Starfsmönnum stóru bankanna fækkaði um rúmlega 80 á fyrri helmingi árs

Í lok júní störf­uðu 2.167 manns hjá stóru við­skipta­bönk­unum þremur, Íslands­banka, Lands­banka og Arion banka. Sam­an­lagður hagn­aður bank­anna nam 37 millj­örðum á fyrstu 6 mán­uðum árs­ins.

Stóru bankarnir þrír fækkuðu allir í starfsliði sínu á fyrstu sex mánuðum ársins.
Stóru bank­arnir þrír fækk­uðu allir í starfs­liði sínu á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Mynd: Samsett

Starfs­mönnum stóru við­skipta­bank­anna þriggja hefur haldið áfram að fækka nokkuð það sem af er ári, en sam­kvæmt árs­hluta­reikn­ingum þeirra fyrir fyrri helm­ing árs­ins sem komið hafa út núna í lok mán­aðar hafa allir bank­arnir fækkað starfs­mönnum á umliðnum sex mán­uðum.

Arion banki hefur fækkað starfs­mönnum um 38, en í hálfs­árs­upp­gjöri Arion banka kom fram að starfs­menn í fullu starfi hjá bank­anum hefðu verið 610 þann 30. júní en 648 um ára­mót. Yfir hund­rað manns til við­bótar voru í starfi hjá öðrum fyr­ir­tækjum innan sam­stæðu bank­ans í lok júní.

Lands­bank­inn segir frá því í upp­gjöri sínu að árs­verk hjá sam­stæðu bank­ans hafi verið 844 tals­ins þann 30. júní, en þau voru 878 í lok síð­asta árs. Stöðu­gildum fækk­aði því um 34 á tíma­bil­inu.

Heild­ar­fjöldi stöðu­gilda hjá Íslands­banka dróst einnig saman, en þar voru 733 starfs­menn þann 30. júní en 745 um ára­mót. Þeim hefur því fækkað um 12.

[adspot]

Af þessum tölum má ráða að starfs­mönnum bank­anna þriggja hafi fækkað um rúm­lega 80 á fyrri helm­ingi árs­ins, en þó starfa enn sam­an­lagt 2.187 manns hjá bönk­unum þremur. Það nemur rúm­lega 1 pró­senti af öllum þeim sem eru starf­andi á íslenskum vinnu­mark­aði.

Rekstur bank­anna gekk vel á fyrri helm­ingi árs, en sam­an­lagður hagn­aður Arion banka, Íslands­banka og Lands­banka nam um 37 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár