Enn ein örvunarbólusetningin og alls óvíst með hjarðónæmi

Ísraelar fóru hratt af stað í bólu­setn­ingar en á vilja til þeirra hefur hægt. Fjórði skammt­ur­inn stendur nú 60 ára og eldri til boða. Einn helsti sér­fræð­ingur lands­ins varar við tali um hjarð­ó­næmi enda veiran ólík­inda­tól.

Fjórði skammtur bóluefnis býðst nú öllum 60 ára og eldri í Ísrael sem og öllu heilbrigðisstarfsfólki.
Fjórði skammtur bólu­efnis býðst nú öllum 60 ára og eldri í Ísrael sem og öllu heil­brigð­is­starfs­fólki. Mynd: EPA

Greindum til­fellum COVID-19 fjölg­aði um 360 pró­sent í Ísrael á einni viku og alvar­lega veikum af völdum veirunnar hefur fjölgað stöðugt en þó ekki mjög hratt, í hálfan mánuð. Í gær lágu 110 sjúk­lingar á spít­ölum. Dauðs­föllum hefur hins vegar ekki fjölgað með sama hraða og í fyrri smit­bylgjum sem styður enn frekar þær vís­bend­ingar að ómíkron sé ekki jafn mikil ógn við líf fólks þrátt fyrir að vera mun meira smit­andi en delta-afbrigðið.

Opna fyrir ferðamenn

Stjórn­völd í land­inu gripu til mjög harðra aðgerða er ómíkron-afbrigðið upp­götv­að­ist í nóv­em­ber og stöðv­uðu ferða­lög til lands­ins. Það hægði veru­lega á útbreiðsl­unni miðað við þró­un­ina í t.d. Evr­ópu­ríkjum en fimmta bylgja far­ald­urs­ins, sem nú er hafin, er engu að síður skollin á og er að miklu leyti vegna ómíkron.

Nú stendur til að draga úr ferða­tak­mörk­unum bólu­settra og ferða­mönnum frá ákveðnum löndum verður leyft að koma til Ísrael frá og með 9. jan­úar. Þeir verða að sýna nei­kvætt PCR-próf við kom­una og einnig fara í eitt slíkt próf við upp­haf dvalar sinnar.

[adspot]

Ísraelar hafa reynt að halda grunn­skólum sínum opnum en nú er ósætti komið upp um fram­haldið milli heil­brigð­is­ráð­herr­ans og mennta­mála­ráð­herr­ans. Gild­is­tími áætl­unar sem kall­ast „græna kennslu­stofan“ er útrunn­inn en hún fól í sér að nem­endur og kenn­arar frá svæðum þar sem smit er tak­markað gátu mætt í skól­ann, þrátt fyrir að vera í sótt­kví, svo lengi sem þeir fram­vís­aðu nei­kvæðu COVID-prófi. For­eldrar og nem­endur eru sagðir ráð­villtir og ekki vissir hvort kennt verði í skólum næstu daga eða hvort fjar­nám verði tekið upp. Tæplega 90 þús­und nem­endur eru í sótt­kví eða ein­angrun í Ísrael og vel fyri 4.000 starfs­menn skól­anna.

Nokkrir háskólar ákváðu í gær, er smit­fjöld­inn rauk upp úr öllu valdi miðað við vik­una á undan, að taka upp fjar­nám eftir helgi.

Ísraelar byrj­uðu bratt í bólu­setn­ingum meðal fyrstu þjóða í byrjun árs eftir að hafa gert samn­ing við Pfizer um afhend­ingu bólu­efnis. Enn eru aðeins um 60 pró­sent íbúa lands­ins skil­greind sem full­bólu­sett jafn­vel þótt bólu­setn­ingar hafi boð­ist börnum niður í fimm ára aldur frá því í nóv­em­ber. Full­bólu­settir eru þeir sem nýverið hafa fengið annan skammt bólu­efnis eða þegið örv­un­ar­bólu­setn­ingu, þ.e.a.s. þriðja skammt­inn. Ísraelar eru um 9,3 millj­ónir. 4,1 milljón hefur fengið örv­un­ar­skammt sem þýðir að hund­ruð þús­unda manna hafa ekki þegið hann.

Sá fjórði

Naftali Bennett, for­sæt­is­ráð­herra Ísrael, hvatti á sunnu­dag alla eldri landa sína til þiggja fjórða skammt bólu­efnis. Stjórn­völd hafa sam­þykkt að allir sem eru 60 ára eða eldri sem og allt heil­brigð­is­starfs­fólk, geti fengið slíkan örv­un­ar­skammt.

Líkt og víðar um heim­inn er ásókn í skimun vegna kór­ónu­veirunnar gríð­ar­leg í Ísrael. Vís­inda­menn telja að senn líði að því að um 50 þús­und manns smit­ist af veirunni dag­lega. Stjórn­völd skoða nú for­gangs­röðun í skimanir enda langar bíla­lestir mynd­ast síð­ustu daga við sýna­töku­staði.

Hjarðónæmi eða ekki

Heil­brigð­is­ráð­herr­ann Nachman Ash sagði nýverið að Ísrael gæti náð hjarð­ó­næmi með útbreiðslu ómíkron-afbrigð­is­ins sem talið er valda mild­ari sjúk­dóms­ein­kennum, sér­stak­lega hjá þrí­bólu­settum. Er hann bjart­sýnn á að lyf lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Merck & Co's, sem gefið er sjúk­lingum við upp­haf veik­inda, eigi eftir að gagn­ast vel í bar­átt­unni. Lyfið fékk nýverið mark­aðs­leyfi í land­inu og má gefa öllum átján ára og eldri.

Salman Zarka, sem fer fyrir COVID-við­bragð­steymi heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins, segir aftur á móti of snemmt að tala um hjarð­ó­næmi og hvenær og hvort það náist. Hann segir reynslu síð­ustu tveggja ára sýna að þeir sem hafi smit­ast af veirunni og náð sér geti smit­ast aftur. Ný afbrigði, tölu­vert frá­brugðin þeim sem á undan hafa komið, hafa allan far­ald­ur­inn verið að skjóta upp koll­inum. Ómíkron, hið bráðsmit­andi afbrigði sem fyrst upp­götv­að­ist í sunn­an­verðri Afríku í lok nóv­em­ber, virð­ist frekar valda ein­kennum í hálsi en lungum líkt og fyrstu afbrigðin gerðu. Eig­in­leikar þess eru því á margan hátt frá­brugðnir þeim.

Vís­inda­menn um allan heim fara enn var­lega í að lýsa yfir vissu um að ómíkron sé mein­laus­ari veira en þær fyrri. Það er ekki síst gert í ljósi þess að þrátt fyrir að það valdi væg­ari sjúk­dóms­ein­kennum, smit­ist það svo hratt að hlut­falls­lega margir sýkj­ast, þar á meðal óbólu­settir, fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og aldr­aðir sem er hætt­ara við alvar­legum veik­indum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár