Landamæravarnir Taívans brustu eftir nær algjört smitleysi frá upphafi faraldurs

Fyrsta alvöru bylgja kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hefur gert strand­högg í Taívan og náð tölu­verðri útbreiðslu. Eyríkið, sem hafði verið smit­laust meira og minna frá því í upp­hafi far­ald­urs­ins, glímir nú við erf­iða stöðu, en um 3 pró­sent íbúa eru bólu­sett.

Flokkur hermanna með sótthreinsibúnað að vopni bíður sig hér undir að leggja til atlögu gegn veirunni á lestarstöð í Taipei undir lok síðasta mánaðar.
Flokkur her­manna með sótt­hreinsi­búnað að vopni bíður sig hér undir að leggja til atlögu gegn veirunni á lest­ar­stöð í Taipei undir lok síð­asta mán­aðar. Mynd: EPA

Eyríkið Taívan hefur verið svo gott sem smit­laust frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn fór að breið­ast út um heim­inn í upp­hafi síð­asta árs. Stífar hömlur hafa verið á landa­mærum og allir sem þangað koma hafa þurft að und­ir­gang­ast stífa sótt­kví.

Þetta hefur skilað miklum árangri og hafa sögur af vel­gengni Taívana í slagnum við veiruna borist víða, meðal ann­ars til les­enda Kjarnans, ekki síst umræða hefur skap­ast hér á landi um þá mis­mun­andi val­kosti sem eyríki hafa til þess að bregð­ast við útbreiðsl­unni.

Þor­steinn Krist­ins­son dokt­or­snemi, sem hefur verið staddur í Taívan í fleiri mán­uði frá því að far­ald­ur­inn fór af stað, hefur miðlað öfund­verðum lýs­ingum á því hversu eðli­legt lífið í Taívan hefur verið und­an­farin miss­eri.

„Veit­inga­staðir og eru opnir og troð­fullir alla daga. Þeim var aldrei gert að loka. Barir og skemmti­staðir hafa að mestu leyti fengið að starfa óbreytt. Og já, þeir fá að vera opnir langt fram á nótt. Fyr­ir­tæki og stofn­anir starfa flest án tak­mark­ana. Að frá­töldum nokkrum vikum í vor hafa sund­laugar og lík­ams­rækt­ar­stöðvar verið opnar,“ skrif­aði Þor­steinn meðal ann­ars í grein sem birt­ist í Kjarn­anum 14. ágúst í fyrra, þegar ný bylgja var að rísa á Íslandi.

Taívan hefur verið öfundað af þess­ari vel­gengni, enda smitin fá, dauðs­föll sömu­leiðis og raskið á sam­fé­lag­inu og dag­legu lífi fólks með allra minnsta móti.

Upprisa faraldurs um miðjan maí

En nú er heldur betur komið babb í bát­inn. Smit láku inn í sam­fé­lagið með flug­á­höfn í apr­íl­mán­uði (skömmu eftir að slakað var á sótt­kví­ar­reglum fyrir flug­á­hafnir) og síðan þá hafa fleiri en 11 þús­und smit greinst og 260 manns látið lífið í þessu rúm­lega 23 millj­óna manna sam­fé­lagi, lang­flest eftir miðjan maí.

Frá upp­hafi far­ald­urs og þar til í byrjun maí höfðu ein­ungis rúm­lega 1.100 smit greinst og 12 manns látið lífið. Staðan er því gjör­breytt á skömmum tíma.

Samkvæmt umfjöllun Guardian um þessa fyrstu alvöru bylgju far­ald­urs­ins í Taívan virð­ist rík­is­stjórn eyrík­is­ins ekki fylli­lega hafa búið sig undir að veiran gæti farið á veru­legt flug þar inn­an­lands. Nokkrum sinnum hafi munað litlu um að sam­fé­lags­smit færi af stað, en ávallt hafi tek­ist að grípa nægi­lega fljótt inn í með smitrakn­ingu.

[adspot]

Núna hins vegar er veiran víða um sam­fé­lagið, á allt öðrum skala en nokkru sinni áður og þá hefur komið í ljós að að Taívan er ekki með inn­viði til staðar til þess að fram­kvæma umfangs­miklar fjölda­skimanir fyrir veirunni inn­an­lands.

Það við­ur­kennir sótt­varna­stofnun rík­is­ins sjálf, sam­kvæmt umfjöllun Guardian. „Á sama tíma og við höfum náð árangri í vörnum á landa­mærum er tví­mæla­laust ráð­rúm til þess að gera betur í varn­ar­að­gerðum inn­an­lands,“ hefur frétta­rit­ari blaðs­ins í Taipei eftir stofn­un­inni.

Lítið búið að bólusetja

Rík­is­stjórnin hefur verið gagn­rýnd fyrir að bregð­ast ekki hraðar við mögu­legu sam­fé­lags­smiti og kæfa það í fæð­ingu. Í grein í tíma­rit­inu Foreign Policy gagn­rýnir blaða­maður í Taívan rík­is­stjórn­ina fyrir að hika við að grípa til þess ráðs að setja við­búnað á hæsta stig og biðja fólk að halda sig heima — og einnig fyrir að hafa lítið gert til þess að tryggja lands­mönnum bólu­efna­skammta, en ein­ungis er búið að bólu­setja um 3 pró­sent íbúa í Taívan að minnsta kosti einu sinni.

Stjórn­völd í Taívan þar hafa reyndar sakað Kínverja um að gera þeim erfitt fyrir varð­andi öflun bólu­efna, sér­stak­lega hvað varðar samn­ing um bólu­efni frá Pfizer og BioNTech. Sá samn­ingur var á loka­metr­unum, að sögn for­seta lands­ins, er Kín­verjar „skiptu sér af.“ Þessu neita kín­versk yfir­völd.

Banda­rísk stjórn­völd hyggj­ast senda Taívönum 750 þús­und bólu­efna­skammta á næstu dögum í ljósi þess hve þörfin þar í landi fyrir bólu­setn­ingu við­kvæmra hópa er orðin brýn vegna gjör­breyttrar stöðu far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár