Stafrænu COVID-vottorðin eru að „virka mjög vel“

Þrjátíu ríki eiga aðild að evr­ópska, staf­ræna COVID-vott­orð­inu sem auð­velda á frjálsa för fólks yfir landa­mæri. Það er þó ekki ferða­passi, minnir svið­stjóri hjá land­lækni á og að ferða­menn þurfi enn að hlíta tak­mörk­unum á áfanga­stað.

QR-kóðinn í stafræna COVID-vottorðinu er þarfaþing á ferðalögum.
QR-kóð­inn í staf­ræna COVID-vott­orð­inu er þarfa­þing á ferða­lögum. Mynd: ESB

Vel yfir 50 þús­und evr­ópsk staf­ræn COVID-vott­orð hafa verið gefin út hér á landi, bæði til íslenskra rík­is­borg­ara og erlendra ferða­manna sem hér hafa við­dvöl. Reglu­gerð um staf­ræn COVID-19 vott­orð tók gildi hér á landi 1. júlí en þau gilda í þrjá­tíu löndum; öllum ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins auk Íslands, Noregs, Liecthenstein og Sviss. Markmið er að auka frjálsa för fólks milli ríkja og auka öryggi ein­stak­linga meðan á COVID-19 far­aldr­inum stendur.

[adspot]

Reglu­gerðin setur ramma um útgáfu, sann­prófun og við­ur­kenn­ingu á sam­bæri­legum vott­orðum um bólu­setn­ingu, próf og bata til að auð­velda frjálsa för á meðan COVID-19 heims­far­ald­ur­inn stendur yfir. Stafræn COVID-19 vott­orð inni­halda upp­lýs­ingar um bólu­setn­ingar gegn COVID-19, nið­ur­stöður úr PCR-skimunum, hafi þær verið nei­kvæðar, og bata, hafi við­kom­andi sýkst.

[links]eHealth Network hjá fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur staðið fyrir sam­vinnu Evr­ópu­ríkja um sam­ræmd staf­ræn COVID-vott­orð með und­ir­rit­uðum QR-kóða. Vott­orðin eru kölluð EU DCC-vott­orð (EU Digitial COVID Certificate) eða evr­ópskt staf­rænt COVID-vott­orð á íslensku.

Vinnu­heiti var „Digital Green Certificate“ – „staf­ræn grænt vott­orð“ eða „græni pass­inn“– en Evr­ópu­sam­bandið valdi að end­ingu að kalla það ekki „græna“ vott­orðið heldur ein­fald­lega „COVID vott­orðið“.

Mik­il­vægt er að hafa í huga að staf­rænu COVID-vott­orðin eru ekki ferða­passi, segir Ingi Steinn Ingason, sviðs­stjóri hjá land­lækni sem leiðir upp­bygg­ingu evr­ópsku staf­rænu COVID-vott­orð­anna fyrir emb­ættið, í sam­starfi við sótt­varn­ar­lækni og ráðu­neytin. „Vott­orðin sem slík gefa ekki rétt­indi, þau stað­festa bara bólu­setn­ingu, nei­kvæða nið­ur­stöðu prófs eða fyrri sýk­ingu. Farþegar þurfa í flestum til­vikum að hlíta tak­mörk­unum í komu­landi, en þær tak­mark­anir eru tölu­vert breyti­legar í Evr­ópu­löndum.“

Hann segir notkun á vott­urð­unum vera „framar vonum“ og að mjög lítið sé um vand­kvæði við útgáfu þeirra og sann­prófun. „Sem sagt; þau virka mjög vel.“

Ingi Steinn segir í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að hingað til hafi um 10 pró­sent allra flug­far­þega frá Evrópu sem hingað hafa komið fram­vísað hinu evr­ópska staf­ræna COVID-vott­orði. QR-kóð­inn er les­inn við landa­mærin og sann­próf­aður með því að stað­festa rétta und­ir­skrift. „Við erum búin að gefa út meira en 30.000 bólu­setn­ing­ar­vott­orð með QR-kóð­anum og meira en 20.000 próf-vott­orð.“

Hann segir allar þjóð­irnar 30 taka vott­orðin gild og að eitt af lyk­il­at­rið­unum í því sam­bandi séu reglu­gerðir frá Evr­ópu­þing­inu sem hafi verið inn­leiddar í þeim öllum til að tryggja per­sónu­vernd og laga­legar for­sendur vott­orð­anna.

Hægt er að nálg­ast staf­rænt COVID-19 vott­orð á heilsu­vera.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár