Minnsta aukning á reiðufé í umferð í átta ár

Töluvert hefur dregið úr aukn­ingu reiðu­fjár í umferð á síð­ustu mán­uðum, eftir að seðlar og mynt urðu eft­ir­sótt­ari í byrjun far­ald­urs­ins. Margt bendir til þess að far­ald­ur­inn hafi leitt til minni við­skipta með reiðufé.

Ásókn í peningaseðla- og myntir hefur aukist hægar á síðustu mánuðum.
Ásókn í pen­inga­seðla- og myntir hefur auk­ist hægar á síð­ustu mán­uðum. Mynd: Pexels / Andrea Piacquadio

Heild­ar­virði seðla og mynta í umferð hér­lendis nam tæpum 74 millj­örðum króna í nóv­em­ber, sem er 2,2 pró­sent meira en virði þeirra í sama mán­uði árið 2020, sam­kvæmt tölum frá Seðla­bank­anum. Aukn­ingin á fram­boði reiðu­fjár á milli ára hefur ekki verið minni frá því í maí árið 2014. Senni­legt er að far­ald­ur­inn hafi leitt til auk­ins vilja til að geyma eignir sínar á því formi fyrst um sinn, en þó gætu við­skiptin með reiðufé hafa minnkað.

Mikið reiðufé eftir hrun

Hægt er að finna upp­lýs­ingar um fram­boð reiðu­fjár í umferð með því að draga inni­stæður inn­lána­stofn­ana í seðlum og mynt frá tölum um heild­ar­virði útgef­ins reiðu­fjár. Báðar þessar tölur má finna á vef­síðu Seðla­bank­ans.

Miklar sveiflur eru á þessum tölum á milli mán­aða, líkt og myndin hér að neðan sýnir. Yfir lengri tíma­bil er fram­boðs­aukn­ingin þó nokkuð jöfn, en virði seðla og mynta í notkun hefur að með­al­tali auk­ist um ell­efu pró­sent á milli ára á síð­ustu níu árum. Þetta er svipuð aukn­ing og á tíma­bil­inu 2001 til 2007, en þá var með­al­aukn­ingin um níu pró­sent.

Í fjár­málakrepp­unni 2008-2012 stórjókst hins vegar fjöldi seðla og mynta í umferð. Mest var aukn­ingin í októ­ber árið 2008, en þá var heild­ar­virði seðla í umferð 108 pró­sentum meiri en á sama tíma árið áður. Aukn­ingin hélst mikil í fjögur ár, en hún var að með­al­tali um 34 pró­sent á milli ára frá októ­ber 2008 til októ­ber 2012.

Í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins mátti svo sjá nokkra aukn­ingu á seðlum og mynt í umferð, en frá apríl 2020 til mars 2021 nam árs­aukn­ingin að með­al­tali níu pró­sentum. Mest var hún í októ­ber árið 2020, en þá var heild­ar­virði reiðu­fjár 12 pró­sentum meira en það á sama tíma árið áður.

Síðan þá hefur hratt dregið úr aukn­ing­unni með hverjum mán­uði. Samkvæmt hag­tölum Seðla­bank­ans er það bæði vegna hæg­ari aukn­ingar á útgefnu fé bank­ans og meiri aukn­ingar í reiðu­fjár­eignum við­skipta­bank­anna.

Flótti í öruggar eignir

Stefán Arnarson, aðal­fé­hirðir Seðla­banka Íslands, fjall­aði um þróun reiðu­fjár á tímum far­ald­urs­ins í grein sem hann skrif­aði í Vís­bend­ingu í fyrra. Samkvæmt honum er erfitt að greina notkun reiðu­fjár, þar sem það er bæði notað til við­skipta og til að geyma verð­mæti.

Þó bendir hlut­falls­leg aukn­ing 10.000 króna seðla á árinu 2020 til þess að fólk hafi í auknum mæli viljað geyma eignir sínar í formi reiðu­fjár á tímum far­ald­urs­ins.

Svo virð­ist sem mikið af aukn­ingu 10.000 króna seðla í umferð hafi átt sér stað á fyrstu vikum far­ald­urs­ins í mars og apr­íl. Dag­inn sem fyrsta sam­komu­bannið var aug­lýst streymdu til dæmis út 350 millj­ónir króna af 10.000 króna seðl­u­m.

Nú eru 10.000 króna seðlar 65,6 pró­sent af heild­ar­virði allra seðla. Seð­ill­inn er líka næst­vin­sælastur á eftir þús­und­kall­inum, en rúm­lega fjórði hver pen­inga­seð­ill er 10.000 króna seð­ill.

Sam­kvæmt Stef­áni er mögu­leg skýr­ing á þess­ari fjölgun sú að fólk hafi brugð­ist við óvissu í efna­hags­málum með því að færa eignir sínar inn á örugg­ara form, þ.e. íslenskt reiðu­fé. Hann segir að þessi hegð­un, sem kölluð er „flight to quality“ á ensku, birt­ist til dæmis sem ásókn í gull á óvissu­tím­um.

Minni viðskipti með reiðufé

Í grein sinni nefnir Stefán einnig að ýmsar birt­inga­myndir far­ald­urs­ins og nið­ur­sveifl­unnar sem honum fylgdi hafi án efa leitt til minni við­skipta með reiðufé. Þeirra á meðal eru aukin net­verslun, tak­markað aðgengi að þjón­ustu í úti­búum og hvatn­ing yfir­valda til að nota snerti­lausar greiðslu­lausnir.

Einnig gæti fækkun ferða­manna einnig leitt til minni við­skipta með reiðufé, en þeir komu með allt að einum millj­arði íslenskra króna í seðlum og myntum með sér til Íslands í hverjum mán­uði þegar ferða­manna­góð­ærið stóð sem hæst. Sömu­leiðis gæti aukin notkun sjálfs­af­greiðslu­kassa í dag­vöru­versl­unum ýtt undir korta­notkun hjá íslenskum neyt­endum, á kostnað reiðufjár­notk­unar.

Verðbólgan meiri í fyrsta skipti frá 2012

Líkt og myndin hér að ofan sýnir hefur aukn­ing reiðu­fjár í umferð yfir­leitt verið meiri heldur en verð­bólgan hér­lendis á síð­ustu árum. Frá því í júlí á síð­asta ári hefur þessu hins vegar verið öfugt farið og var verð­bólgan um það bil tvö­falt meiri en reiðu­fjár­aukn­ingin í nóv­em­ber.

Þetta er í fyrsta skipti sem verð­bólga hefur mælst meiri en aukn­ing reiðu­fjár í umferð frá ára­mótum 2012 og 2013, en þá var verð­bólgan 3,7 pró­sent á meðan virði reiðu­fjár jókst um 4,2 pró­sent frá síð­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár