Kostnaður við veiruskimanir að minnsta kosti 9,2 milljarðar króna

Samkvæmt skrif­legu svari heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn þing­manns Mið­flokks­ins var að minnsta kosti 9,2 millj­örðum króna varið í að skima lands­menn og gesti fyrir kór­ónu­veirunni með PCR-prófum eða hrað­prófum á árunum 2020 og 2021.

Í dag er ekki lengur hægt að fara í PCR-próf nema í undantekningartilfellum, en hraðpróf eru notuð til að staðfesta smit með opinberum hætti.
Í dag er ekki lengur hægt að fara í PCR-próf nema í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum, en hrað­próf eru notuð til að stað­festa smit með opin­berum hætti. Mynd: Bára Huld Beck

Heild­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs vegna skim­ana gagn­vart COVID-19 frá febr­úar 2020 og til árs­loka 2021 nam rúmum 9,2 millj­örðum króna, sam­kvæmt svörum heil­brigð­is­stofn­ana lands­ins, sem sagt er frá í svari heil­brigð­is­ráð­herra við skrif­legri fyr­ir­spurn Bergþórs Ólasonar þing­manns Mið­flokks­ins.

Ekki er ljóst hvort þessi kostn­aður er alveg tæm­andi, þar sem heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu bár­ust ekki svör frá Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands né Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands með kostn­að­ar­tölum um skimanir á vegum þess­ara stofn­ana.

Yfir tveir milljarðar bara í desember 2021

Ekki þarf að koma á óvart að kostn­aður heil­brigð­is­stofn­ana vegna skim­ana fyrir kór­ónu­veirunni fór eftir því sem leið á árið 2021 vax­andi og var mestur í des­em­ber­mán­uði síð­ast­liðnum.

[adspot]

Þá fóru 794 millj­ónir króna í PCR-próf, hrað­próf voru fram­kvæmd fyrir 617 millj­ónir króna, auk þess sem 650 millj­ónir króna fóru í landamæra­skimanir. Við þetta bæt­ast svo 43 millj­ónir sem fóru í sótt­kví­ar­skimanir og 25 millj­ónir króna sem fóru í skimanir vegna ferða­manna­vott­orða. Alls eru þetta rúmir 2,1 millj­arðar króna sem fóru í að skima með ein­hverjum hætti fyrir veirunni ein­ungis í des­em­ber­mán­uði.

PCR-prófin vógu þyngst

Heild­ar­út­gjöld vegna PCR-prófa árin 2020 og 2021 voru alls 7,27 millj­arðar króna, sam­kvæmt því sem fram kemur í svari ráðu­neyt­is­ins. Á móti þeirri upp­hæð koma þó sér­tekjur sem alls námu rúmum 1,9 millj­örðum króna á sama tíma­bili og var heild­ar­kostn­aður við PCR-prófin því 5,36 millj­arðar króna. PCR-prófin kost­uðu mest 812 millj­ónir króna í einum mán­uði í ágúst í fyrra.

Heild­ar­kostn­aður við hrað­próf nam rúmum millj­arði og tæpir 2,3 millj­arðar voru lagðir út vegna landamæra­skim­ana, á árunum 2020 og 2021. Þá fóru 330 millj­ónir króna í skimanir vegna ferða­manna­vott­orða, sam­kvæmt sam­an­tekt­inni frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár