IKEA segir framboðstruflanir geta varað fram á næsta ár

Hrá­vöru­skortur og hökt í gáma­flutn­ingum hefur leitt til skorts á ýmsum neyslu­vörum um allan heim. Húsgögn eru þar á meðal, en sam­kvæmt IKEA mun taka marga mán­uði að vinda ofan af yfir­stand­andi fram­boðs­trufl­unum.

Hús­gagna­fram­leið­and­inn IKEA segir að fyr­ir­tæki muni lík­lega verða fyrir töfum á afhend­ingu á vörum sínum fram á næsta ár, þar sem erfitt verður að flytja vörur sem búnar eru til í Kína til Evrópu. Upp­lýs­inga­full­trúi IKEA á Íslandi segir ástandið hafa verið sveiflu­kennt, en mikil for­gangs­röðun hafi átt sér stað til að ganga úr skugga um að mik­il­væg­ustu vör­urnar skili sér.

Virðiskeðjan undir álagi

Líkt og frétta­stofa CNN greindi frá fyrr í vik­unni er vöru­skortur víða um heim vegna óvenju­mik­ils álags á alþjóð­legu virð­is­keðj­unni. Álagið er meðal ann­ars til­komið vegna skorts á hrá­vörum, en miklar breyt­ingar í eft­ir­spurn, ásamt skorti á vöru­bíl­stjórum og auknum sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum á landa­mærum hafa einnig leitt til þess að mikið hökt hefur mynd­ast í vöru­flutn­ingum.

Sér­fræð­ingar telja að það muni taka langan tíma að vinda ofan af þessum vanda, en ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Moody’s Analytics sagði stöð­una munu verða „verri áður en hún verður betri“ í nýlegri grein­ingu.

Meiri eftirspurn en hökt á framboði

Samkvæmt frétt Reuters frá því í gær hafa IKEA-útibú í Banda­ríkj­unum orðið verst úti vegna fram­boðs­trufl­an­anna, en vanda­mál tengd þeim hafa einnig sprottið upp í úti­búum fyr­ir­tæk­is­ins í Evrópu. Þó er mikil eft­ir­spurn eftir vörum hús­gagna­fram­leið­and­ans, en IKEA hefur aldrei selt jafn­mikið og á nýliðnu skatta­ári. Heild­ar­verð­mæti seldra vara fyr­ir­tæk­is­ins tæpum 42 millj­örðum evra á nýliðnu skatta­ári, eða um 6.300 millj­örðum íslenskra króna, sam­kvæmt frétt sem birt­ist á vef Nasdaq fyrr í vik­unni. Það er meira en tvö­föld lands­fram­leiðsla Íslands.

Jon Abra­hams­son, fram­kvæmda­stjóri Inter IKEA, sem tengir leyf­is­hafa á vöru­merki IKEA hvers lands við fram­leið­endur, sagði í við­tali við Reuters að hann gerði ráð fyrir að fram­boðs­trufl­anir myndu ná fram á næsta ár. Samkvæmt honum er mesti flösku­háls­inn að flytja þær vörur fyr­ir­tæk­is­ins sem eru fram­leiddar í Kína til vest­ur­landa. Allt að fjórð­ungur af vörum IKEA eru nú fram­leiddar í land­inu.

Sveiflukennt ástand hérlendis

Guðný Camilla Ara­dóttir, yfir­maður sam­skipta­deildar IKEA á Íslandi, segir stöð­una í vöru­birgðum versl­un­ar­innar hér­lendis hafa verið sveiflu­kennda hingað til í far­aldr­inum og að stundum komi tíma­bil þar sem ákveðnar vörur eru ekki fáan­legar. Hins vegar bætir hún því við að fyr­ir­tækið hafi brugð­ist við þessum aðstæðum á alþjóða­vísu fyrir mörgum mán­uðum síðan með því að for­gangs­raða í aðfanga­keðj­unni þannig að mik­il­væg­ustu vör­urnar skili sér fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár