Gylfi Þór sagður til rannsóknar fyrir meint kynferðisbrot gegn barni

Besti knatt­spyrnu­maður Íslands er sagður til rann­sóknar hjá lög­regl­unni í Manchester og nágrenni vegna meints kyn­ferð­is­brots gegn barni. Lið hans Everton stað­festi í gær­kvöldi að leik­maður félags­ins hefði verið sendur í leyfi vegna lög­reglu­rann­sóknar.

Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður er sagður til rannsóknar hjá lögreglu í Bretlandi.
Gylfi Þór Sig­urðs­son knatt­spyrnu­maður er sagður til rann­sóknar hjá lög­reglu í Bret­landi. Mynd: EPA

Gylfi Þór Sig­urðs­son, skærasta knatt­spyrnu­stjarna Íslands og leik­maður Everton í ensku úrvals­deild­inni, er sagður til rann­sóknar hjá lög­regl­unni í Manchester á Englandi vegna meints kyn­ferð­is­brots gegn barni. mbl.is sagði frá þessu í morgun, fyrst íslenskra fjöl­miðla og vís­aði til heim­ilda sinna.

Knatt­spyrnu­fé­lagið Everton stað­festi í gær­kvöldi að leik­maður liðs­ins væri til rann­sóknar og hefði verið sendur í leyfi frá lið­inu á meðan lög­reglu­rann­sókn stæði yfir, en breskir fjöl­miðlar hafa að svo komnu máli ekki nafn­greint leik­mann­inn og vísa til laga­legra ástæðna.

Samkvæmt fréttum breskra miðla er þó um að ræða 31 árs gamlan giftan mann, sem leikur reglu­lega með lands­liði sínu. Getgátur voru í gær uppi um að Everton-leik­mað­ur­inn, sem þá var enn ónefndur, gæti ef til vill einnig verið verið enski knatt­spyrnu­mað­ur­inn Fabian Delph, sem einnig er 31 árs. Delph, öfugt við Gylfa, lék hins vegar með Everton í æfinga­leik um helg­ina, en Gylfi Þór tók engan þátt í því verk­efni.

Sögusagnir hófust um helgina

Sögu­sagnir um að Gylfi Þór hefði verið hand­tek­inn á föstu­dag hafa farið um á sam­fé­lags­miðlum án stað­fest­ingar yfir helg­ina, en í gær stað­festi lög­reglan í Manchester og nágrenni að 31 árs karl­maður hefði verið hand­tek­inn á föstu­dag í þágu rann­sóknar máls­ins. Í kjöl­farið var fjallað um málið í bresku press­unni og hafa miðlar á borð við Mirror, The Sun, Daily Mail sagt frá mál­inu. Síðar hefur verið fjallað um málið í fleiri miðlum til dæmis bæði Guardian og BBC.

Ekkert hefur komið fram í breskum fjöl­miðlum um hvers eðlis meint brot er, eða hvenær það á að hafa átt sér stað, en þó vísar fleiri en einn mið­ill í ónafn­greinda heim­ild­ar­menn sem segja ásak­an­irnar alvar­legar.

Löggjöf um kyn­ferð­is­brot gegn börnum er ströng í Bret­landi. Þannig geta til­raunir full­orð­inna til þess að hafa sam­band við barn undir 16 ára aldri í kyn­ferð­is­legum til­gangi verið sak­næmar, jafn­vel þó sam­skiptin nái aldrei lengra en yfir netið.

[adspot]

Fleiri fót­bolta­menn á Bret­landi hafa á síð­ustu árum verið til rann­sóknar vegna sam­skipta við börn undir lög­aldri. Nú síð­ast var það Leigh Griffiths, þrí­tugur fram­herji Celtic í Skotlandi, en hann var sendur í leyfi frá liði sínu í upp­hafi júlí­mán­aðar á meðan lög­regla rann­sak­aði skila­boð sem hann sendi 15 ára stúlku á Instagram. Þau skila­boð voru ekki eins­dæmi. Skoska lög­reglan skoð­aði mál hans og komst að þeirri nið­ur­stöðu að ekk­ert sak­næmt væri að finna í skila­boð­unum.

Það mál sem hefur þó vakið mesta athygli á umliðnum árum en mál fyrr­ver­andi enska lands­liðs­manns­ins Adam Johnson. Hann var árið 2016, er hann var 28 ára gam­all og spil­aði með Sund­er­land, sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­leg sam­skipti við 15 ára gamla stúlku, en hann ját­aði fyrir dómi að hafa kysst stúlk­una. Hann neit­aði því að sam­skipti þeirra hefðu gengið lengra.

Johnson var dæmdur í sex ára fang­elsi. Hann afplán­aði þriggja ára dóm og losn­aði úr fang­elsi árið 2019.

Knattspyrnusamband Íslands fylgist með

Klara Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóri Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, hefur rætt málið við fjöl­miðla hér á landi í morgun. Hún segir við mbl.is að hún hafi ekki fengið neina stað­fest­ingu á því að málið snú­ist um Gylfa.

„Það sem við lít­um á sem stað­fest­ar upp­lýs­ing­ar er frétta­til­kynn­ing frá ensku lög­regl­unni og svo Evert­on, þar sem ekki er nafn­greind­ur leik­maður. Þannig við bíðum eft­ir frek­ari upp­lýs­ing­um,“ sagði Klara við mbl.is.

Rík­is­út­varpið seg­ist hafa heim­ildir fyrir því að mikil umræða sé málið innan for­ystu KSÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár