Eignastaða erlendra aðila ekki minni í átta ár

Bætt skulda­staða íslenskra fyr­ir­tækja við útlönd dró úr beinni fjár­muna­eign erlendra aðila á Íslandi í fyrra. Fjár­muna­eignin hefur ekki verið minni síðan á árinu 2013.

Eignarhlutur erlendra aðila í íslenskum hlutafé íslenskra fyrirtækja jókst lítillega í fyrra.
Eign­ar­hlutur erlendra aðila í íslenskum hlutafé íslenskra fyr­ir­tækja jókst lít­il­lega í fyrra. Mynd: Reitir

Á meðan erlendir fjár­festar bættu lít­il­lega við sig í eign­ar­hlutum íslenskra fyr­ir­tækja í fyrra dró veru­lega úr skulda­stöðu þeirra við útlönd. Samtals námu lána­kröfur og eign­ar­hlutir erlendra aðila hér­lendis 960 millj­örðum árið 2020 og hefur sú upp­hæð ekki verið jafn­lág í átta ár.

Þetta kemur fram þegar nýbirtar tölur Seðla­bank­ans um beina fjár­fest­ingu eru skoð­aðar. Tölurnar eru birtar árlega, en í þeim má bæði finna eigna­stöðu erlendra aðila hér­lendis og inn­lendra aðila erlendis.

Samkvæmt þeim jókst bein fjár­muna­eign inn­lendra aðila erlendis um 6 pró­sent í ár, úr 647 millj­örðum króna í 689 millj­arða króna. Á sama tíma veikt­ist gengi krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum hennar um 11 pró­sent, svo eigna­mynd­unin hélst ekki í takt við geng­is­þróun. Því má ætla að inn­lendir aðilar hafi selt eitt­hvað af erlendum eignum sínum.

Fjár­muna­eign erlendra aðila hér­lendis minnk­aði hins vegar, úr 1.019 millj­örðum króna niður í 959 millj­arða króna. Þar var öll lækk­unin vegna bættrar skulda­stöðu íslenskra fyr­ir­tækja við erlend fyr­ir­tæki, en kröfur erlendra aðila í þeim lækk­uðu um rúm 14 pró­sent á árinu. Eign­ar­hlutur erlendra aðila í eigin fé íslenskra fyr­ir­tækja hélst þú nokkuð stöð­ugur á árinu, en hann hækk­aði um 1,3 pró­sent.

Líkt og Kjarninn hefur áður hafa nokkrar breyt­ingar verið á erlendri hluta­bréfa­eign í Kaup­höll­inni á síð­ustu mán­uðum. Vog­un­ar­sjóð­irnir Taconic Capital Advisors og Sculptor Capital Mana­gement, sem voru lengi vel stærstu ein­stöku eig­endur Arion banka, hafa selt megnið af eign­ar­hlut­inum sínum síðan í fyrra­haust. Sömu sögu er að segja um aðra erlenda fjár­festa í bank­anum sem komu inn í hlut­hafa­hóp hans vegna þess að þeir voru kröfu­hafar í Kaup­þingi, líkt og Goldman Sachs International, Eaton Vance International og Landsdowne Partners. Mikið af þess­ari sölu átti sér hins vegar stað á þessu ári og er hún því ekki öll í tölum Seðla­bank­ans.

Holland og Sviss draga sig út

Af töl­unum að dæma hefur eign­ar­hlutur fyr­ir­tækja frá Hollandi minnkað mest, en hann dróst saman um tæpa 43 millj­arða króna í fyrra. Á sama tíma hækk­aði eigna­staða inn­lendra aðila í Sviss um svip­aða upp­hæð, eða um 46 millj­arða króna. Eign­ar­hlutur fyr­ir­tækja frá Sviss dróst svo saman um tæpa 36 millj­arða króna og eign­ar­hlutur frá Banda­ríkj­unum um tæpa 15 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár