Starfsmenn sem sinna COVID-sjúklingum fá álagsgreiðslu

Sér­stakar álags­greiðslur starfs­manna sem sinna COVID-sjúk­lingum sem stjórn­endur Land­spít­ala ákváðu nýlega að greiða, geta numið allt að 360 þús­und krónum á mán­uði. Mönnun á smit­sjúk­dóma­deild er tæp.

Skortur á hjúkrunarfræðingum hefur verið viðvarandi verkefni stjórnenda Landspítala lengi.
Skortur á hjúkr­un­ar­fræð­ingum hefur verið við­var­andi verk­efni stjórn­enda Land­spít­ala lengi. Mynd: Landspítali/Þorkell Þorkelsson

Stjórn­endur Land­spít­ala ákváðu nýverið að greiða sér­stakar álags­greiðslur til starfs­manna sem sinna COVID-sjúk­lingum. Mönnun er tæp á smit­sjúk­dóma­deild­inni þar sem flestir sjúk­ling­anna liggja. Skýr­ingin felst í því að hjúkrun COVID-sjúk­linga krefst mik­ils mann­afla. Tvöfalt fleiri hjúkr­un­ar­fræð­inga þarf til að sinna hverjum þeirra en almennt gengur og ger­ist á legu­deildum spít­al­ans. Þeir sinna störfum sínum við krefj­andi aðstæður, klæddir hlífð­ar­bún­aði löngum stundum enda sjúk­ling­arnir í ein­angrun.

Álag á starfs­fólk hefur því verið mikið og langvar­andi en bráð­lega verða liðin tvö ár frá því að fyrsti sjúk­ling­ur­inn með COVID-19 var lagður inn. Borið hefur á upp­sögnum starfs­manna síð­ustu mán­uði og veik­indi og til­færslur þeirra á aðrar deildir hafa einnig átt sér stað.

[adspot]

Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum frá Land­spít­al­anum um fjölda upp­sagna á þess­ari til­teknu deild og fékk þau svör að vegna starfs­manna­veltunnar af þeim sökum sem hér að undan voru raktar væri erfitt að festa fingur á nákvæma tölu. Álagið hefði verið afar mikið á starfs­fólk deild­ar­innar.

Sér­stakar álags­greiðslur starfs­manna sem sinna COVID-sjúk­lingum sem stjórn­endur ákváðu nýlega að greiða, geta numið allt að 360 þús­und krónum á mán­uði, segir í svari spít­al­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Frá 1. júlí hafa 239 sjúk­lingar þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús vegna COVID-19. 43 hafa þurft á gjör­gæslu­með­ferð að halda.

Tíu eru nú inniliggj­andi og eru fjórir á gjör­gæslu­deild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár