Ríkisstjórnin getur ekki svarað því hvað felst í loforði sem sett er fram í stjórnarsáttmála

Í stjórn­ar­sátt­mál­anum segir að skatt­mats­reglur verði end­ur­skoð­aðar til að koma í „veg fyrir óeðli­lega og óheil­brigða hvata til stofn­unar einka­hluta­fé­laga“. Hvorki for­sætis- né fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið geta svarað því hvað þetta þýðir.

Stjórnarsáttmálinn var kynntur 30. nóvember síðastliðinn.
Stjórn­ar­sátt­mál­inn var kynntur 30. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Mynd: Bára Huld Beck

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar frá 30. nóv­em­ber segir að skatt­mats­reglur verði end­ur­skoð­aðar og að komið verði í veg fyrir „óeðli­lega og óheil­brigða hvata til stofn­unar einka­hluta­fé­laga“. Þar segir að enn fremur verði reglu­verk í kringum tekju­til­flutn­ing „tekið til end­ur­skoð­unar til að tryggja að þau sem hafa ein­göngu fjár­magnstekjur reikni sér end­ur­gjald og greiði þannig útsvar.“

Engar frek­ari skýr­ingar eru gefnar í sátt­mál­anum á því hvernig end­ur­mat á skatt­mats­reglum eigi að fara fram, hvaða óeðli­legu og óheil­brigðu hvata eigi að koma í veg fyrir né hvernig tryggja eigi að þeir sem hafi ein­göngu fjár­magnstekjur verði látnir greiða útsvar og þeirra mála sem er að finna á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar bera það með sér að fjalla um ofan­greind atriði.

Tók 28 daga að fá svar

Sem stendur er ekki starf­andi sér­stakur upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar og því sendi Kjarninn fyr­ir­spurn þar sem óskað var frek­ari skýr­ingar á umræddri end­ur­skoðun, og því hvaða óeðli­legu og óheil­brigðu hvata þyrfti að koma í veg fyrir, eða hvernig eigi að láta þá sem hafa ein­göngu fjár­magnstekjur greiða útsvar, til upp­lýs­inga­full­trúa for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins þann 3. jan­úar síð­ast­lið­inn. Svar barst degi síðar, þar sem stað­fest var að fyr­ir­spurnin hafði fengið mála­númer, og í því stóð: „Umrætt verk­efni í stjórn­ar­sátt­mála hefur verið skil­greint hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Erindi þitt er því hér með fram­sent þangað.“

[adspot]Samkvæmt upp­lýs­inga­lögum er stjórn­valdi skylt að taka ákvörðun um hvort orðið sé við beiðni um upp­lýs­ingar svo fljótt sem verða má. Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá mót­töku hennar skal skýra frá ástæðu taf­anna og hvenær ákvörð­unar sé að vænta.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið svar­aði Kjarn­anum nákvæm­lega viku eftir að fyr­ir­spurnin var send frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu til þess, þann 11. jan­úar 2022. Í svar­inu sagði ein­fald­lega: „Ekki tekst að ljúka svari til þín fyrir til­skil­inn frest en ráðu­neytið stefnir að því að hafa lokið við að svara þér fyrir lok næstu viku.“

Þegar næstu viku lauk hafði ekk­ert svar borist og Kjarninn sendi ítrekun á ráðu­neytið 25. og 28. jan­úar. Efn­is­legt svar barst loks mánu­dag­inn 31. jan­úar, 28 dögum eftir að upp­runa­leg fyr­ir­spurn var send á for­sæt­is­ráðu­neytið.

Hluta fyrirspurnar vísað aftur til ráðuneytis sem gat ekki svarað henni

Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sagði að unnið væri að því að skipta verk­efnum stjórn­ar­sátt­mál­ans niður á ráðu­neytin. „Ekki er komin end­an­leg mynd á útfærslu verk­efna, en gera má ráð fyrir að verk­efnið sem þú nefnir komi í hlut fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og e.t.v. í sam­vinnu við önnur ráðu­neyti. Ekki liggur fyrir mat á tekjum sem kunna að leiða af ein­stökum breyt­ingum, enda skammt um liðið frá því að sátt­mál­inn var birtur.“

Þar sagði einnig að ráðu­neytið gæti ekki „svarað því hvaða hvata rík­is­stjórnin telur „óeðli­lega og óheil­brigða“, og þarf upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar eða eftir atvikum FOR [for­sæt­is­ráðu­neytið] að með­höndla slíka fyr­ir­spurn.“

Vert er að ítreka að fyr­ir­spurn Kjarnans var upp­haf­lega send á for­sæt­is­ráðu­neytið sem beindi henni til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem segir nú að for­sæt­is­ráðu­neytið eigi að svara fyr­ir­spurn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár