Spánn roðnar á litakortinu – Þórólfur segir okkur í „smá biðstöðu“

Ferða­menn sem eru að koma frá Spáni þurfa nú að sæta harð­ari aðgerðum á landa­mærum Þýska­lands. Danir hafa einnig hert reglur vegna sumra svæða á Spáni og fleiri ríki hafa mælt gegn ónauð­syn­legum ferða­lögum þangað.

Lögreglumaður fylgist með að sóttvarnaaðgerðum sé framfylgt á götum úti Galesíu í norðvesturhluta Spánar.
Lög­reglu­maður fylgist með að sótt­varna­að­gerðum sé fram­fylgt á götum úti Galesíu í norð­vest­ur­hluta Spánar. Mynd: EPA

Þýska­land hefur skil­greint Spán sem hættu­svæði á ný en greind smit af kór­ónu­veirunni tvö­föld­uð­ust þar á milli vikna á ákveðnum svæðum, m.a. á Mallorca og á Kanarí­eyjum. Daglega eru nú um og yfir 14 þús­und smit að grein­ast í land­inu. Um 45 pró­sent íbúa eru full­bólu­settir. Ástandið hefur verið einna verst í Kata­lóníu og voru aðgerðir innan svæð­is­ins hertar nýverið af þeim sökum. Smit eru helst að grein­ast í ald­urs­hópnum 12-29 ára og eru rakin til ann­ars vegar sam­koma utandyra og hins vegar auk­ins fjölda ferða­manna sem kemur til sum­ar­dvalar í land­inu.

Óbólu­settir ferða­menn frá Spáni sem koma til Þýska­lands þurfa nú að fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi til að kom­ast hjá sótt­kví. Áður höfðu aðeins til­tekin svæði á Spáni verið skil­greind sem hættu­svæði.

Danir hafa fetað svip­aðar slóðir og frá því á laug­ar­dag hefur fólk sem er að koma frá ákveðnum svæðum á Spáni og er ekki bólu­sett aðeins fengið að koma til lands­ins í brýnum erinda­gjörðum, fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi og gang­ast undir tvær skimanir.

Í lok júní höfðu Danir sem og fleiri ESB-ríki stigið skref í aflétt­ingu aðgerða á landa­mærum sínum sem fólu í sér að bólu­settir íbúar Evr­ópu­sam­bands­ins og EFTA-ríkj­anna, þar á meðal Íslands, gátu ferð­ast þangað án hind­r­ana.

Í síð­ustu viku ráð­lögðu frönsk yfir­völd fólki frá því að fara í sum­ar­leyfi til Spánar og Portúgal.

Delta-afbrigði veirunnar er tekið að breið­ast út um Evrópu og á Spáni hefur smitum fjölgað hratt og er tíðnin þar nú sú hæsta í álf­unni. Afbriðið er talið um 60 pró­sent meira smit­andi en önnur.

Vonandi ekki svikalogn

Sótt­varna­læknir Íslands skil­greinir öll lönd og svæði heims áhættu­svæði vegna COVID-19 fyrir utan Grænland. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði í ítar­legu við­tali í Frétta­blað­inu um helg­ina að full­bólu­sett fólk væri að koma hingað frá útlöndum og bera með sér smit. Þetta eru enn sem komið er fáir ein­stak­lingar en þeir geti þó, að sögn Þórólfs, smitað aðra. „Það verður fróð­legt að sjá hvort þessi útbreidda bólu­setn­ing núna muni koma í veg fyrir að við fáum stórar hóp­sýk­ingar,“ sagði hann.

Sjálfur seg­ist Þórólfur enga ástæðu sjá til að fara til útlanda. „Ég held að það að fara til útlanda, sér­stak­lega ef fólk er óbólu­sett, sé ekki snið­ugt. Með börn til dæmis, óbólu­settir geta smit­ast og við höfum séð það að fólk er að koma jafn­vel bólu­sett með veiruna og veikj­ast, ennþá. Mér finnst ég ekki eiga neitt erindi til útlanda. Ísland hefur svo margt upp á að bjóða þannig að það er engum vor­kunn að vera hér. Það er lúxus hér miðað við á mörgum öðrum stöðum.“

Bólu­setn­ingar hér hafa gengið vel og yfir 80 pró­sent full­orð­inna eru orðin full­bólu­sett. Tak­mörk­unum hefur verið aflétt inn­an­lands en á landa­mær­unum þurfa óbólu­settir enn að fram­vísa COVID-prófi og fara í skimun. Bólu­settir geta hins vegar komið hingað án skimunar og sótt­kvíar.

„Ég hef á til­finn­ing­unni að við séum í smá bið­stöðu, smá logni – hvort það er svika­logn veit ég ekki,“ sagði Þórólfur við Frétta­blaðið. „Ég vona bara að lognið muni end­ast okkur, það er að segja að þetta ónæmi sem við höfum náð upp með bólu­setn­ing­unum verði við­var­andi“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár