Óleyfilegt að auglýsa að mjólkurvörur bæti tannheilsu barna

Það má ekki segja hvað sem er í mark­aðs­setn­ingu mat­væla. Strangar reglur gilda um heilsu­full­yrð­ingar og þær eru, miðað við skýrslu MAST og fleiri, þver­brotnar.

Óleyfi­legar full­yrð­ingar í mark­aðs­setn­ingu mat­væla, sér­stak­lega fæðu­bót­ar­efna, eru algengar. Þetta er nið­ur­staða eft­ir­lits­verk­efnis um nær­ingar- og heilsu­full­yrð­ingar sem Mat­væla­stofnun og heil­brigð­is­eft­ir­lit sveit­ar­fé­lag­anna stóð að og birtar voru í dag. Um slíkar full­yrð­ingar gildir sér­stök lög­gjöf, reglu­gerð Evr­ópu­sam­bands­ins um nær­ingar- og heilsu­full­yrð­ingar er varða mat­væli sem tók gildi árið 2007 og var inn­leidd í íslenska lög­gjöf árið 2010. Einungis er leyfi­legt að nota þær full­yrð­ingar sem upp­fylla skil­yrði í reglu­gerð u heilsu­full­yrð­ingar og eru á listum ESB yfir leyfi­legar full­yrð­ingar og með þeim skil­yrðum sem þar koma fram.

Stofn­an­irnar segja að óleyfi­legar full­yrð­ingar komi fram í merk­ingum á vör­unum en einnig í ýmsu mark­aðs­efni sem notað er við mark­aðs­setn­ingu. Nið­ur­staðan sé sú „að veru­lega skorti á að allar full­yrð­ingar sem not­aðar voru við mark­aðs­setn­ingu mat­væla væru í sam­ræmi við gild­andi reglur. „Staða þess­ara mála hefur ekki batnað síðan síð­asta eft­ir­lits­verk­efni um nær­ingar- og heilsu­full­yrð­ingar var fram­kvæmt árið 2017.“

[adspot]

Í verk­efn­inu var reynt að skoða sér­stak­lega vörur sem bera full­yrð­ingar um að þau styrki ónæm­is­kerfi lík­am­ans og full­yrð­ingar um efni sem koma í veg fyrir eða draga úr líkum á sjúk­dómum, svo­kall­aðar sjúk­dóms­full­yrð­ingar. Yfir­leitt er hér um að ræða fæðu­bót­ar­efni sem geta inni­haldið margs konar virk efni. Þau algeng­ustu eru A-, C-, D-, E-, B6- og B12-vítamín og stein­efni s.s. járn, kopar og selen og einnig astax­antín, ýmsar fitu­sýrur og melt­ingarör­verur (probiotics) auk ýmissa ann­arra efna sem ekki falla í þessa flokka.

Fram­kvæmd eft­ir­lits var ýmist hefð­bundið eft­ir­lit sem fór fram á smá­sölu­stað, s.s. í stór­versl­unum, apó­tekum og sér­vöru­versl­unum með fæðu­bót­ar­efni. Einnig var fram­kvæmt raf­rænt eft­ir­lit með heima­síðum dreif­ingar- og sölu­að­ila, á sam­fé­lags­miðlum og loks aug­lýs­ingum í fylgi­blöðum dag­blaða.

Vörurnar sem voru skoð­aðar voru upp­runnar frá Íslandi, Evr­ópu­sam­band­inu, Bret­landi og Banda­ríkj­unum. Flestar óleyfi­legar full­yrð­ingar fylgdu vörum frá Banda­ríkj­unum en þar gildir önnur lög­gjöf um full­yrð­ingar við mark­aðs­setn­ingu mat­væla heldur en í Evrópu.

Í Evrópu gilda hins vegar aðrar reglur og þar er ein­fald­lega óheim­ilt að mark­aðs­setja mat­væli með heilsu­full­yrð­ingum án þess að þær hafi verið sér­stak­lega leyfðar.

Full­yrð­ing­arnar sem fylgdu vör­unum sem skoð­aðar voru í tengslum við eft­ir­lits­verk­efnið voru að miklu leyti að finna í íslensku mark­aðs­efni, s.s. í aug­lýs­inga­bæk­lingum, en ekki á merk­ingum var­anna.

Full­yrð­ingar voru einnig áber­andi í reynslu­sögum sem not­aðar eru við mark­aðs­setn­ingu. „Reynslu­sögur eru kost­aðar aug­lýs­ingar þar sem vara er aug­lýst með því að ein­stak­lingur lýsir góðri reynslu sinni af vör­unni og oft er vafið inn í text­ann ein­hvers­konar fróð­leik og full­yrð­ingum um virkni ákveð­inna efna,“ segir í skýrslu stofn­anna um nið­ur­stöðu verk­efn­is­ins. Bent er á að sömu reglur gilda um reynslu­sögur og aðrar teg­undir mark­aðs­setn­ingar.

Vara sögð draga úr hættu á ákveðnum sjúkdómum

Þrír flokkar óleyfi­legra full­yrð­inga voru sér­stak­lega áber­andi en það voru full­yrð­ingar sem vísa í hlut­verk nær­ing­ar­efnis eða ann­ars efnis í vexti, þroskun og starf­semi lík­am­ans, full­yrð­ingar um að varan dragi úr sjúk­dóms­á­hættu sem og ósér­tækar full­yrð­ingar, segir í skýrsl­unni. „Strangar reglur gilda um notkun full­yrð­inga en því miður virð­ist sem mat­væla­fyr­ir­tæki séu ekki með­vituð um þær reglur eða ein­fald­lega kjósi að fylgja þeim ekki.“

Stjórn­endur mat­væla­fyr­ir­tækja bera ábyrgð á að allar full­yrð­ingar sem not­aðar er við mark­aðs­setn­ingu mat­væl­anna, hvort sem um er að ræða full­yrð­ingar á mat­væl­unum sjálfum eða í mark­aðs­efni þeirra, upp­fylli ákvæði laga og reglu­gerða sem þetta varðar.

Dæmi um óleyfi­legar heilsu­full­yrð­ingar sem stofn­an­irnar gera athug­semdir við:

„Mjólkurvörur bæta tannheilsu barna“

- Heilsu­full­yrð­ing sem vísar til þrosk­unar og heil­brigðis barna (1. mgr. 14. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„D-vítamín er hollt og gott fyrir líkamann.“

- Ósértæk heilsu­full­yrð­ing (3. mgr. 10. gr. Reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„Þeir sem borða ekki þetta fæðubótarefni mega búast við lakari líkamlegri heilsu“

- Heilsu­full­yrð­ing sem gefur til kynna að það geti haft áhrif á heil­brigði ef mat­væl­anna er ekki neytt (a-liður 12. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„Þeir sem borða 2 töflur af XX á dag mega búast við að léttast um 5 kg á viku.“

- Heilsu­full­yrð­ing sem vísar til þess hversu hratt eða mikið þyngd­ar­tap kunni að verða (b-liður 12. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„NN bæklunarlæknir á Landspítalanum mælir sérstaklega með XX fyrir liðina“

- Heilsu­full­yrð­ing sem vísar til með­mæla ein­stakra lækna eða fag­fólks í heil­brigð­is­þjón­ustu (c-liður 12. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„A-vítamín bætir starfsemi lungna og eykur súrefnisflæði í líkamanum.“

- Heilsu­full­yrð­ing sem vísar í hlut­verk nær­ing­ar­efnis eða ann­ars efnis í vexti, þroskun og starf­semi lík­am­ans (a-liður 1. mgr. 13. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„LA sýra stuðlar að andlegum og vitsmunalegum þroska“

- Heilsu­full­yrð­ing sem vísar í sál­ræna og atferl­is­lega starf­semi (b-liður 1. mgr. 13. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„Hjálpar til við að draga úr sykurfíkn“

- Heilsu­full­yrð­ing sem vísar í megrun, þyngd­ar­stjórnun eða minni svengd­ar­til­finn­ingu eða aukna til­finn­ingu fyrir saðn­ingu eða skert orku­inni­hald fæð­unnar (c-liður 1. mgr. 13. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„XX dregur úr niðurbroti brjósks í stoðkerfi líkamans“

- Heilsu­full­yrð­ing sem full­yrðir að dregið sé úr sjúk­dóms­á­hættu (1. mgr. 14. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár