Veiran skæða kallar á viðbrögð og takmarkanir víða um Evrópu

Stutt er síðan að Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin gaf það út að Evrópa væri nú mið­punktur kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Víða um álf­una er verið að herða aðgerðir – ýmist gagn­vart öllum eða þá sér­tækt gagn­vart þeim sem hafa kosið að sleppa bólu­setn­ingu.

Kona á ferð í gegnum jólamarkað í miðborg Berlínar í gær. Haldið fjarlægð, hnerrið í olnbogabótina og gleðileg jól.
Kona á ferð í gegnum jóla­markað í mið­borg Berlínar í gær. Haldið fjar­lægð, hnerrið í oln­boga­bót­ina og gleði­leg jól. Mynd: EPA

Eins og ýmsir höfðu ótt­ast eða spáð breið­ist kór­ónu­veirupestin COVID-19 nú um Evrópu á miklum hraða sam­fara kóln­andi veðri og auknum manna­mótum inn­an­dyra. Framundan gætu verið erf­iðir mán­uðir, sér í lagi í þeim ríkjum þar sem bólu­setn­ing­ar­hlut­fall er ekki hátt.

Hér á landi var boðað fyrir innan við mán­uði síðan að stefnt væri að aflétt­ingu allra tak­mark­ana í sam­fé­lag­inu þann 18. nóv­em­ber, eða á fimmtu­dag, ef allt gengi vel. Skemmst er frá því að segja að allt gekk ekki vel og veiran fór á flug.

Þess í stað er búið að herða aðgerðir tvisvar og eru nú 50 manna fjölda­tak­mörk í gildi og skerð­ingar á opn­un­ar­tíma veit­inga­staða og kráa, auk ann­ars. Sótt­varna­læknir hefur sagt að stjórn­völd þurfi að vera til­búin að grípa til enn harð­ari aðgerða.

Staðan er ekki ýkja ólík í mörgum löndum Evrópu. Þar sem búið var að kveðja tak­mark­anir og bjóða veiru­lausa tíma vel­komna er nú verið að grípa til hertra aðgerða þar sem ljóst þykir að brestir komi í heil­brigð­is­kerfi ef álagið verður við­var­andi um lengri tíma.

Kjarninn tók saman hvernig stjórn­völd víða um álf­una hafa verið að bregð­ast við þeirri nýju stöðu sem upp er komin í far­aldr­inum – að veiran geisi og valdi ama þrátt fyrir að nóg sé til af bólu­efni handa öllum sem vilja í þess­ari auð­ugu heims­álfu.

Holland tekur skref til baka

Í Hollandi tóku nýjar tak­mark­anir á lands­vísu gildi síð­asta laug­ar­dag. Þær fela auk ann­ars í sér að allar versl­anir sem selja annað en nauð­synja­vörur þurfa að loka dyrum sínum kl. 18 og mat­vöru­versl­anir og veit­inga­staðir þurfa að vera búnir að loka kl. 20. Áhorf­endur eru ekki leyfðir á íþrótta­við­burðum – karla­lands­lið Hollands í fót­bolta spilar fyrir luktum dyrum gegn Noregi í kvöld.

Rík­is­stjórnin hefur sett fram áætl­anir um breyttan kór­ónu­veirupassa, sem fæli þá í sér að ein­ungis þeim sem eru bólu­settir eða hafa nýlega fengið COVID-19 yrði hleypt inn á ákveðna staði. Þessi nýi passi myndi leysa þann eldri, sem gerði kröfu um nýtt nei­kvætt próf fyrir óbólu­setta, af hólmi.

Þetta er þó umdeilt og var til umræðu í hol­lenska þing­inu í dag. Ekki er sögð sam­staða innan rík­is­stjórn­ar­innar um að úti­loka óbólu­setta frá því að sækja almenn­ings­staði á borð við kaffi­hús – og hol­lenska stúd­enta­hreyf­ingin hefur lagst harð­lega gegn því að háskóla­stúd­entar verði úti­lok­aðir frá stað­námi vegna þess að þeir hafi ekki látið bólu­setja sig.

Austurríki vonast til þess að geta þvingað fleiri í bólusetningu

Nýjar tak­mark­anir í Aust­ur­ríki sem tóku gildi í gær hafa stolið fyr­ir­sögn­unum í heims­press­unni und­an­farna daga, en þær í reynd úti­loka óbólu­sett fólk, alveg niður í 12 ára aldur, frá þátt­töku í sam­fé­lag­inu. Óbólu­sett fólk má þannig ein­ungis fara út úr húsi til þess að sækja sér nauð­syn­leg­ustu þjón­ustu.

Lög­reglan í Aust­ur­ríki hefur fengið það verk­efni í fangið að fylgj­ast með fólki á almanna­færi og athuga hvort það geti fram­vísað bólu­setn­inga­vott­orði eða vott­orði um nýleg veik­indi vegna kór­ónu­veirunnar. Þetta hefur mælst ansi mis­jafn­lega fyrir og mót­mæli hafa átt sér stað all­víða um landið.

[adspot]

Einungis um 65 pró­sent Aust­ur­rík­is­manna eru full­bólu­sett, sem er lágt á evr­ópskan mæli­kvarða, en merki eru þegar sögð um að fleiri séu að skila sér í bólu­setn­ingu eftir að hinar umdeildu aðgerðir tóku gildi.

Þessar þving­un­ar­að­gerðir gagn­vart bólu­setn­ingum í Aust­ur­ríki bera með sér ákveðin lík­indi við þær sem frönsk yfir­völd gripu til í júlí­mán­uði, en þá var Frökkum tjáð að bólu­setn­ing­ar­vott­orðs yrði kraf­ist ef fólk ætl­aði sér að sækja ýmsa við­burði og þjón­ustu í land­inu.

Í kjöl­farið hefur hlut­fall þeirra sem hafa fengið að minnsta kosti einn skammt af bólu­efni risið úr 54 pró­sentum í rúm 76 pró­sent – og enn sem komið er hið minnsta er haust­bylgja COVID-19 í Evrópu lítið að trufla Frakka.

Þjóðverjar hugsa sinn gang

Veiran er byrjuð að setja mark sitt á þýskt sam­fé­lag svo um munar. Smit­fjöldi er þar í hæstu hæðum frá upp­hafi far­ald­urs­ins, sér­stak­lega í austur- og suð­aust­ur­hluta lands­ins, þar sem hlut­fall bólu­settra er víða all­nokkuð undir lands­með­al­tal­inu – sem er þó ekki nema rúm 67 pró­sent.

Í Þýska­landi hafa sam­bands­ríkin sextán þó hingað til fengið nokkuð frelsi til þess að ákvarða hvert um sig hvernig skuli bregð­ast við veirunni, en það kann að fara að breyt­ast.

Ný rík­is­stjórn Sós­í­alde­mókrata, Græn­ingja og Frjálsra demókrata, sem kynnir stjórn­ar­sátt­mála sinn á næst­unni, hefur sam­kvæmt Deutsche Welle sam­mælst um að nýjar tak­mark­anir verði lagðar fyrir þingið í vik­unni, sem fela meðal ann­ars í sér skyldu­bólu­setn­ingu fólks sem starfar með við­kvæmum hópum, t.d. á hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Flokk­arnir þrír eru einnig sagði hafa sam­mælst um að ein­hvers­konar kór­ónu­veirupassi verði tek­inn upp á lands­vísu og að fólk verði að sýna fram á bólu­setn­ingu, afstaðin veik­indi eða nei­kvæð próf, til þess að fá að stíga um borð í lestir og rútur. Þá er einnig til skoð­unar að grípa til ein­hverra fjölda­tak­mark­ana bæði í almanna­rýmum og í heima­húsum – en til stendur að ræða þetta nánar í rík­is­þing­inu á fimmtu­dag.

Læknar kenna stjórn­mála­mönnum sumir um vöxt far­ald­urs­ins og þau við­horf heyr­ast að það hefði átt að kippa í brems­una fyrir all­nokkru. Susanne Johna, sem leiðir stétt­ar­fé­lag lækna, sagði nýlega við rík­is­sjón­varps­stöð­ina Tagesschau að varn­að­ar­orðum hefði verið vísað á bug sem hræðslu­á­róðri.

„Áríðandi ráð­gjöf var hundsuð á meðan kosn­inga­bar­áttan stóð yfir þar sem hún var tví­mæla­laust ekki póli­tískt heppi­leg,“ sagði Johna, en kosn­ing­arnar í Þýska­landi fóru fram þann 26. sept­em­ber.

Norsk sjúkrahús undir álagi – Bólusettir þurfa ekki í próf í Svíþjóð

Á Norð­ur­lönd­unum er staðan ansi mis­jöfn á milli ríkja. Í Noregi, Danmörku og Finn­landi er fjöldi greindra smita á degi hverjum nú svip­aður eða jafn­vel meiri en þegar hann var hvað mestur á fyrri stigum far­ald­urs­ins, en í Svíþjóð grein­ist hins vegar lítið af smitum um þessar mundir.

Þar var sú stefna tekin upp af hálfu heil­brigð­is­yf­ir­valda í upp­hafi þessa mán­aðar að hætta að hvetja bólu­sett fólk í skimun gegn veirunni þrátt fyrir að það fyndi fyrir ein­kennum veik­inda sem gætu bent til þess að þau væru með COVID-19. Skiptar skoð­anir eru á ágæti þessa í Svíþjóð.

Far­alds­fræð­ingar hafa stigið fram og gagn­rýnt þessa breyttu stefnu og sagt hana leiða til þess að erf­ið­ara verði að kom­ast að því hvort far­ald­ur­inn í Svíþjóð er í vexti eða ekki. Halda ætti áfram að beita smitrakn­ingu til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar – ef fólk skili sér ekki í próf verði það erfitt.

Í til­kynn­ingu frá norsku rík­is­stjórn­inni í gær sagði að heil­brigð­is­þjón­usta víða um landið væri undir pressu vegna aukn­ingar í inn­lögnum. „Ef okkur tekst ekki að snúa þessu við mun heilsu- og umönn­un­ar­þjón­usta brátt bogna. Sveit­ar­fé­lög með útbreidd smit þurfa að grípa til aðgerða,“ segir í til­kynn­ingu norskra yfir­valda.

Nýjar aðgerðir sem eiga við um allt land voru líka kynntar, en hver sá sem er óbólu­settur, yfir 18 ára aldri og býr á sama heim­ili og ein­hver sem grein­ist með COVID-19 hefur frá og með morg­un­deg­inum skyldu til þess að und­ir­gang­ast nokkur COVID-19 próf – eitt á dag í heila viku ef sjálfs­próf eru notuð, en annan hvern dag á sama tíma­bili ef farið er í PCR-próf.

Að auki boða norsk stjórn­völd að þau ætli að skoða að útvíkka notkun á COVID-19-pass­anum, sem heldur utan um bólu­setn­ingar, nýleg veik­indi eða nýleg nei­kvæð próf. Haft er eftir Jonas Gahr Støre for­sæt­is­ráð­herra í til­kynn­ingu stjórn­valda að athugað verði hvort kröfur um notkun hans á stöðum eins og næt­ur­klúbbum, tón­leika­stöðum, íþrótta­leikjum og leik­húsum séu fýsi­legar.

„Nú þegar búið er að bjóða öllum sem vilja bólu­setn­ingu er ein­fald­ara að hugsa sér að nota COVID-19-vott­orðið til að koma í veg fyrir stór hópsmit,“ er haft eftir Støre.

Ekkert vín eftir miðnætti á mörgum finnskum krám

Finnar eru um þessar mundir að sjá fleiri smit en nokkru sinni fyrr í far­aldr­inum og það sem meira er, fjöldi sjúkra­húsinn­lagna er einnig að nálg­ast þá toppa sem urðu þegar allt sam­fé­lagið var óbólu­sett. Sanna Marin for­sæt­is­ráð­herra hefur lýst stöð­unni sem alvar­legri, sam­kvæmt fréttum rík­is­fjöl­mið­ils­ins Yle.

Á fundi finnsku rík­is­stjórn­ar­innar í gær­kvöldi var ákveðið að byrja að láta tak­mark­anir um starf­semi veit­inga­staða- og kráa ná til fleiri hér­aða lands­ins og munu þær teygja sig um allan suð­vest­ur­hluta lands­ins frá og með morg­un­deg­inum.

Þessar tak­mark­anir fela það helst í sér að það verður að hætta að afgreiða áfengi á mið­nætti og að gesta­fjöldi er skertur niður í allt að 50 pró­sent af því sem staðir hafa starfs­leyfi fyrir.

Almennt mega 50 manns koma saman í rýmum og við­burðum, en við­burða­haldrar, veit­inga­staðir og krár geta fengið und­an­þágur frá þessum reglum með því að skylda við­skipta­vini sína til að nýta COVID-19-vott­orð til að sýna fram á að þeir séu bólu­settir, hafi staðið af sér veik­indi eða séu með nýtt próf.

Staðan er einna erf­ið­ust í höf­uð­borg­inni Helsinki og þar er heil­brigð­is­kerfið byrjað að eiga í vand­ræðum. Þar stendur til að tak­marka sam­komur inn­an­dyra meira en nú er, í næstu viku, sam­kvæmt frétt Yle.

Sjúkra­hússinn­lögnum í Danmörku hefur farið fjölg­andi und­an­farnar vikur, þó staðan sé langt um betri nú en þegar bólu­setn­ing var ekki orðin útbreidd síð­asta vetur. Enn er þó ekki búið að grípa til aðgerða ann­arra en þeirra að taka upp kór­ónu­veirupass­ann á nýjan leik – og krefj­ast sönn­unar á bólu­setn­ingu, afstöðnum veik­indum eða nýlegu nei­kvæðu prófi fyrir þátt­töku í við­burðum.

Kjörsókn í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum sem þar fóru fram í dag er líka sögð með besta móti og ekki er að sjá að áhyggjur af veirunni hafi haldið kjós­endum heima.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár