Peningabólan, það sem gerist í glóandi hrauni og deilur um hvort tilgangurinn helgi meðalið

Kjarninn rekur einn dýnamís­kasta umræðu­vett­vang lands­ins þar sem ýmis­konar pistlar og skoð­ana­greinar birt­ast á hverju ári. Hér eru þeir tíu sem voru mest lesnir á árinu 2021.

10. Hækkum rána: Rýnt í rök Viðars

„Grein Viðars, fræði­manns á sínu sviði, virð­ist því miður ekki upp­fylla þessa kröfu. Þannig má finna vís­bend­ingu um afstöðu Viðars til þjálf­ar­ans strax í fyrstu máls­greinum greinar hans, þar sem hann líkir þjálf­ar­anum við trú­ar­leið­toga sem hafi vafið bæði leik­mönnum og for­eldrum þeirra um fingur sér. Slíkir sleggju­dómar eiga ekki heima í grein fræði­manns um sam­fé­lags­leg mál­efni sem varða sér­svið hans.”

Eiríkur Ari Eiríks­son svar­aði grein Viðars Hall­dórs­sonar birt­ist í Kjarn­anum í febr­úar.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

9. Rangfærslur Áslaugar Örnu um skatta

„Nið­ur­staðan er öll á sama veg og verið hafði frá 1993 til 2015. Skatt­byrði lægstu og milli tekju­hópa stórjókst en skatt­byrði þeirra allra tekju­hæstu lækk­aði. [...] Þetta er hin raun­veru­lega skatta­stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins í fram­kvæmd. Skatta­lækkun fyrir hina ríku og skatta­hækkun hjá öllum þorra almenn­ings – mest hjá þeim tekju­lægstu.“

Stefán Ólafsson skrif­aði í sept­em­ber að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi ein­ungis lækkað skatta á hátekju­fólk á árunum 1990 til 2019.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

8. Einvera barns – ómannúðleg framkoma við barn

„Mikið væri nú ágætt ef for­eldrar eða starfs­fólk sem ekki vill láta svona verk­lag yfir börnin ganga þyrfti ekki að heyja bar­áttur við skóla­yf­ir­völd. Við viljum geta treyst því að sér­kennslu­stjór­ar, skóla­stjór­ar, deild­ar­stjórar og allir sem koma að því að fræða for­eldra og starfs­fólk leik­skóla og skóla til að styrkj­ast í hlut­verki sínu leiti ávallt að virð­ing­ar­rík­ustu og best rann­sök­uðu leið­inni sem fær er hverju sinni. Við erum nú þegar búin að ákveða með lögum að börn eiga að njóta vafans. Tökum það alla leið, sem sam­fé­lag sem hlúir að og gætir hags­muna barna á mik­il­væg­ustu ævi­árum þeirra.“

[adspot]Guðrún Inga Torfa­dóttir og Perla Haf­þórs­dóttir skrif­uðu við­bragð við áætl­unum sér­kennslu­stjóra í fleiri en einum leik­skóla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um með­höndlun nafn­greinds barns í júní.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

7. … uns sek er sönnuð

„Almenn­ings­á­litið og opin­ber umræða um ein­stök mál er sann­ar­lega ekki heppi­leg máls­með­ferð en nú er svo komið að margir brota­þolar og aðstand­endur þeirra sjá ekki aðra leið færa. #metoo frá­sagnir eru í raun neyð­ar­réttur fólks sem kerfið og sam­fé­lagið allt hefur brugð­ist.“

Margrét Tryggva­dóttir sagð­ist í júlí vilja lifa í sam­fé­lagi þar sem eng­inn sé fund­inn sekur uns sekt er sönnuð en þá verði líka að taka kyn­ferð­is­brot alvar­lega.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

6. Leigjandi er sá sem kaupir íbúð fyrir annað fólk

„Leigu­mark­að­ur­inn hefur þannig öll ein­kenni okur­lána­mark­að­ar. Þetta er vett­vangur þar sem fólk auðg­ast á veikri stöðu með­bræðra sinna. Og hið opin­bera blessar ástandið með því að vernda kerf­ið. Helstu aðgerðir þess eru að gefa leigu­sölum helm­ings afslátt af fjár­magnstekju­skatti og að greiða út hús­næð­is­bætur sem í reynd nið­ur­greiða okur­leig­una. Það eru hins vegar engin tak­mörk á því hversu há leigan má vera, hversu mikið okrið er og hversu hart er gengið að lífs­af­komu leigj­enda.“

Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son og Yngvi Ómar Sig­hvats­son skrif­uðu grein í nóv­em­ber um hvað það þýðir að vera leigj­andi á Íslandi í dag.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

5. Af gervi-öryrkjum

„„Fjár­mála­ráð­herra veit nátt­úr­lega alveg af þessum gervi-öryrkjum og hefur því varað fólk við þeim sí og æ enda við­sjár­verðir,“ skrifar María Pét­urs­dóttir sem skiptar fyrsta sæti á lista Sós­í­alista­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. „Fólk getur verið á örorku en samt labbað upp að eld­fjall­inu, jafn­vel uppá Esjuna! Sumir benda meira að segja á þetta á Facebook en átta sig þó ekki á því endi­lega að það sé kannski allt í lagi með fæt­urna á fólki með geð­hvörf.“

María Pét­urs­dóttir skrif­aði grein í júlí um flókna stöðu öryrkja við þær aðstæður sem núver­andi kerfi skapar.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

4. Svar við bréfi Viðars

„Við­ar, þér urðu á mis­tök. Öllum verða á mis­tök. Í þess­ari grein viljum við bara benda þér á þessi mis­tök sem þú gerðir sem fræði­mað­ur. Stundum er hægt að leið­rétta þau en það er alltaf hægt að læra af þeim. Dóttir okkar er sér­fræð­ingur í mis­tök­um, hún veit að næsta skrefið er að við­ur­kenna þau fyrir sjálfum sér.“

[adspot]Enn var grein Viðars Hall­dórs­sonar, pró­fess­ors í félags­fræði, um heim­ild­ar­mynd­ina Hækkum rána, til­efni skrifa. For­eldrar stúlku sem æfði körfu­bolta hjá Brynjari Karli Sig­urðs­syni í nokkur ár svör­uðu henni í febr­úar.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

3. Hvað gerist ef þú fellur í glóandi hraun?

„​​En þó gló­andi hraunið gleypi þig ekki með húð og hári er harla ólík­legt að þú sleppir frá því lif­andi. Í stað þess að sökkva í hraunið kviknar ein­fald­lega í þér. Gló­andi hraun er allt að 1250° heitt – meira en 10 sinnum heit­ara en sjóð­andi vatn - og því munu vít­iseldar umvefja þig á örskots­stundu með þeim afleið­ingum að þú fuðrar upp. Það eina sem eftir stendur verður aska sem svo bráðnar og rennur saman við gló­andi hraun­ið. Game over.“

Eigendur Icelandic Lava Show skrif­uðu hraun­mola á Kjarnann í kjöl­far þess að eld­gos hófst við Fagra­dals­fjall.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

2. Helgar tilgangurinn meðalið?

„Það eru sumir sem eru þeirrar skoð­unar að börn í nútíma­sam­fé­lagi lifi í of mik­illi bóm­ull, séu veik­geðja og það þurfi að herða þau upp. Þrátt fyrir að sú skoðun geti verið rétt­mæt þá er úrsér­gengin hug­mynda­fræði um ein­hverja töffara­hörku og gam­al­dags karl­mennsku ekki rétta svar­ið. Það er vafa­samt að gera til­raunir á við­kvæmum hópum eins og börn­um. Börn eiga ekki að vera til­rauna­dýr fyrir slíkar hug­mynd­ir. Að taka upp þessar gömlu og úreltu þjálf­un­ar­að­ferðir í íþrótta­þjálfun barna er í mínum huga eins og að for­eldrar myndu byrja að rass­skella börnin sín á nýjan leik til að halda uppi aga. Er þetta virki­lega stefnan sem við viljum taka?“

Ein umdeildasta grein árs­ins á Kjarn­anum var skrifuð af Viðari Hall­dórs­syni, pró­fessor í félags­fræði, um heim­ild­ar­mynd­ina Hækkum rána.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

1. Er stærsta peningabóla allra tíma að springa?

„Stóra spurn­ingin er ekki hvort heldur hvenær nið­ur­sveiflan kem­ur. Verður hún lítil eða mikil eða mesta hrun allra tíma? Hversu lengi mun vöru­skort­ur, umfram­eft­ir­spurn og aðgerðir rík­is­stjórna og seðla­banka duga til að halda þessu gang­andi og hvað þýðir þetta fyrir almenn­ing á Ísland­i.

Þurfum við að verja okkur og getum við varið okk­ur?

Eða eigum við bara að sitja á hlið­ar­lín­unni og bíða og sjá hvað ger­ist og vona það besta þegar kemur að því að deila út björg­un­ar­bát­um, spenna greipar og vona að hags­muna­tengd stjórn­völd setji fólkið í fyrsta sæti, í fyrsta sinn í sög­unni?

Eigum við að bíða og vera svo jafn jarm­andi hissa á þessu öllu sam­an, jafn hissa og stjórn­mála­fólkið og sér­fræð­ingar fjár­mála­kerf­is­ins verða þegar yfir­vof­andi skellur dynur yfir? Og sætta okkur enn og aftur við að vera sett aft­ast í röð­ina eftir björg­un­ar­vestum sem verða allt of fá þegar frekasti og rík­asti minni­hlut­inn hefur tekið sitt?“

Mest lesna aðsenda grein árs­ins á Kjarn­anum var skrifuð af Ragnari Þór Ing­ólfs­syni, for­manni VR, og birt­ist í byrjun nóv­em­ber.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár