Bólusetningarvottorð gildi aðeins í níu mánuði

Stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur lagt til að bólu­setn­ing­ar­vott­orð gildi í níu mán­uði í stað tólf. Örv­un­ar­skammtur fram­lengi svo gild­is­tím­ann.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur lagt til að öll aðild­ar­ríkin upp­færi reglur sínar um ferða­lög innan sam­bands­ins. Stjórnin mælir m.a. með að bólu­setn­ing­ar­vott­orð gildi aðeins í níu mán­uði í stað 12 hingað til.

Í frétta­til­kynn­ingu sem gefin var út í síð­ustu viku er bent á til­mæli Sótt­varna­stofn­unar Evrópu um örv­un­ar­skammta sem gefa megi full­orðnum sex mán­uðum eftir að fullri bólu­setn­ingu var náð og hvetur fram­kvæmda­stjórnin aðild­ar­ríkin til að taka „nauð­syn­leg skref“ til að það fólk sem er að nálg­ast níu mán­uði frá fullri bólu­setn­ingu hafi aðgang að örv­un­ar­skammti. Við hann sé gild­is­tími vott­orðs­ins fram­lengdur.

Nokkur Evr­ópu­lönd hafa und­an­farna daga og vikur ákveðið að bólu­setn­ing­ar­vott­orð dugi aðeins í níu mán­uði. Aust­ur­ríki er eitt þeirra en þar var nýverið gripið til útgöngu­banns vegna upp­sveiflu í far­aldr­inum.

Fram­kvæmda­stjórnin hvatti ríki ESB einnig til að setja ekki hertar tak­mark­anir á ferða­lög fólk sem væri með gilt bólu­setn­ing­ar­skír­teini. Hins vegar hefur hið nýja afbrigði veirunnar, Ómíkron, snar­lega breytt nálgun margra ríkja í þessum efnum og ákvarð­anir eru teknar hratt. Þótt rað­grein­ing á veiru­af­brigð­inu sýni að það hafi stökk­breyt­ingar sem gætu fræði­lega gert smit­hæfni þess meiri er enn ekk­ert stað­fest í þeim efnum.

Innan Evr­ópu­sam­bands­ins er far­ald­ur­inn nú í hvað mestri upp­sveiflu í Póllandi, Hollandi, Tékk­landi og Belgíu. Einnig er staðan að versna á Spáni, Portúgal og í Frakk­landi – þeim þremur löndum sem hafa þótt hvað örugg­ust til ferða­laga síð­ustu vikur og mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár