Riða á barmi hamfara

Sjúkra­hús eru yfir­full og súr­efni af skornum skammti. Skyndi­leg fjölgun smita af Delta-afbrigði kór­ónu­veirunnar í Indónesíu hefur skapað neyð­ar­á­stand líku því sem ger­ist í stríði.

Tómar götur í Jakarta eftir að útgöngubann var sett á.
Tómar götur í Jakarta eftir að útgöngu­bann var sett á. Mynd: EPA

Spreng­ing hefur orðið í stað­festum kór­ónu­veirusmitum í Indónesíu og að minnsta kosti sex­tíu manns lét­ust á einu sjúkra­húsa lands­ins um helg­ina vegna skorts á súr­efni. Delta-afbrigðið er orðið útbreitt í land­inu og er talin helsta skýr­ingin á hinni snörpu bylgju far­ald­urs­ins nú.

Indónesía er fjórða fjöl­menn­asta ríki heims og þar er far­aldur COVID-19 nú skæð­astur af öllum löndum Asíu. Síðustu daga hafa milli 25-30 þús­und smit verið greind dag­lega. Útgöngu­bann er á eyj­unum Jövu og Balí en á þeirri fyrr­nefndu er höf­uð­borg Indónesíu, Jakarta.

Þetta er nokkuð kunn­ug­legt stef því stærsta bylgja far­ald­urs­ins varð á Indlandi í vor og var aðdrag­andi hennar mjög svip­aður. Í ofaná­lag hefur straumur ferða­manna til eyja Indónesíu auk­ist hratt sem er einnig hluti af skýr­ingu smit­fjöld­ans.

Eitt sjúkra­húsið á Jövu, Sardjito, yfir­fyllt­ist um helg­ina sem varð til þess að súr­efn­is­birgðir þraut þrátt fyrir að reynt hefði verið að afla alls þess súr­efnis sem hægt var dag­ana á undan. Á sunnu­dag feng­ust meiri birgðir en á tveimur sól­ar­hringum þar á undan lét­ust að minnsta kosti 60 vegna súr­efn­is­skorts­ins og talið er að flestir þeirra hafi verið með COVID-19. Rík­is­stjórn Indónesíu hefur fyr­ir­skipað gas­fram­leið­endum að auka við fram­leiðslu á súr­efni til lækn­inga.

Tíu sinnum fleiri útfarir

Sjúkra­hús um alla Jövu eru að glíma við sömu vanda­mál og gríð­ar­legt álag. Heil­brigð­is­starfs­fólk lýsir því í við­tali við BBC að það hafi þurft að vísa sjúk­lingum frá. Sjúk­lingar segja ástandið líkj­ast því sem ger­ist á stríðs­tímum. Rauði kross­inn og Rauði hálf­mán­inn segja landið „riða á barmi ham­fara“ vegna COVID-19.

Borg­ar­yf­ir­völd í Jakarta segja að tíu sinnum fleiri útfarir séu í borg­inni nú en snemma í maí.

Í frétta­skýr­ingu CNN er haft eftir heil­brigð­is­ráð­herra Indónesíu að yfir­völd hafi ekki verið við­búin þeirri spreng­ingu sem orðið hefur í smitum síð­ustu daga. Hann kennir Delta-afbrigð­inu, sem fyrst upp­götv­að­ist á Indlandi, um. „Þetta afbrigði leggst á alla, bæði börn og full­orðna.“ Smitum hafi fjölgað hraðar nú en nokkru sinni í far­aldr­inum.

Fleiri börn hafa verið lögð inn á sjúkra­hús nú en í fyrstu bylgj­unni en mjög mik­ill fjöldi barna hefur smit­ast. Mun færri börn eru þó á sjúkra­húsum sam­an­borið við full­orðna, hefur CNN eftir heil­brigð­is­ráð­herr­anum.

Heil­brigð­is­starfs­fólk í Indónesíu var bólu­sett með kín­verska bólu­efn­inu Sinovac. Um miðjan júní var birt nið­ur­staða rann­sóknar um að þrátt fyrir bólu­setn­ing­una hafi yfir 350 læknar og aðrir heil­brigð­is­starfs­menn fengið COVID-19.

Bólu­setn­ingar í land­inu hófust í jan­úar en þeim hefur miðað hægt. Rétt rúm­lega 5 pró­sent þjóð­ar­innar eru full­bólu­sett. Fyrir nokkrum dögum gaf rík­is­stjórnin út að börn á aldr­inum 12-17 ára gætu einnig fengið bólu­setn­ingu með Sinovac.

Á morgun þriðju­dag, taka gildi hertar aðgerðir á landa­mærum Indónesíu. Aðeins bólu­settir og þeir sem eru með nýlegt og nei­kvætt PCR-próf mega koma til lands­ins. Þeir þurfa engu að síður að dvelja í ein­angrun í átta daga eftir kom­una til lands­ins.

Indónesar hafa orðið hvað verst úti í far­aldr­inum af öllum Asíu­þjóðum. Þar hafa rúm­lega 2,3 millj­ónir greinst með veiruna og yfir 60 þús­und hafa lát­ist. Talið er að báðar þessar tölur séu þó mun hærri í raun þar sem sýna­tökur hafa að mestu verið bundnar við höf­uð­borg­ina Jakarta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár