Beinir og óbeinir styrkir hins opinbera til bænda 29,1 milljarður króna í fyrra

Hag­fræði­pró­fessor segir að íslenska land­bún­að­ar­kerfið kosti skatt­greið­endur og neyt­endur að minnsta kosti tæp­lega 30 millj­arða króna á ári í beina og óbeina styrki. Enn eru fimm ár þar til gild­andi búvöru­samn­ingar renna út.

Gildandi búvörusamningar, sem ramma inn beinar greiðslur til bænda, voru undirritaðir af þáverandi landbúnaðarráðherra og þáverandi fulltrúum bænda árið 2016.
Gildandi búvöru­samn­ingar, sem ramma inn beinar greiðslur til bænda, voru und­ir­rit­aðir af þáver­andi land­bún­að­ar­ráð­herra og þáver­andi full­trúum bænda árið 2016. Mynd: stjornarrad.is

Á árinu 20202 námu beinir styrkir úr rík­is­sjóði til bænda 16,3 millj­örðum króna og óbeinir styrkir til þeirra 12,8 millj­örðum króna, með hlið­sjón af efni Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar (OECD).

Beinu styrkirnir eru það skattfé sem rennur beint til bænda úr rík­is­sjóði en þeir óbeinu eru styrkir sem neyt­endur greiða í formi hærra vöru­verðs sem haldið er uppi með toll­skrá og öðrum inn­flutn­ings­tálm­unum.

Þetta kemur fram í nýbirtu svari á Vís­inda­vef Háskóla Íslands þar sem spurn­ing­unni „Hvað greiðir rík­is­sjóður mikið á ári til land­bún­aðar á Íslandi?“ er svarað af Þórólfi Matth­í­assyni, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands.

Í svar­inu segir þó að líta beri á þessa nið­ur­stöðu, að íslenskur land­bún­aður fái alls tæp­lega 30 millj­arða króna með­gjöf á ári frá skatt­greið­endum og neyt­endum, sem lægri mörk hins raun­veru­lega stuðn­ings. Auk inn­flutn­ings­tak­mark­ana búi úrvinnslu­greinar land­bún­aðar við und­an­þágur frá sam­keppn­is­lögum sem ekki sé tekið til­lit til í reikni­verki OECD sem stuðst er við í svar­inu. „Það gefur þessum fyr­ir­tækjum færi á að stunda við­skipta­hætti sem önnur fyr­ir­tæki í skyldum rekstri geta ekki. Vís­bend­ingar eru um að slíkir við­skipta­hættir þrýsti upp verði á fram­leiðslu afurða­stöðva land­bún­að­ar­ins umfram það sem ella hefði orðið.“

Þá sé heldur ekki tekið til­lit til þess að bændur hafi gjald­frjálsan aðgang að afréttum sem þeir hafi nýtt með ósjálf­bærum hætti.

Umdeildir samningar til tíu ára

Búvöru­­samn­ing­­arnir, sem ramma inn beinar greiðslur til bænda úr rík­is­sjóði, eru fjórir samn­ing­­ar: Ramma­­samn­ingur um almenn starfs­skil­yrði land­­bún­­að­­ar­ins og samn­ingar um starfs­skil­yrði naut­­­gripa­­­rækt­­­­­ar, sauð­fjár­­­­­ræktar og garð­yrkju.

[adspot]Síðustu búvöru­samn­ing­­­ar voru und­ir­­­rit­aðir 19. febr­­­úar 2016 af full­­­trúum bænda ann­­­ars vegar og full­­­trúum rík­­­is­ins hins vegar. Fyrir hönd rík­­­is­ins skrif­uðu Sig­­­urður Ingi Jóhanns­­­son, þáver­andi land­­­bún­­­að­­­ar­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­­­son, fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, undir samn­ing­anna.

Þeir voru afar umdeildir og vöktu upp miklar deilur í sam­­fé­lag­inu. Þrennt skipti þar mestu. Í fyrsta lagi lengd þeirra, en samn­ing­­arnir bundu hendur rík­­is­­stjórn­a í að minnsta kosti þrjú kjör­tíma­bil. Í öðru lagi feiki­lega hár kostn­aður sem greiddur er úr rík­­is­­sjóði til að við­halda kerfi sem að mati margra hags­muna­að­ila er fjand­­sam­­legt neyt­endum og bændum sjálfum og gagn­­ast fyrst og síð­­­ast stórum milli­­liðs­­fyr­ir­tækjum eins og Mjólk­­ur­­sam­­söl­unni, Kaup­­fé­lagi Skag­­firð­inga og Slát­­ur­­fé­lagi Suð­­ur­lands. Í þriðja lagi var gagn­rýnt að engir aðrir en bændur og for­svar­s­­menn rík­­is­ins hafi verið kall­aðir að borð­inu þegar samn­ing­­arnir voru und­ir­­bún­­­ir.

Kostnaðurinn meiri en áætlað var

Greiðslur úr rík­­is­­sjóði vegna samn­ings­ins voru áætl­aðar 132 millj­­örðum króna á samn­ings­­tím­an­um, eða að með­­al­tali 13,2 millj­­arðar króna á ári. Auk þess eru samn­ing­­arnir tvö­­falt verð­­tryggð­­ir. Þ.e. þeir taka árlegum breyt­ingum í sam­ræmi við verð­lags­­upp­­­færslu fjár­­laga og eru „leið­rétt­ir“ ef þróun með­­al­tals­­vísi­­tölu neyslu­verðs verður önnur en verð­lags­­for­­sendur fjár­­laga á árinu.

Ljóst er, miðað við svar Þórólfs sem birt­ist í vik­unni, að beini kostn­að­ur­inn við samn­ing­anna er meiri en áætlað var þegar þeir voru gerðir.

Í samn­ing­unum var stefnt að því að kvóta­­­kerfi í mjólk­­­ur­fram­­­leiðslu og sauð­fjár­­­­­rækt verði lagt nið­­­ur. Hins vegar var ákveðið að halda þáver­andi stöðu óbreyttri um ein­hvern tíma og setja ákvörðun um afnám kvóta­­­kerf­is­ins í atkvæða­greiðslu meðal bænda árið 2019. Þegar hún fór fram sam­þykktu 89 pró­sent bænda að við­halda kvóta­kerf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár