„Bágt að finna það hversu veikur maður er í stjórnarandstöðu“

Inga Sæland gagn­rýnir að frum­varp hennar um bann við blóð­mera­haldi hafi ein­ungis verið tekið einu sinni til umfjöll­unar hjá atvinnu­vega­nefnd. Hún segir vont að upp­lifa valda­leysi í stjórn­ar­and­stöðu þrátt fyrir að vinna eins og „alvöru hestur“.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins gagn­rýndi á þingi í gær, undir liðnum störf þings­ins, að atvinnu­vega­nefnd hefði ein­ungis fjallað einu sinni um frum­varp hennar til breyt­inga á lögum um dýra­vel­ferð, þar sem bann við blóð­mera­haldi á Íslandi er lagt til.

Hún benti á að um frum­varpið hefðu komið fram 129 umsagnir til þings­ins, sem sé með því meira sem sjá­ist. Umsagn­ar­frestur rann út þann 17. jan­úar og Inga sagði að veita ætti þeim fjöl­mörgu sem sendu inn umsagnir tæki­færi til þess að fylgja þeim eftir við atvinnu­vega­nefnd­ina. Hins vegar hefði málið ein­ungis verið einu sinni á dag­skrá atvinnu­vega­nefndar, sem Stefán Vagn Stef­áns­son þing­maður Fram­sókn­ar­flokks leiðir.

Inga sagði „bágt að finna það hversu veikur maður er í stjórn­ar­and­stöðu þó maður sé fang­inn af vilja og vinni eins og ég veit ekki hvað – alvöru hestur – sem dregur alvöru þunga á eftir sér til að bæta stöð­una í sam­fé­lag­inu“.

Búin að skipta sér inn í nefndina

Flokks­for­mað­ur­inn ætlar sér þó greini­lega að reyna að koma mál­inu frekar á dag­skrá í atvinnu­vega­nefnd, því við upp­haf þing­fundar í gær til­kynnti Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis að Flokkur fólks­ins ætl­aði að skipta um full­trúa í nefnd­inni.

Inga sjálf kemur inn sem aðal­maður í stað Tómasar A. Tóm­as­sonar þing­manns flokks­ins, sem verður vara­maður í nefnd­inni.

Segir hagsmunaaðila eflaust þrýsta á um að málið verði svæft

Inga gerir þetta mál að umtals­efni í pistli sínum í Morg­un­blað­inu í dag. Þar segir hún að fyrir atvinnu­vega­nefnd liggi nú um 10 þing­mál, sem þyki með minna móti og mála­fjöld­inn geti því ekki rétt­lætt að „þetta mik­il­væga mál fái ekki umfjöllun fyrir atvinnu­vega­nefnd“.

[adspot]

Í pistli sínum segir flokks­for­mað­ur­inn að hags­muna­að­ilar séu eflaust að þrýsta á „þing­menn stjórn­ar­flokk­anna og hvetja þá til að svæfa málið í nefnd“ en segir Inga jafn­framt að hún voni „að þing­menn taki ekki ákvörðun um þing­mál út frá slíkum þrýst­ingi.“

„Það er sorg­legt, ef það er virki­lega svo, að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir heyk­ist á því að taka utan um mál sem þjóðin kallar eftir að fái þing­lega með­ferð. Ég skora á atvinnu­vega­nefnd og for­mann nefnd­ar­innar, Stefán Vagn Stef­áns­son, að taka utan um málið og koma því þannig inn að Alþingi Íslend­inga geti fjallað um málið og greitt um það atkvæði,“ skrifar Inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

blóðmerar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár