 opn­aði Nordisk Film kvik­mynda­hús í Fields, þar eru níu salir með sætum fyrir 1.400 manns. Í við­tali fyrir nokkrum árum var fram­kvæmda­stjóri Field´s spurður hver væri gald­ur­inn bak­við starf­sem­ina. Hann sagði að til að fólk vildi koma í vöru­hús eins og Field´s þyrfti fjöl­breytni. Nokkrar lyk­il­versl­anir væru nauð­syn og nefndi í því sam­bandi stór­versl­un­ina Bilka, Magasin, H&M, Zara og Elgig­an­ten. Ætíð hefði verið lögð áhersla á að í Field´s væri fjöl­breytt úrval versl­ana, eitt­hvað fyrir alla, og það hefði að sínu mati tek­ist sagði fram­kvæmda­stjór­inn.

Klukkan 17.35 var hringt

Þótt veðrið væri gott þennan sunnu­dag hafði danska lög­reglan víða um land í nógu að snú­ast. Ekki síst varð­andi umferð­ina, þriðji áfangi hjól­reiða­keppn­innar Tour de France var far­inn þennan dag og sömu­leiðis voru margir, sem sótt höfðu Hró­arskeldu­há­tíð­ina, á heim­leið. Þetta var til við­bótar „hefð­bund­inni“ sunnu­dags­um­ferð, eins og varð­stjóri í dönsku lög­regl­unni komst að orði.

Klukkan 17.35 barst lög­reglu til­kynn­ing um skot­hríð í Field´s. Þar gengi vopn­aður maður um og skyti á fólk. Lögregla brást skjótt við og fjöl­mennt lið fór þegar á stað­inn. Þrettán mín­útum síðar hafði lög­reglan hand­tekið 22 ára karl­mann, sem sat á hækjum sér skammt frá Field´s og tal­aði í síma þegar lög­reglan kom að honum, með riffil sér við hlið. Maðurinn situr nú í gæslu­varð­haldi, á lok­aðri rétt­ar­geð­deild.

Þrír létust og tíu særðir

Ekki liggur ljóst fyrir, hve lengi mað­ur­inn var inni í Field´s. Húsið, sem er vel á annað hund­rað þús­und fer­metra á stærð, er á þremur hæðum. Á efstu hæð eru veit­inga­staðir, á annarri hæð versl­anir og kvik­mynda­hús og á jarð­hæð­inni versl­anir. Á upp­tökum og sam­kvæmt fram­burði vitna fór mað­ur­inn nokkuð víða á tveim efstu hæð­unum. Þegar hann fór úr hús­inu hafði hann orðið þremur að bana og sært tíu til við­bótar, þrjá þeirra alvar­lega. Nokkrir hlutu skrámur þegar þeir forð­uðu sér úr hús­inu. Lögregla hóf strax rann­sókn á því sem gerð­ist og hefur þegar talað við fjölda fólks sem var í hús­inu. Sú vinna tekur langan tíma að sögn tals­manns lög­regl­unnar.

Athyglin beinist að geðheilbrigðisþjónustunni

Danska lög­reglan hefur verið spör á upp­lýs­ingar þótt ýmis­legt hafi komið fram. Á frétta­manna­fundi upp­lýsti tals­maður lög­regl­unnar að dönsku geð­heil­brigð­is­þjón­ust­unni hefði verið kunn­ugt um mann­inn sem nú er í haldi, en vildi ekki útskýra það nánar.

Danskir fjöl­miðlar greindu frá því að skömmu áður en mað­ur­inn lét til skarar skríða hafi hann sím­leiðis reynt að ná sam­bandi við neyð­ar­línu geð­heil­brigð­is­mála en þar hefði eng­inn svarað. Þessar fréttir hafa vakið mikla athygli og beint sjónum að stöðu geð­heil­brigð­is­mála í Danmörku.

Rétt meðferð og viðbrögð breyta miklu

Gitte Ahle, rétt­arsál­fræð­ingur og fyrr­ver­andi for­maður dönsku geð­hjálp­ar­sam­tak­anna, Dansk Psyki­atrisk Selskab, skipu­lagði árið 2019 rann­sókn á afbrotum geð­sjúkra. Árið 2016 frömdu geð­sjúkir ein­stak­lingar í Danmörku sam­tals 218 afbrot, þar af voru 13 mann­dráp eða til­raunir til mann­dráps. Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var að unnt hefði verið að koma í veg fyrir 11 til­vik af þessum 13 ef sá sem brotið framdi hefði fengið við­eig­andi hjálp. „Þetta eru slá­andi tölur,“ sagði Gitte Ahle.

Í við­tali við danska útvarpið, DR, sagð­ist Gitte Ahle telja að ástandið í dag væri óbreytt á þeim sex árum sem liðin eru frá rann­sókn­inni. „Umbætur ganga alltof hægt, það er ekki nóg að gera áætl­anir, þær hafa verið gerðar. En þær hafa ekki kom­ist í fram­kvæmd.“

Poul Videbech, pró­fessor í sál­fræði við Hafn­ar­há­skóla sagði í við­tali við danska útvarpið að geð­heil­brigð­is­þjón­ustan í Danmörku ætti í vök að verj­ast. Hann tók fram að hann væri ekki að vísa til þess sem gerð­ist í Field´s. „Við vitum að það eru alltof fá pláss á geð­hjúkr­un­ar­heim­ilum og alltof oft eru sjúk­lingar útskrif­aðir allt of fljótt, til að rýma fyrir öðrum.“

Símaþjónustan takmörkuð vegna fjárskorts

Eins og nefnt var hér að framan hafa fjöl­miðlar greint frá því að mað­ur­inn sem lög­reglan hand­tók eftir ódæðin í Field´s hafi skömmu áður reynt að hringja í neyð­ar­línu geð­heil­brigð­is­mála en eng­inn hafi svarað í sím­ann. Fram hefur komið að vegna fjár­skorts geti síma­þjón­usta neyð­ar­lín­unnar ekki verið opin allan sól­ar­hring­inn og um helgar sé sömu­leiðis lokað. Þetta hefur verið harð­lega gagn­rýnt.

Kosningaloforð orðin tóm enn sem komið er

Úrbætur í geð­heil­brigð­is­málum var meðal kosn­inga­lof­orða jafn­að­ar­manna fyrir þing­kosn­ing­arnar árið 2019. Nú eru þrjú ár liðin af kjör­tíma­bil­inu en ekk­ert bólar á úrbót­unum. Í jan­úar á þessu ári lagði Sund­heds­styrel­sen (hlið­stætt Land­lækn­is­emb­ætt­inu) fram áætlun um úrbætur og aðgerðir í geð­heil­brigð­is­málum en hún hefur ekki enn komið til kasta þings­ins. Þegar heil­brigð­is­ráð­herr­ann var spurður út í þetta á frétta­manna­fundi sagði hann að þetta væri á dag­skrá þings­ins í sept­em­ber.

Margir þing­menn hafa kraf­ist þess að málið verið tekið fyrir strax í næsta mán­uði þegar sum­ar­leyfi þing­manna lýkur. Ráð­herr­ann hefur lýst yfir að hann sé því sam­þykkur. Margir þing­menn hafa í við­tölum við fjöl­miðla sagt að brýnt sé að koma upp sól­ar­hrings síma­þjón­ustu sem þeir sem eigi við geð­rænan vanda að stríða geti haft sam­band við.

[adspot]

Fram hefur komið að vel á annað þús­und manns hafa haft sam­band við neyð­ar­þjón­ustu Rauða kross­ins eftir skotárás­ina í Field´s. Svæð­is­ráð Kaup­manna­hafnar hefur haft tæp­lega 70 sér­fræð­inga til að svara í síma og veita aðstoð þeim sem á þurfa að halda eftir atburð­ina á sunnu­dag. Þeir hafa svarað um það bil eitt þús­und sím­tölum síðan á mánu­dags­morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár