Bankar lánuðu fyrirtækjum meira á tveimur mánuðum en þeir gerðu samtals 2020 og 2021

Ný útlán, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum, þriggja stærstu banka lands­ins til fyr­ir­tækja voru 80,5 millj­arðar króna á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins. Gríð­ar­leg aukn­ing hefur orðið á lánum til fast­eigna­fé­laga og þeirra sem starfa í bygg­ing­ar­starf­semi.

Mikið er lánað til byggingafyrirtækja um þessar mundir. Áætlað er að það þurfi að byggja 35 þúsund íbúðir á Íslandi á næstu tíu árum.
Mikið er lánað til bygg­inga­fyr­ir­tækja um þessar mundir. Áætlað er að það þurfi að byggja 35 þús­und íbúðir á Íslandi á næstu tíu árum. Mynd: Bára Huld Beck

Kerf­is­lega mik­il­vægu bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banka, lán­uðu sam­tals 80,5 millj­arða króna til fyr­ir­tækja, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðsl­u­m, á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins. Það er svipað og þeir lán­uðu sam­an­lagt til fyr­ir­tækja frá ágúst 2019 og fram til loka árs 2021, eða á 29 mán­aða tíma­bili.

Á mars og apríl einum saman lán­uðu bank­arnir þrír 53,2 millj­arða króna til atvinnu­fyr­ir­tækja sem er meira en þeir lán­uðu slíkum sam­an­lagt á tveggja ára tíma­bili, frá byrjun árs 2020 og til síð­ustu ára­móta, en þá voru ný útlán 52 millj­arðar króna.

Þetta má lesa út úr nýbirtum hag­tölum Seðla­banka Íslands um banka­kerf­ið.

Útlán til atvinnu­fyr­ir­tækja að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum voru 25,4 millj­arðar króna í apríl, sem er 2,5 millj­örðum krónum minna en lánað var í mars. Sá mán­uður var þó stærsti útlána­mán­uður bank­ana þriggja til fyr­ir­tækja síðan í ágúst 2018.

Mesta aukn­ingin í apríl var til fast­eigna­fé­laga, sem fengu alls um 7,1 millj­arð króna í ný útlán nettó. Fyr­ir­tæki í verslu fengu 5,3 millj­arða króna og í sjáv­ar­út­vegi rúm­lega 4,9 millj­arða króna að láni.

Lánað til byggingafyrirtækja sem þurfa að byggja 35 þúsund íbúðir á áratug

Útlán til fyr­ir­tækja í bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð hafa líka tekið nokkuð vel við sér á síð­ustu mán­uð­um. Sam­tals hafa verið lán­aðir 18,2 millj­arðar króna inn í þann geira frá byrjun nóv­em­ber 2021 og út mars síð­ast­lið­inn. Þar af voru 11,6 millj­arðar króna lán­aðir í febr­úar, mar­s og apríl.

Til að setja þá tölu í sam­hengi þá lán­uðu kerf­is­lega mik­il­vægu bank­arnir þrír sam­tals 16,5 millj­arða króna til fyr­ir­tækja í bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð allt árið 2019, síð­asta heila árið fyrir kór­ónu­veiru­far­ald­ur.

[adspot]Á árunum 2020 og 2021 voru útlánin til geirans, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðsl­um, hins vegar nei­kvæð um 29,7 millj­arða króna. Því er um mik­inn við­snún­ing að ræða.

Sá við­snún­ingur er nauð­syn­legur í ljósi þeirrar stöðu sem ríkir á hús­næð­is­mark­aði í dag vegna fram­boðs­skorts og gríð­ar­legra hækk­ana á hús­næð­is­verði.

Í skýrslu sem starfs­hópur stjórn­valda um aðgerðir og umbætur á hús­næð­is­mark­aði kynnti á opnum kynn­ing­ar­fundi í síð­ustu viku kom fram að byggja þurfi 35 þús­und íbúðir á næstu tíu árum til að mæta fólks­fjölgun. Til við­bótar þarf að mæta upp­safn­aðri þörf sem er metin á um 4.500 íbúðir. Bráða­birgða­mat hag­deildar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar er að það þurfti að byggja 3.500 til 4.000 íbúðir á ári næstu fimm til tíu árin. Hún áætlar að 2.783 nýjar íbúðir komi á mark­að­inn á árinu 2022 og 3.098 íbúðir á árinu 2023. Í skýrsl­unni segir: „Raun­ger­ist þær áætl­anir er ljóst að ekki verður byggt í takt við þörf og líkur til þess að upp­söfnuð íbúða­þörf muni aukast sem leitt getur af sér nei­kvæða þróun og áfram­hald­andi óstöð­ug­leika á hús­næð­is­mark­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár