Landamæraskimun bólusettra, barna og þeirra sem áður hafa sýkst verður hætt 1. júlí

Frá og með 1. júlí þurfa þau sem koma bólu­sett eða með vott­orð um fyrri sýk­ingu ekki lengur að fara í COVID-próf á landa­mær­unum. Einnig stendur til að hætta að skima börn, að til­lögu sótt­varna­læknis.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir mælir með því að áfram verði skimað fyrir veirunni hjá bólusettum á landamærum út mánuðinn.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir mælir með því að áfram verði ski­mað fyrir veirunni hjá bólu­settum á landa­mærum út mán­uð­inn. Mynd: Almannavarnir

Frá og með 1. júlí verður hætt að skima þá sem koma til lands­ins bólu­settir gegn COVID-19 eða með vott­orð um fyrri sýk­ingu og sömu­leiðis börn, en fyr­ir­komu­lag skim­ana á landa­mærum verður óbreytt þar til þá.

Þetta hefur Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra ákveðið í sam­ræmi við til­lögu sótt­varna­læknis. Mjög fáir sem fram­vísa bólu­setn­ing­ar­vott­orði eða vott­orði um fyrri sýk­ingu COVID-19 hafa reynst smit­aðir við kom­una til lands­ins, en þó ein­hverjir.[adspot]

Frá 1. maí hafa alls 9 manns með bólu­setn­ing­ar­vott­orð af alls um 27 þús­und far­þegum reynst með virkt veirusmit, sem sam­svarar um 0,03 pró­sentum. Um 2.700 far­þegar hafa fram­vísað vott­orði um fyrri sýk­ingu og þrír þeirra hafa reynst með virkt smit við skimun, eða um 0,1 pró­sent. Um 2.100 börn hafa verið skimuð á landa­mær­unum og 6 þeirra hafa reynst með virk smit, eða 0,3 pró­sent.[links]

Samkvæmt minn­is­blaði sótt­varna­læknis telur hann „mik­il­vægt að við­halda þeim árang­urs­ríku sótt­varna­að­gerðum á landa­mærum þar til að við­un­andi þátt­töku í bólu­setn­ingum yngri ald­urs­hópa hefur verið náð eða um 60-70%“ og ætla megi að því marki verði náð um mán­að­ar­mótin júní-júlí.

Leggur til að landamærasóttkví verði endurskoðuð um miðjan júlí

Þeir sem koma hingað til lands óbólu­settir og hafa ekki fengið fyrri sýk­ingu þurfa að fram­vísa nei­kvæðu PCR-prófi að utan og fara í tvær skimanir með sótt­kví á milli. Þórólfur segir í minn­is­blaði sínu að stefnt verði að end­ur­skoðun þessa fyr­ir­komu­lags um miðjan júlí.

Um 34 pró­sent allra þeirra far­þega sem hafa komið til lands­ins frá því 1. maí hafa verið í þessum flokki, sem þarf að fara í sótt­kví. Það hlut­fall er þó að fara minnk­andi, en sam­kvæmt því sem segir í minn­is­blaði Þórólfs eru þessa dag­ana um 80 pró­sent allra far­þega sem koma til lands­ins með bólu­setn­ing­ar­vott­orð með í för.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár