Sífellt stærri hluti íbúa landsins útilokaður frá þátttöku í stjórnmálum

„Hverjir stjórna Íslandi?“ spyr Gylfi Magn­ús­son í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Gylfi Magnússon
Gylfi Magn­ús­son Mynd: RÚV/skjáskot

„Það tor­veldar auð­vitað leið þeirra sem fæddir eru utan Íslands á Alþingi að til þess að kom­ast þangað þarf íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. Búseta dugar ekki. Það er vita­skuld umhugs­un­ar­vert að sífellt stærri hluti íbúa lands­ins er þannig úti­lok­aður frá þátt­töku í stjórn­málum á lands­vísu. Ríflega 50 þús­und búa á Íslandi með erlent rík­is­fang.“

Þetta skrifar Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, í nýj­ustu Vís­bend­ingu.

Hann skoðar meðal ann­ars í grein­inni hvernig lands­menn rað­ast á valda­stóla. „Þannig eru nú rétt tæp­lega 1 af hverjum 5 íbúum Íslands fæddir utan lands­ins. Með hlut­falls­legri skipt­ingu þing­sæta ætti það að þýða að 12 þing­menn væru það líka, þar af 4 fæddir í Póllandi. Það þarf ekki að leggj­ast í tíma­freka rann­sókn á upp­runa íslenskra alþing­is­manna til að átta sig á að því fer fjarri að skipt­ingin sé þannig.“

Gylfi bendir að þrír af núver­andi alþing­is­mönnum séu fæddir í útlöndum, nánar til­tekið einn hver í Stokk­hólmi, Kaup­manna­höfn og París. „Þeir geta þó tæp­lega talist full­trúar inn­flytj­enda, að minnsta kosti bendir skrán­ing for­eldra í sama tali ekki til þess. Inn­flytj­endur hafa þó setið á Alþingi áður fyrr, þótt ekki séu þeir margir. Einn þeirra virt­ist raunar inni á núver­andi þingi í stutta stund eftir síð­ustu kosn­ingar en datt út aftur þegar búið var að telja nógu oft í Borg­ar­nesi.“

Hann segir að 38 af alþing­is­mönn­unum séu fæddir í Reykja­vík, sem sé auð­vitað tals­vert hærra hlut­fall en Reyk­vík­ingar eru af íbúum lands­ins en ekki óeðli­legt sé tekið til­lit til þess að þangað leiti konur úr nágranna­sveit­ar­fé­lög­unum og víðar til að fæða. Það sé kannski skrýtn­ara að sex eða tæp 10 pró­sent núver­andi alþing­is­manna eru fæddir á Akranesi. „Vænt­an­lega er það þó bara til­viljun. En eng­inn alþing­is­maður er fæddur í Varsjá eða Vilníus. Raunar eng­inn fæddur utan Norð­vestur-Evrópu.“

Vantar unga alþingismenn

Gylfi horfir einnig til ald­urs­dreif­ingar þing­manna. „Einn alþing­is­maður er eldri en sjö­tugur en það eru 10 pró­sent íbúa lands­ins og 13 pró­sent þeirra sem eru á kjör­skrá. Miðað við það ættu alþing­is­menn yfir sjö­tugu að vera 8. Það vantar líka unga alþing­is­menn. Tveir þeirra eru undir þrí­tugu en það eru 22 pró­sent kjós­enda sem ætti að skila 14 þing­sætum.

Alþing­is­manna­talið dugar skammt til að flokka þing­menn eftir öðrum sjón­ar­hornum, svo sem kyn­hneigð, trú­ar­brögðum eða í vinstr- og hægr­henta. Það liggur þó fyrir að bæði þing­menn og ráð­herrar hafa komið úr hópi sam­kyn­hneigðra. Þeir eru raunar örugg­lega tals­vert fleiri en vitað er enda héldu menn og konur slíku leyndu lengi vel. Það var mik­ill áfangi þegar sam­kyn­hneigð kona varð for­sæt­is­ráð­herra. Mik­il­vægt skref fyrir bæði konur og sam­kyn­hneigða og auð­vitað þjóð­ina alla. Þegar sá múr hafði verið brot­inn var þó eins og hann skipti eftir það sára­litlu máli, að minnsta kosti er varla nokkur þjóð­mála­um­ræða um kyn­hneigð íslenskra stjórn­mála­manna nú og það var nán­ast hvers­dags­legt skref þegar önnur konan varð for­sæt­is­ráð­herra. Það er auð­vitað eins og það á að vera.“

Allir forsetar Íslands hægrhentir

Gylfi telur að sum flokkun skipti litlu ef nokkru máli. Þannig hafi allir for­setar lýð­veld­is­ins verið hægr­hentir.

„Það leiða lík­lega fáir hug­ann að því. Kannski munu vinstr­hentir fagna í skamman tíma þegar og ef sá fyrsti úr þeirra hópi nær kjöri en þar með verður það líka útrætt mál. Sex af síð­ustu tólf for­setum Banda­ríkj­anna hafa hins vegar verið vinstr­hentir. Það er skemmti­leg stað­reynd sem þó skiptir varla nokkru máli. Nema kannski fyrir Gerald Ford, einn þeirra vinstr­hentu. Ein skýr­ing – reyndar lang­sótt – á tapi hans í for­seta­kosn­ing­unum 1976 var að ímynd hans hefði liðið fyrir þetta. Þessi kenn­ing virð­ist þó ekki stand­ast nán­ari skoðun enda hafa aðrir vinstr­hentir Banda­ríkja­for­setar ekki lent í því sama. Almennt eru stjórn­mála­menn auð­vitað ekki flokk­aðir eftir því með hvorri hönd­inni þeir und­ir­rita emb­ætt­is­eið­inn enda engin ástæða til þess. Það skiptir meira máli hvort þeir telj­ast vinstra eða hægra megin á lit­rófi stjórn­mál­anna.“

Fólk raðast ekki upp við víglínur íslenskra stjórnmála eftir trúarbrögðum

Hann bendir á að flokkun eftir trú­ar­brögðum geti hins vegar verið stór­mál. „Spyrjið bara Norður-Íra. Jafnvel þar virð­ast trú­ar­brögðin þó smám saman vera farin að skipta minna máli. Að minnsta kosti gerð­ust þau undur og stór­merki nú í vor að flokkur kaþ­ólikka fékk í fyrsta sinn fleiri þing­menn á norður-írska þing­inu en helsti keppi­naut­ur­inn, flokkur mót­mæl­enda ... og fáir kipptu sér upp við það. Skipting eftir tungu­málum getur verið enn erf­ið­ari, spyrjið bara Belga eða Kanada­menn.“

Hann segir að á Íslandi hafi auð­vitað nán­ast allir verið í þjóð­kirkj­unni lengi vel en jafn­vel eftir að það breytt­ist hafi sára­lítil umræða verið um trú stjórn­mála­manna.

„Kannski skýrir það lít­inn áhuga lands­manna á trú­málum stjórn­mála­fólks að fólk rað­ast ekki upp við víg­línur íslenskra stjórn­mála eftir trú­ar­brögðum og stjórn­mála­menn tala flestir lítið sem ekk­ert um trú. Þjóðin saup hveljur þegar for­sæt­is­ráð­herra bað Guð að blessa Ísland haustið 2009. Það mundi eng­inn eftir nýlegum for­dæmum fyrir slíku tali. Kannski var hann samt bæn­heyrður, að minnsta kosti lenti hag­kerfið á löpp­unum á end­anum,“ skrifar hann.

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að ger­­­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár