Sóttvarnalæknir vill endurvekja sóttkví við komuna til landsins

Sótt­varna­læknir leggur til að allir far­þegar fram­vísi nei­kvæðu PCR-prófi áður en komið er til lands­ins. Íslenskir rík­is­borg­arar geti farið í sýna­töku á heilsu­gæslu­stöð innan 48 klukku­stunda frá heim­komu og verði í sótt­kví þar til nei­kvæð nið­ur­staða berst.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggur til að farþegar fari í PCR-próf við komuna til landsins og sæti sóttkví á meðan neikvæðrar niðurstöðu er beðið.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir leggur til að far­þegar fari í PCR-próf við kom­una til lands­ins og sæti sótt­kví á meðan nei­kvæðrar nið­ur­stöðu er beðið. Mynd: Bára Huld Beck

Núgild­andi reglur á landa­mær­unum gilda til 15. jan­úar 2022 en í minn­is­blaði sem Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir skil­aði heil­brigð­is­ráð­herra í gær telur hann mik­il­vægt að skoða betur mögu­leik­ann á hert­ari aðgerðum á landa­mærum, bæði til styttri og lengri tíma.

[links]Ástæðan er hröð útbreiðsla ómíkron-afbrigðis kór­ónu­veirunnar sem sótt­varna­læknir telur að verði alls­ráð­andi hér á landi áður en langt um líður. Stærsta breyt­ingin sem hann leggur til á landa­mær­unum snýr að sótt­kví far­þega sem koma til lands­ins. Í núgild­andi reglum eru íslenskir rík­is­borg­arar und­an­þegnir þeirri skyldu að fram­vísa nei­kvæðu PCR- eða hrað­grein­ing­ar­prófi en þurfa þess í stað að und­ir­gang­ast slík próf innan tveggja sól­ar­hringa eftir komu til lands­ins.

Sótt­varna­læknir leggur til breyt­ing­una þar sem flestir sem nú eru að grein­ast á landa­mærum til­heyra þessum hópi far­þega og jafn­vel eru margir með nei­kvætt próf við komu og grein­ast ekki fyrr en að nokkrum dögum liðnum og hafa þannig náð að smita aðra. PCR-próf tekið um það bil sól­ar­hring eftir komu á að tryggja betur að þessir ein­stak­lingar grein­ist fyrr en ella að mati sótt­varna­læknis. Þá segir hann PCR-próf mun áreið­an­legri en hrað­grein­inga­próf og því þurfi að skoða hvort ekki eigi að krefja alla um PCR próf fyrir brott­för en ekki gefa kost á hrað­grein­ing­ar­prófi.

Þá telur sótt­varna­læknir einnig að kanna þurfi mögu­leika á því að prófa alla far­þega fyrir kór­ónu­veirunni við kom­una til lands­ins eins og áður hefur verið gert. „Á þess­ari stundu er erfitt að sjá að það sé ger­legt vegna tak­mark­aðrar sýna­töku­getu á landa­mær­unum og tak­mark­aðrar grein­ing­ar­getu. Þetta þarf hins vegar að skoða betur,“ segir í minn­is­blað­inu. Sótt­varna­læknir segir að skoða þurfi þá leið að sýni séu tekin af ferða­mönnum á landa­mærum en af öðrum á heilsu­gæslu­stöð. Einnig þurfi að kanna hvernig auka megi grein­ing­ar­getu.

Landamæra­hópur for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins fær það verk­efni að skoða þær til­lögur á landa­mær­unum sem sótt­varna­læknir leggur til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár