Hallar á íbúa landsbyggðar í skipunum ráðherra í stjórnir, starfshópa, nefndir og ráð

Í hópi þeirra sem skip­aðir eru á vegum ráðu­neyta og stofn­ana þeirra í stjórnir, starfs­hópa, nefndir og ráð er hlut­fall höf­uð­borg­ar­búa um og yfir 90 pró­sent hjá fjórum ráðu­neytum. Minnst hallar á íbúa lands­byggðar í skip­unum á vegum mat­væla­ráðu­neytis.

Frá fyrsta ríkisráðsfundi núverandi ríkisstjórnar sem haldinn var í lok nóvember í fyrra.
Frá fyrsta rík­is­ráðs­fundi núver­andi rík­is­stjórnar sem hald­inn var í lok nóv­em­ber í fyrra. Mynd: Bára Huld Beck

80 pró­sent skip­ana á vegum ráðu­neyta og stofn­ana þeirra í stjórnir, starfs­hópa, nefndir og ráð falla í skaut íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hlut­fallið er um 90 pró­sent hjá nokkrum ráðu­neytum. Til sam­an­burðar þá búa 64 pró­sent íbúa lands­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Því velj­ast hlut­falls­lega fleiri til setu í stjórnum, starfs­hópum nefndum og ráðum af höf­uð­borg­ar­svæð­inu en af lands­byggð­inni.

Í mars sendi Hilda Jana Gísla­dóttir, vara­þing­maður Sam­fylk­ingar, fyr­ir­spurn til allra ráð­herra þar sem spurt var: „Hvernig skipt­ist búseta þeirra sem skipuð hafa verið í stjórnir, starfs­hópa, nefndir, ráð o.þ.h. á vegum ráðu­neyt­is­ins og stofn­ana þess eftir sveit­ar­fé­lögum?“ Þess ber að geta að grein­ing Kjarnans á svör­unum ná til átta svara af tólf. Níu ráð­herrar hafa svarað fyr­ir­spurn­inni en skila­frestur svara við skrif­legum fyr­ir­spurnum er 15 virkir dagar og þar af leið­andi lið­inn. Þar að auki er svar heil­brigð­is­ráð­herra ekki aðgengi­legt á vef Alþingis þrátt fyrir að þing­skjali með svar­inu hafi verið útbýtt 16. þessa mán­aðar. Svarið fékkst ekki frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu þegar eftir því var leitað.

Hlutfall höfuðborgarbúa fer hæst í 93 prósent

Þetta hlut­fall er hæst í dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Samkvæmt svari Jóns Gunn­ars­sonar, dóms­mála­ráð­herra, eru 124 ein­stak­lingar skip­aðir í stjórnir, starfs­hópa, nefndir og ráð á vegum dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og stofn­ana þess. Af þeim búa 115 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða 93 pró­sent. Nokkur ráðu­neyti fylgja fast á hæla dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins þegar horft er til skip­ana með til­liti til búsetu.

Hlutfall höf­uð­borg­ar­búa er 90 pró­sent í skip­unum á vegum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis, og á vegum háskóla- iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis. Hlut­fallið er rétt undir 90 pró­sentum hjá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu sem og í skip­unum á vegum félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins.

…og lægst í 63 prósent

Lands­byggðin á hlut­falls­lega flesta full­trúa í skip­unum á vegum mat­væla­ráðu­neyt­is­ins. Samkvæmt svari Svan­dísar Svav­ars­dóttur, mat­væla­ráð­herra, búa 114 af 307 þeirra sem skipað hefur verið í stjórnir, starfs­hópa, nefndir og ráð á vegum ráðu­neyt­is­ins úti á landi. Hlutfall höf­uð­borg­ar­búa í skip­unum á vegum ráðu­neyt­is­ins er því 63 pró­sent. Það ráðu­neyti sem kemst næst mat­væla­ráðu­neyt­inu í skipun lands­byggð­ar­fólks er umhverfis- og lofts­lags­ráðu­neytið, þar er hlut­fall skip­aðra höf­uð­borg­ar­búa 68 pró­sent.

Í hópi þeirra sem sitja í stjórnum, starfs­hópum, nefndum og ráðum á vegum ráðu­neyta og stofn­anna þeirra er einnig fólk sem býr erlendis, að mjög litlum hluta þó. Mat­væla­ráð­herra hefur skipað einn ein­stak­ling sem býr í Noregi og það sama hefur for­sæt­is­ráð­herra gert. For­sæt­is­ráð­herra hefur einnig skipað tvo ein­stak­linga sem búa í Danmörku og einn ein­stak­ling sem býr í Svíþjóð í stjórnir, starfs­hópa, nefndir og ráð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár