Ísland kaupir 72 skammta af lyfi til að draga úr alvarlegum COVID-19 veikindum

Land­spít­al­inn mun sjá um kaup á lyf­inu Sotrovimab sem á að gagn­ast best þeim sem eru óbólu­settir eða þeim sem mynda illa mótefni vegna lyfja eða sjúk­dóma.

Heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa ákveðið að kaupa 72 skammta af nýju lyfi sem þykir gefa góða raun til að draga úr hættu á alvar­legum veik­indum fólks vegna COVID-19 við vissar aðstæður. Lyfið heitir Sotrovimab og er frá lyfja­fram­leið­and­anum GlaxoSmit­hKline. Um er að ræða svo­kallað ein­stofna mótefni. Land­spít­ali mun ann­ast fram­kvæmd inn­kaupanna.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að með­ferð með ein­stofna mótefnum gagn­ist best þeim sem eru óbólu­settir eða þeim sem mynda illa mótefni vegna lyfja eða sjúk­dóma. Notkunin er bundin við upp­haf veik­inda hjá þeim sem eru í auk­inni hættu á að þróa með sér alvar­legan sjúk­dóm.

Til að byrja með hefur verið ákveðið að kaupa 72 skammta af lyf­inu, sem svo­kallað und­an­þágu­lyf og er það vænt­an­legt er til lands­ins síðar í þessum mán­uði.

[adspot]Sem stendur eru 76 pró­sent allra lands­manna full­bólu­settir og 90 pró­sent þeirra sem eru tólf ára og eldri. Þá hafa 113.677 ein­stak­lingar fengið örv­un­ar­skammt af bólu­efni auk þess sem 39.396 manns fengu við­bót­ar­skammt eftir að hafa þegið Janssen-bólu­efnið.

Alls hafa 18.333 stað­fest COVID-19 smit greinst á Íslandi frá upp­hafi far­ald­urs. 548 manns hafa lagst inn á spít­ala vegna smita, þar af 95 á gjör­gæslu. Tæpur helm­ingur þess hóps sem lagst hefur inn á gjör­gæslu, alls 41 ein­stak­lingur, hefur verið lagður inn eftir 1. júlí 2021. Nýgengi inn­an­lands­smita nú er 488,4, en um er að ræða 14 daga nýgengi á hverja 100 þús­und íbúa. Eins og er eru 23 á sjúkra­húsi vegna smita, þar af fjórir á gjör­gæslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár