Lokakaflinn við tvöföldun Reykjanesbrautar að hefjast

Skipu­lags­ferli og mat á umhverf­is­á­hrifum tvö­föld­unar Reykja­nes­brautar við Straums­vík er hafið. Á kafl­anum er gert ráð fyrir mis­lægum gatna­mótum og und­ir­göngum fyrir hjólandi og gang­andi. Lífríkið er við­kvæmt og á áhrifa­svæð­inu er fjöldi forn­minja.

Yfirlitsmynd yfir Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Á myndinni er einungis sýndur einn valkostur. Rauð punktalína afmarkar rannsóknarsvæðið.
Yfir­lits­mynd yfir Reykja­nes­braut í Hafn­ar­firði. Á mynd­inni er ein­ungis sýndur einn val­kostur. Rauð punkta­lína afmarkar rann­sókn­ar­svæðið. Mynd: Úr frummatsskýrslu

Vega­gerðin áformar að breikka Reykja­nes­braut í Hafn­ar­firði, frá Krýsu­vík­ur­vegi að enda fjög­urra akreina braut­ar­innar á Hrauni vestan Straums­víkur. Lengd veg­kafl­ans er um 5,6 kíló­metrar og er þetta eini kafl­inn á Reykja­nes­braut, frá Ásbraut í Hafn­ar­firði að Njarðvík, sem ekki hefur verið breikk­aður.

Bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar hefur aug­lýst til­lögu að breyt­ingu á aðal­skipu­lagi vegna hinnar áform­uðu fram­kvæmdar. Samtímis er frum­mat­skýrsla um mat á umhverf­is­á­hrifum hennar aug­lýst.

[adspot]

Áformað er að breikka veg­inn í 2+2 aðskildar akreinar, breyta mis­lægum vega­mótum við álverið í Straums­vík, ISAL, útbúa veg­teng­ingar að Straumi og Álhellu, byggja mis­læg vega­mót við Rauðamel og útbúa teng­ingu að dælu- og hreinsi­stöð austan Straums­víkur. Einnig er áformað að byggja und­ir­göng fyrir gang­andi og hjólandi rétt austan við álverið sem og eft­ir­lits­staði fyrir umferð­ar­eft­ir­lit beggja megin Reykja­nes­brautar, austan við Straums­vík.

Ein megin ástæða fram­kvæmd­ar­innar er að auka umferð­ar­ör­yggi á umræddum veg­kafla, þar sem mikil umferð er um Reykja­nes­braut­ina og slys nokkuð algeng. Á kafl­anum eru sex vega­mót eða veg­teng­ingar. Núver­andi veg­kafli er með eina akrein í hvora átt og eru þær ekki aðskildar.

Samkvæmt umferða­spá er gert ráð fyrir að árdags­um­ferð við Krýsu­vík­ur­vega­mótin auk­ist úr um 19 þús­und öku­tækjum á sól­ar­hring árið 2019 í um 43 þús­und öku­tæki á sól­ar­hring árið 2039.

Reykja­nes­braut, eða þjóð­vegur 41, liggur frá Sæbraut að Flugstöð Leifs Eiríks­sonar á Reykja­nesi í gegnum Hafn­ar­fjörð. Umræddur veg­kafli er eini kafli braut­ar­innar sem ekki hefur verið tvö­fald­aður, en land svæð­is­ins er í eigu Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar og nokk­urra einka­að­ila.

Lands­lagið á þessum slóðum ein­kenn­ist af slétt­lendi, hraunum og ísöltum tjörnum og er hluti svæð­is­ins í nálægð við bygg­ingar og iðn­að­ar­svæði, þ.e. álverið í Straums­vík, Hellna­hraun og geymslu­svæðið Álhellu. Þá liggur Reykja­nes­braut fram hjá úti­vist­ar­svæðum. Þrjú svæði innan áhrifa­svæðis fyr­ir­hug­aðrar breikk­unar Reykja­nes­brautar eru á nátt­úru­minja­skrá: Strand­lengjan frá Fögruvík að Straumi, Straums­vík og Hval­eyr­ar­lón og fjörur Hval­eyr­ar­höfða.

Vegstæðið verður ekki fært, heldur stendur ein­ungis til að breikka núver­andi veg.

Í frum­mats­skýrslu Vega­gerð­ar­innar, sem verk­fræði­stofan Mannvit vann, segir að fram­kvæmdin muni hafa bein áhrif á jarð­mynd­anir, þar sem þeim yrði raskað með vega- og stíga­gerð. Jarð­mynd­anir innan fram­kvæmda­svæð­is­ins eru aðal­lega hraun en þau njóta sér­stakrar verndar sam­kvæmt lögum um nátt­úru­vernd. Fram­kvæmdin myndi hafa nokkuð nei­kvæð var­an­leg áhrif á Skúla­túns­hraun en engin áhrif á Kapellu­hraun „þar sem ekk­ert er eftir til að vernda innan áhrifa­svæðis fram­kvæmd­ar­innar”. Þá er fram­kvæmdin talin hafa tals­vert nei­kvæð var­an­leg áhrif á Hrúta­gjár­dyngju­hraun en fram­kvæmdin myndi raska hraun­inu tals­vert, bæði vegna breikk­unar veg­ar­ins, veg­teng­ingu að Álhellu og vegna mis­lægra vega­móta við Rauðamel.

Áhrif fram­kvæmd­ar­innar á fugla­líf við Reykja­nes­braut, að Straums­vík og Straum­stjörnum und­an­skildum, eru metin óveru­leg til tals­vert nei­kvæð. Í frum­mats­skýrslu segir að gera megi ráð fyrir að nú þegar séu áhrif Reykja­nes­brautar nei­kvæð á þétt­leika varp­fugla, en fram­kvæmd­inni mun engu að síður fylgja var­an­legt búsvæða­tap, m.a. á órösk­uðu svæði.

Umhverfi tjarn­anna og strand­ar­innar við Straum er sér­stakt, m.a. vegna hrauns­ins og þess mikla grunn­vatns­streymis sem þar er. Eitt helsta ein­kenni tjarn­anna í Straums­vík er að þar gætir áhrifa sjáv­ar­falla. Fram­kvæmdin mun hafa í för með sér rask í nágrenni við tjarn­irnar í Straums­vík og hugs­an­legt er að áhrifa á grunn­vatns­streymi gæti meira norðan megin við veg­inn. Ætla má að áhrif breikk­un­ar­innar á vatna­líf tjarn­anna í Straums­vík verði tals­vert nei­kvæð, og mjög lík­lega var­an­leg og óaft­ur­kræf, ef ein­stakt líf­ríki tjarn­anna raskast. Þá mun teng­ing Reykja­nes­brautar við Álhellu hafa óbein og nokkuð nei­kvæð áhrif á vatna­líf Gerð­i­s­tjarnar og Brunn­tjarn­ar­innar.

Skráðar hafa verið 70 forn­leifar á 48 minja­stöðum innan athug­un­ar­svæðis fram­kvæmd­ar­innar, og í frum­mats­skýrslu segir að gera megi ráð fyrir að hún geti haft áhrif á flestar þeirra. Áhrifa­svæði tvö­föld­un­ar­innar fer yfir stóran hluta af frið­helg­un­ar­svæði Kapellu­tóftar, sem er frið­lýst forn­leif, og yfir heima­tún þriggja kot­býla: Pét­urskots, Gerðis og Litla-Lambhaga. Í og við heima­tún er minja­dreifin hvað þétt­ust, og mögu­leiki á að óþekktar minjar komi í ljós þegar fram­kvæmdir hefj­ast.

Almenn­ingi gefst kostur á að kynna sér fyr­ir­hug­aða fram­kvæmd og frum­mats­skýrslu í dag, fimmtu­dag­inn 15. júlí. Kynn­ingin verður haldin í húsa­kynnum Vega­gerð­ar­innar (Mót­orskál­anum), Borg­ar­túni 5-7 í Reykja­vík. Húsið verður opið á milli kl. 14 og 18. Á staðnum verða full­trúar frá Vega­gerð­inni og Mannviti.

Allir geta skilað inn athuga­semdum við frum­mat­skýrsl­una og til­lögu að aðal­skipu­lags­breyt­ingum. Þær skulu vera skrif­legar og ber­ast eigi síðar en 23. ágúst næst­kom­andi til Skipu­lags­stofn­unar bréfleiðis eða með tölvu­pósti á skipulag@skipulag.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár