Ómíkron virðist hættuminna en „of snemmt að hrósa happi“

Fyrstu vís­bend­ingar um alvar­leika ómíkron-afbrigðis kór­ónu­veirunnar eru „nokkuð upp­örvandi“ að mati Anthony Fauci, helsta ráð­gjafa banda­rískra stjórn­valda í far­aldr­inum. Hann segir þó enn of snemmt að hrósa happi.

Læknirinn Anthony Fauci er helsti ráðgjafi bandarískra stjórnvalda í aðgerðum vegna faraldursins.
Lækn­ir­inn Anthony Fauci er helsti ráð­gjafi banda­rískra stjórn­valda í aðgerðum vegna far­ald­urs­ins. Mynd: EPA

Augu vís­inda­manna um allan heim bein­ast nú að Suður-Afríku og þróun far­ald­urs­ins þar. Smitum af kór­ónu­veirunni hefur fjölgað hratt í land­inu og í ljós hefur komið að þau eru flest af veiru­af­brigð­inu nýja, ómíkron, sem þar­lendir vís­inda­menn greindu fyrstir allra í lok nóv­em­ber. Afbrigðið hefur margar stökk­breyt­ingar og hafa sumar þeirra valdið áhyggjum enda áður tengst breyt­ingum á eig­in­leikum SARS-CoV-2 veirunnar hvað varðar smit­hæfni.

Enn er tölu­vert í að vís­indin færi okkur full­vissu um ómíkron en fyrstu vís­bend­ingar um alvar­leika afbrigð­is­ins eru „nokkuð upp­örvandi“ sagði lækn­ir­inn Anthony Fauci, helsti ráð­gjafi banda­rískra stjórn­valda í far­aldr­inum, um helg­ina. Of snemmt sé þó „að hrósa happi“ enda aðeins nokkrir dagar frá því að afbrigðið upp­götv­að­ist og fór undir smá­sjánna á rann­sókn­ar­stofum vítt og breitt í ver­öld­inni. Fyrstu vís­bend­ing­arnar sem Fauci vís­aði til í við­tali um helg­ina eru þær að þrátt fyrir mikla fjölgun smita í Suður-Afríku hefur inn­lögnum á sjúkra­hús ekki fjölgað ískyggi­lega – að minnsta kosti enn sem komið er. „Þótt það sé of snemmt að gefa út stað­fest­ingu á þessu þá virð­ist ekki gríð­ar­legur alvar­leiki fylgja [ómíkron],“ sagði Fauci. Hann ítrek­aði að fara yrði var­lega í allar álykt­anir á þess­ari stundu. Ekki væri hægt að full­yrða að afbrigðið væri væg­ara en delta þrátt fyrir að virð­ast meira smit­andi.

[adspot]

Meðal varnagla sem sér­fræð­ingar hafa sett hvað varðar þessar fyrstu vís­bend­ingar sem Fauci vísar til er sá að suð­ur­a­fríska þjóðin er ung miðað við margar aðrar og margt ungt fólk hefur verið að grein­ast að und­an­förnu. Það sýnir flest væg og lítil ein­kenni en óvíst er hvaða áhrif ómíkron myndi hafa ef það yrði útbreitt í eldri ald­urs­hópum.

Ein­hverja daga og jafn­vel vikur þurfa að líða þar til þetta kemur í ljós og nið­ur­stöður fást í rann­sóknir á því hvort að ómíkron er raun­veru­lega meira smit­andi en delta, hvort að það sé búið eig­in­leikum til að kom­ast frekar fram­hjá vörnum lík­am­ans og valda alvar­legri sýk­ingu og hvort að bólu­efnin veiti góða vörn gegn því.

„Nú þegar við erum að fara inn í fjórðu bylgju COVID-19 erum við að sjá fjölgun smita sem við höfum ekki upp­lifað áður,“ skrifar Cyril Ramaphosa, for­seti Suður-Afríku í dag­legu frétta­bréfi sínu í morgun. Ómíkron sé að verða útbreiddasta afbrigði kór­ónu­veirunnar á öllum svæðum í land­inu. Af þessum sökum séu sjúkra­hús lands­ins að und­ir­búa sig fyrir fjölgun inn­lagna. Fyrir viku greindust 2.300 manns með veiruna en á föstu­dag greindust yfir 16 þús­und ný smit.

Ýmsar vísbendingar en margt á huldu

Innan við 30 pró­sent íbúa Suður-Afríku eru bólu­sett. For­set­inn segir að loks­ins sé til nóg af bólu­efni til í land­inu og að bólu­setn­ing sé lyk­ill­inn að því að hefta útbreiðslu far­ald­urs­ins. R-talan, sem segir til um hversu marga hver og einn sem er smit­aður smitar, var 2 í Suður-Afríku í lok síð­ustu viku. Talan var vel undir 1 í sept­em­ber. Þessi þróun þykir benda til að ómíkron sé þrisvar til sex sinnum meira smit­andi en delta-afbrigðið, hefur vís­inda­tíma­ritið Nature eftir Richard Lessels, smit­sjúk­dóma­sér­fræð­ingi við Durban-háskóla í Suður-Afríku. Margar breytur geta þó haft áhrif á þessa töl­fræði. Ein er sú að mun fleiri sýni eru nú tekin í land­inu en fyrir nokkrum mán­uðum og fleiri eru rað­greind.

[links]Sér­fræð­ingar í Suður-Afríku hafa einnig sagt margt benda til þess að hætta á end­ur­sýk­ingu af COVID-19 sé þrisvar sinnum meiri vegna ómíkron en ann­arra afbrigða. Þeir segja hins vegar líka að hingað til virð­ist ómíkron ekki valda alvar­legri veik­indum en delta-afbrigði veirunnar. „En við fylgj­umst náið með fjölgun smita og inn­lagna,“ skrifar for­set­inn.

Sótt­varna­stofnun Evrópu hefur varað við því að miðað við fyrstu upp­lýs­ingar um smit­hæfni ómíkron gæti afbrigðið orðið ráð­andi í Evrópu innan nokk­urra mán­aða. Mörg vest­ræn ríki eru að glíma við stóra bylgju far­ald­urs­ins en af völdum delta-afbrigð­is­ins. Sótt­varna­ráð­staf­anir hafa á síð­ustu vikum verið hertar víða af þeim sökum.

Við­brögðin við ómíkron voru svo þau að setja ferða­bann á ríki í sunn­an­verðri Afríku. Fram­kvæmda­stjórar Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar og Sam­ein­uðu þjóð­anna hafa hvatt til hóf­stillt­ari við­bragða og benda á að ferða­bönn hafi hingað til lítið gagn­ast til lengri tíma. Enda hefur það þegar sýnt sig að ómíkron hefur breiðst út til á þriðja tug landa, þar með talið Íslands.

„Aðskilnaðarstefna“ ferðatakmarkana

Meðal þeirra ríkja sem ferða­bönnin og tak­mark­anir bitna nú helst á er Nígería. Bresk stjórn­völd hafa sett Nígeríu á „rauðan lista“ sem þýðir að fólk sem ferð­ast þaðan þarf að fara í sótt­kví í tíu daga við kom­una til Bret­landseyja. Sarafa Tunji Isola, sendi­herra Nígeríu í Bret­landi, segir ferða­tak­mark­anir á lönd Afríku vera „aðskiln­að­ar­stefnu“. Nígería taki undir með fram­kvæmda­stjóra Sam­ein­uðu þjóð­anna í þessum efnum um að þessar tak­mark­anir skapi gjá milli ríkja heims á tímum þar sem sam­staða sé mik­il­væg­ari en nokkru sinni áður.

Kit Malthouse, ráð­herra stefnu­mála í bresku rík­is­stjórn­inni, segir að orðið „aðskiln­að­ar­stefna“ í þessu sam­bandi sé „óheppi­legt orða­lag“. Hann segir stjórn­völd í Bret­landi gera sér grein fyrir því að ferða­tak­mark­anir á ein­stök ríki valdi erf­ið­leikum „en við erum að reyna að kaupa okkur smá tíma svo að vís­inda­menn okkar geti rann­sakað veiruna og metið hversu erfitt það á eftir að reyn­ast okkur að fást við hana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár