Hún er sérkennileg blinda þingmanna og ráðherra Sjálfstæðismanna sem geta ekki séð einfalt samband orsakar og afleiðingar. Þau hafa talað fyrir frelsi á tíma heimsfaraldrar og talið sjálfum sér og örlitlum hópi skoðanasystkina að aðgerðir sóttvarnaryfirvalda sé um að kenna en það sé ekki veiran sjálf sem valdi þessu. Ráðherrar eru nú í óða önn að beita frelsi barna fyrir sér. Þetta eru að mínu mati ódýrir og næstum ógeðfelldir pólitískir frasar meðan þau leggja aldrei fram nein rök máli sínu til stuðnings.
Við megum aldrei falla í þá gryfju að tala í frösum, að lofa einföldum lausnum. Mér finnst næsta augljóst að það er veiran sem hefur skert frelsi okkar. Auðvitað kann ég að hafa rangt fyrir mér en mín skoðun byggist meðal annars á því að ég hef ekki enn séð neitt dæmi um þjóð sem hefur farið þá leið að halda samfélaginu opnu en hafa ekki seint og um síðir þurft að beygja sig undir vilja veirunnar með mun harðari aðgerðum en við höfum séð hér á landi. En auðvitað kann ég hafa rangt fyrir mér, en ég vildi þá gjarnan heyra af slíkum dæmum. Þórdís Kolbrún ráðherra kvartar yfir því að bara sé horft á sýkingartölur og dauðsföll Það er einn mælikvarði. Þórdís virðist þó gefa í skyn að þessi góði árangur hér á landi hafi verið keyptur með frelsisskerðingu okkar, ekki síst barna og unglinga.
En hvað með stöðu ungmenna og barna hér á landi? Það er látið í það skína að þessi hópur hafi þurft að taka á sig byrðar umfram jafnaldra sína í nágrannaríkjum. Börn og unglingar þurfa félagslíf, þau þurfa að umgangast jafnaldra og þau þurfa frelsi. Þegar við beitum börnum og unglingum fyrir málstað okkar þá er það minnsta sem maður getur gert að færa einhver rök fyrir máli sínu. Ég hef engin rök séð að börn og ungmenni á Íslandi hafi þurft að færa meiri fórnir en í nágrannaríkjum austan hafs eða vestan. Ég held raunar að þau hafi fengið meira frelsi á þessum hrikalega erfiða tíma en í mörgum nágrannaríkjum okkar. Enn og aftur, kannski hef ég rangt fyrir mér en ef svo er vildi ég sjá í það minnsta einhver rök í málinu. Hvað með athafnafrelsi og atvinnulíf. Hefur það verið takmarkað meira hér á landi en annar staðar? Ef að viljum tryggja frelsi þurfum við að vita hvernig það er gert á tímum heimsfaraldurs. Við þurfum rök og við þurfum gögn. Annars er líklegt að frelsinu verði fórnað á altari pólitísks rétttrúnaðar.
[adspot]Við höfum endurtekið farið flatt á því að telja okkur vita hvernig þessi veira muni hegða sér. Þrátt fyrir að hafa náð góðum árangri á mörgum sviðum er veiran er ekki horfin. Við sjáum þó mun minni skaða af henni en áður. Þar ræður mestu bólusetning og einnig breyting á eðli veirunnar. Þessa árangurs sér svo sannarlega merki í hlutfallslega mun minni inngripum í frelsi okkar en á fyrstu misserum faraldursins. Það skýrist meðal annars af bólusetningum, markvissum farsóttarinngripum byggt á klassískum aðferðum og glænýjum aðferðum byggt á sameindaerfðafræði. Veiran hefur ótvírætt breyst og hún mun vonandi smátt og smátt læra að lifa í meiri sátt og samlyndi við okkur mannfólkið. Það kann að vera að hún sé nú þegar farin að gera það. Markmið farsóttaryfirvalda eru þó kýrskýr. Þau láta frelsisskerðandi inngrip ekki ráðast af hráum smittölum. Það er augljóst ef við berum saman aðgerðir í dag þegar nokkur hundruð manns smitast á hverjum degi borið saman og við aðgerðir fyrir ári síðan. Farsóttaryfirvalda hafa allt frá þeim tíma sem megin þorri fullorðinna var bólusettur miðað aðgerðir við hversu margir verða svo fárveikir að þeir þurfa að leggjast inn á spítala eða inn á gjörgæslur. Þetta þýðir sjálfkrafa að þegar við náum betri árangri að verjast veirunni, t.d. með bólusetningum eða þegar veiran lagast að okkur með minni skaða þá munu aðgerðir sjálfkrafa dragast saman og að lokum hverfa. Það gerist þegar við höfum náð hjarðónæmi eða þegar veiran er næsta skaðlítil. Þetta er skýrt og gott dæmi um markvissa framtíðarsýn. Þetta er fyrirsjáanlegt en tekur þó tillit til þess andstæðings sem við erum að berjast við.
Ef að forysta Sjálfstæðisflokksins hefur aðra framtíðarsýn þá þarf hún að skýra hana út með betur útfærðum hætti en að bera fyrir sig frelsi barna og ungmenna án þess að hafa nein handbær rök fyrir máli sínu. Þegar forysta Sjálfstæðisflokksins vill hafa fleiri mælikvarða á árangur vil ég vita hvaða mælikvarðar það eru og sjá hvernig við stöndum okkur í samanburði við aðrar þjóðir. Það er svo sannarlega í lagi að spyrja spurninga. En þegar forystufólk í samfélaginu spyr mánuðum saman sömu spurninganna án þess að gera minnstu tilraun til að svara þeim sjálft eða með hjálp sérfræðinga og fræðimanna sem þau hafa aðgang að þá finnst mér lítið mark takandi á slíkum spurningaflóði. Ég vona að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins leiti markvisst að svörum við spurningum sínum á nýju ári. Næst þegar þau vilja nýjar leiðir þá er óskandi að þau hafi svör við spurningum sínum og leiðir til lausnar byggt haldgóðri þekkingu. Það hafa farsóttaryfirvöld gert og á það hefur heilbrigðisráðherra hingað til hlustað. Meginþorri þjóðar hefur stutt heilbrigðisyfirvöld og það geri ég líka.
Höfundur er prófessor við Læknadeild HÍ.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir