Framkvæmdastjóri WHO bjartsýnn á að faraldrinum ljúki í ár

„Nú þegar þriðja ár far­ald­urs­ins er hafið er ég sann­færður um að þetta verði árið sem við bindum endi á hann – en aðeins ef við gerum það saman,“ sagði Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri WHO í nýársávarpi sínu.

Tvö ár eru liðin frá því að Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO) var fyrst gert við­vart um til­felli lungna­bólgu af óþekktum orsökum í Kína. Fram­kvæmda­stjóri stofn­un­ar­innar seg­ist í nýársávarpi sínu bjart­sýnn á að nú hylli undir lok far­ald­urs COVID-19 en aðeins að því gefnu að þjóðir heims vinni saman. Hann varar við „þröngri þjóð­ern­is­stefnu“ og því að lönd ham­stri bólu­efni. „Nú þegar þriðja ár far­ald­urs­ins er hafið er ég sann­færður um að þetta verði árið sem við bindum endi á hann – en aðeins ef við gerum það saman,“ sagði Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri WHO í ávarpi sínu.

[adspot]

Frá upp­hafi far­ald­urs­ins hafa um 290 millj­ónir manna greinst með veiruna. 5,5 millj­ónir hafa lát­ist vegna COVID-19. Tveimur árum eftir að far­ald­ur­inn hófst eru áhrif hans á líf fólks og sam­fé­lög enn mik­ill: Harðar tak­mark­anir eru á landa­mærum margra ríkja, fjöl­skyldur geta ekki verið saman og víða er grímu­skylda, fjölda­tak­mark­anir og nálægða­regla í gildi.

Þrátt fyrir allt þetta var bjart­sýn­is­tónn í ávarpi fram­kvæmda­stjóra WHO, og benti hann á að eftir alla þessa mán­uði væri búið að finna mörg verk­færi til að takast á við far­ald­ur­inn. Var­úð­ar­orð hans voru þó alvar­leg. Hann ítrekar, enn og aftur, mik­il­vægi þess að bólu­setja sem flesta í heim­inum svo koma megi í veg fyrir að ný afbrigði veirunnar skjóti upp koll­inum í óbólu­settum sam­fé­lögum. Verði slíkar aðstæður áfram uppi er ómögu­legt að spá fyrir um þró­un­ina á næst­unni. „Ef við bindum enda á ójafn­rétti þá bindum við enda á far­ald­ur­inn,“ sagði hann og vís­aði þar til þess að rík­ustu þjóðir heims hafa hrein­lega hamstrað bólu­efni á sama tíma og fátæk­ari ríki hafa ekki nóg til að bólu­setja sína við­kvæm­ustu hópa og fram­línu­starfs­fólk.

Að sögn sér­fræð­inga víða um heim er ýmis­legt sem bendir til að ómíkrón-afbrigði kór­ónu­veirunnar, sem rétt rúmur mán­uður er síðan upp­götv­að­ist en hefur breiðst til allra heims­horna, valdi væg­ari ein­kennum en þau fyrri. Í Suður-Afríku, þar sem það upp­götv­að­ist í lok nóv­em­ber, hefur útgöngu­banni verið aflétt enda talið að smit­bylgjan sem þar gengur yfir hafi náð hámarki sínu. Þýski veiru­fræð­ing­ur­inn Christian Drosten sagði í gær ísam­tali við þýska sjón­varpið að ætti von á „frekar hefð­bundnum“ vetri þar sem gögn bentu til að til­felli ómíkrón væri ekki alvar­leg.

Gríðarlegur fjöldi tilfella en færri innlagnir

Aldrei hafa fleiri til­felli verið að grein­ast í mörgum löndum, m.a. Bret­landi, á Ítalíu og Grikk­landi, og þessa dag­ana. Sjúkra­húsinn­lagnir eru þó hlut­falls­lega mun færri en í t.d. bylgj­unum sem delta-afbrigðið skæða olli. Í Suður-Afríku sem og í Banda­ríkj­unum eru það fyrst og fremst óbólu­settir sem eru lagðir inn vegna sýk­ingar af völdum ómíkrón.

8,5 millj­örðum skammta af bólu­efni gegn COVID-19 hefur verið dreift og sagði Tedros í ávarpi sínu að bólu­efnin hafi bjargað millj­ónum manns­lífa. WHO setti það mark­mið að í það minnsta 40 pró­sent íbúa allra landa yrðu bólu­sett við lok árs­ins 2021. Það stóðst engan veg­inn og í mörgum fátæk­ustu ríkjum heims telur hlut­fallið aðeins örfá pró­sent. Á sama tíma hafa mörg ríki, flest vest­ræn, náð um og yfir 80 pró­sent bólu­setn­ing­ar­hlut­falli og hafa hafið örv­un­ar­bólu­setn­ingar sem þykja gefa góða raun gegn alvar­legum veik­indum vegna COVID-19.

Fram­kvæmda­stjóri WHO segir að svo stöðva megi far­ald­ur­inn í ár þurfi að ná því mark­miði að bólu­setja 70 pró­sent íbúa allra ríkja fyrir lok júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár